Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og sósíalist, segir ekkert eðlilegt við hvernig komið er fyrir gamla Myndlista- og handíðaskólanum við Skipholt 1. Síðar var Listaháskólinn þar til húsa. Húsið hefur staðið tómt í fleiri ár og tala nágrannar um húsið sem svartan blett á hverfinu.

Gunnar Smári segir þetta sé einfaldlega skemmdaverk og það sé ein ástæða fyrir því að ekkert sé gert við því; eigandinn er Kjartan Gunnarsson, fjárfestir og fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Gunnar Smári segir nauðsynlegt að taka á svona verktakabraski.
„Síðan eru liðin mörg ár og enn stendur húsið autt. Af hverju eru ekki komin lög um svona verktakabrask og skemmdarverk í borgarlandslaginu, hvers vegna eru svona hús ekki tekin af eigendum sínum og komið til þeirra sem vantar húsnæði? Kannski liggur svarið í því hver eigandinn er. Eins og aðrir slíkir er þessi innvígður og innmúraður klíkubróðir,“ skrifar Gunnar Smári á Facebook.
Hann deilir svo frétt mbl.is frá árinu 2016 þá var stefnt á að opna þar hótel. Eflaust verður lítið úr því nú. Einn maður spyr Gunnar Smára hvort Kjartan þurfi ekki að greiða fasteignagjöld og því svarar hann svo: „Örugglega. Ætli bankinn borgi ekki. Þetta er ekki hús heldur businessplan, sem bankinn fjármagnar“.































Athugasemdir