Nína Richter, fyrrverandi kvikmyndagagnrýnandi á RÚV ásamt mörgu öðru, segist á Twitter hafa orðið vitni af sorglegu atviki í matvörubúð í dag. Hún segist hafa verið viðstödd þegar upp komst um þjófnað en af lýsingum hennar að dæma átti viðkomandi enga aðra leið færa til fæða sig.
„Ég varð vitni að því þegar upp komst um þjófnað í matvöruverslun í dag. Það er allt of mikið til af öllu en samt er neyðin svo mikil á sumum heimilum að fólk sér enga aðra leið. Við eigum flest allt of mikið af öllu og þetta kerfi er gersamlega glatað. Mér er illt í hjartanu,“ lýsir Nína.
Hún segir skelfilegt að fólk upplifi slíka neyð á Íslandi. „Lögreglan var á leiðinni og ég var farin áður en hún kom. Ég þekki þetta tiltekna mál ekki til hlítar og er hvorki lög- né hagfræðingur en það hlýtur að vera hægt að útfæra lögin þannig að fátækt fólk í svona ömurlegri neyð þurfi ekki að óttast refsingu. Fólk sem á ekki mat,“ segir Nína og bætir við að lokum:
„Þið getið brugðist við og styrkt Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands með ýmsum hætti. Covid er vafalítið þungur róður fyrir þá sem áttu erfitt fyrir. Matur, peningar og föt sem þið eigið aflögu getur komið að góðum notum.“





















Athugasemdir