Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðmundur biður þjóðina að mygla ekki: „Éttu það, Covid“

Guðmundur biður þjóðina að mygla ekki: „Éttu það, Covid“

Guð­mundur Stein­gríms­son, fyrr­ver­andi for­maður Bjartrar fram­tíðar og fyrrum alþing­is­maður, segir íslensku þjóð­ina stadda í bylgju­lest kór­ónu­veirunnar sem ekki sér fyrir end­ann á. Hann er sann­færður um að Íslend­ingar, með sína sléttu maga­vöðva og nýbyggðu sól­palla, standi uppi marg­falt sterk­ari, reynsl­unni rík­ari og ham­ingju­sam­ari eftir far­ald­ur­inn.

Þetta segir Guð­mundur í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag. Þar veltir hann því fyrir sér að kaupa sér sótt­varn­ar­hjálm í anda Svart­höfða, heil­bún­ing og jafn­vel skikkju í ljósi tíð­inda af því að meg­in­þorri almenn­ings verði ekki bólu­settur fyrr en árið 2022. „Haltu á ketti, langar mann að segja við því. Þarf maður að fara að kaupa sér eitt­hvað var­an­legra en grímu fyrir and­litið? Er það kannski svona sem bún­ing­arnir í Stjörnu­stríði, í því sól­kerfi langt í burtu, byrj­uðu? Þurfti Svart­höfði upp­haf­lega að bera hjálm út af langvar­andi far­sótt? Ætti maður að fjár­festa í svo­leiðis? Heil­bún­ingi og skikkju jafn­vel? Hver er sparn­að­ur­inn í var­an­legum hjálmi með önd­un­ar­bún­aði miðað við einnota grímur? Þetta er auð­vitað hætt að vera fyndið, en þetta má samt aldrei hætta að vera fyndið. Sem er fyndið,“ segir Guð­mundur.

„Þessu mun linna. Og þá verður þessi vírus aðeins ein opna í sögu­bókum og við marg­falt sterk­ari, reynsl­unni rík­ari og ham­ingju­sam­ari.“

Guð­mundur segir reg­in­mun á þriðju bylgju far­ald­urs­ins í sam­an­burði við þá fyrstu. Þar hafi tíma­setn­ingin skipt meg­in­máli. „Í vor, þegar kór­ónu­veiran fór á flug í sinni fyrstu bylgju, var tíma­setn­ing heims­far­ald­urs fyrir okkur Íslend­inga að mörgu leyti heppi­leg. Það glað­hlakka­lega við­horf er reyndar svo­lítið í stíl við annað. Þjóðin hefur haft til­hneig­ingu til að telja sig koma ágæt­lega út úr válegum hörm­ungum, eins og tveimur heims­styrj­öldum, og jafn­vel kveður svo rammt að þessu hug­ar­fari að sjálf ham­fara­hlýnun jarðar er af sumum talin ákjós­an­leg fyrir Íslend­inga, því hér verði þá loks­ins skap­legt veður. Slíkar álykt­anir eru í besta falli ábyrgð­ar­lausar, en hins vegar er þó nokk­urt sann­leiks­korn í þessu með kór­ónu­veiruna í vor,“ segir Guð­mundur sem tekur það skýrt fram að viður­eignin við veiruna hafi ekki verið auð­veld og margir eigi um sárt að binda.

Guð­mundur Stein­gríms­son. Mynd / Skjáskot RÚV.

„Almennt var þó talið að Íslend­ingar hefðu sloppið vel. Ég held að með nokk­urri vissu megi halda því fram að mars og apríl séu frekar til­komu­litlir milli­bils­mán­uðir á Íslandi. Vetur að hætta, en þó ekki. Slabb og drulla. Vor að koma, en er þó ekki komið. Árs­há­tíðir búnar. Lík­ams­rækt­ar­á­tök að renna út í sand­inn. Fólk ekki orðið besta útgáfan af sjálfu sér. Ég held þess vegna, bæði af veð­ur­fars­legum og félags­legum ástæðum, hafi mörgu fólki þótt það hreini­lega ágætt að fá smá tíma heima hjá sér í þessa tvo mán­uði. Hætta við plön. Pústa. Vinna í maga­vöðv­unum. Blása af ferm­ing­ar­veislur. Byggja pall. Fara í nafla­skoðun. Vera í nátt­föt­unum. Af tali fjöl­margra hef ég merkt að fólk jafn­vel sakni þessa tíma­bils. Þetta hafi verið svo ágætt. En annað var líka áber­andi. Alltaf var viss til­hlökkun fyrir hendi. Sumarið kemur, sagði fólk. Þá verður gaman,“ segir Guð­mundur og bætir við:

„Og það kom líka. Partí fóru fram. Nánast óbæri­leg félags­leg pressa mynd­að­ist á lands­menn alla um að keyra austur til að skoða Stuðla­gil. Allir voru á ein­hverjum tíma­punkti í Vök við Egils­staði, virð­ist vera. Sumarið var sem sagt skemmti­legt. Ísland út af fyrir okkur. Og svo heppi­lega vildi til fyrir Íslend­inga, þá lukk­unnar pamfíla, að vírus­inn dró sig í hlé um stund­ar­sakir.“

„Vírusinn veit ekki úr hverju við erum gerð.“

Nú segir Guð­mundur allt annan veru­leika uppi á ten­ingnum þegar þriðja bylgjan í bylgju­lest­inni mætti til leiks. Hann vitnar til frægra orða úr sjón­varps­þátta­ser­í­unni Game of Thrones. „Veturinn er að koma. Ég man eftir síð­asta jan­úar. Þá dundu á okkur lægð­irnar. Maður var orð­inn sam­an­herptur af veð­ur­barn­ingi, eins og síð­asti ábú­andi í afskekktum dal við heims­skauts­baug. Maður gegn veðri í myrkri. Inn í þetta siglum við nú og ekk­ert sumar í nánd. Spurn­ingar blasa við og þær eru aðkallandi: Munum við mygla? Munum við tryll­ast? Munum við síð­hærð og óklippt fara í hár saman? Þetta er sem sagt lang­hlaup, en ekki sprett­hlaup, þessi óskundi. Ég held að sá veru­leiki sé að síast inn. Aftur erum við heima. Náttföt. Fjar­fundir,“ segir Guð­mundur sem segir að kór­óna­veiran sé í þetta sinn að leggja fyrir okkur sam­fé­lags­legt próf.

„Að halda í góða skapið. Hún ætlar að herja á okkur enn um sinn, gera suma fár­veika, aðra ekk­ert veika, pirra okkur, etja okkur saman, stía okkur í sundur, hafa af okkur manna­mót og jafn­vel lífs­við­ur­væri, troða okkur mjút­uðum í Zoom og láta okkur með öllum sínum belli­brögðum falla í þá freistni að brjálast. En við skulum ekki gera það. Vírusinn veit ekki úr hverju við erum gerð. Langur vetur? Iss piss. Sama hvað hver segir. Það mun koma sumar. Þessu mun linna. Og þá verður þessi vírus aðeins ein opna í sögu­bókum og við marg­falt sterk­ari, reynsl­unni rík­ari og ham­ingju­sam­ari. Með slétta maga­vöðva og nýjan pall. Búin að horfa á alla sjón­varps­þætti heims­ins og mastera súr­deigið. Éttu það, COVID,“ segir Guð­mundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi