Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lögreglumenn í uppreisn með fánana: „Greinilega eitthvað mikið að hjá lögreglunni“

Lögreglumenn í uppreisn með fánana: „Greinilega eitthvað mikið að hjá lögreglunni“

Guð­mundur Fylk­is­son, aðal­varð­stjóri hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Hafn­firð­ingur árs­ins 2018, er lík­lega á meðal vin­sælli lög­reglu­þjónum lands­ins. Hann hefur bjargað ótal börnum úr helj­ar­g­reipum en und­an­farin ár hefur hann einn síns liðs, séð um leit af börnum sem strjúka að heiman. Í fyrra­dag skipti hann út for­síðu­mynd sinni á Facebook og varð einn af alræmdu fánum lög­regl­unnar fyrir val­inu, íslenski fán­inn nema drunga­legri og  svart­hvítur.

Með þessu er Guð­mundur að bregð­ast við máli lög­reglu­konu sem var ljós­mynduð með þrjá fána á hnífa­vesti sem eru tengdir öfga­hópum og hat­urs­hreyf­ingum. Myndin var þriggja ára en fór í dreif­ingu eftir að Morg­un­blaðið not­aði hana á ný. Umrædd lög­reglu­kona, Aníta Rut Harð­ar­dóttir varð­stjóri, sagði í við­tali við Vísi í gær að henni sárn­aði að vera kölluð nýnas­isti en varði þó fán­ana af krafti. Þar kemur fram að fleiri lög­reglu­menn hafi gert það sama og Guð­mundur.

Þessi gjörn­ingur Guð­mundar hefur vakið hörð við­brögð í athuga­semdum en lík­lega eru fleiri sem styðja Guðmund. Sumir stuðn­ings­menn hans virð­ast starfa hjá lög­regl­unni.  Af því að marka þá er ekki ein­hugur meðal lög­reglu­manna hvað þetta varðar. Það segir sína sögu að hátt­settur maður hjá lög­regl­unni sýnir sam­stöðu svo opin­ber­lega.  Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra er þó æðsti yfir­maður Guð­mundar og seg­ist hún ætla taka hart á mál­inu.

Það er annar rík­is­starfs­maður sem segir Guðmundi mest til synd­anna, Gísli Rúnar Gíslason, yfir­maður rann­sókn­ar­deild toll­stjóra. Hann skrifar: „Sæll Gummi, ég vildi bara benda á reglu­gerðir nr 1151 og 1152 frá 2011 um ein­kenn­is­merki lög­reglu og ein­kenn­is­fatnað lög­reglu og þá sér­stak­lega 1. máls­lið 1. mgr. 16. gr. reglu­gerð­ar­innar nr. 1152/2011 þar sem segir að ein­kenn­is­fatn­að­ur­inn sé hluti af ásýnd lög­reglu gagn­vart almenn­ingi.“

Gísli Rúnar segir þessa hegðun lög­regl­unnar ekki ganga upp. „Því eiga engin merki heima á ein­kenn­is­fatn­aði lög­reglu önnur en þau sem reglu­gerð­irnar kveða á um og allra síst umdeild merki. Allur almenn­ingur á að geta treyst lög­regl­unni og allt sem er fallið til þess að draga úr því trausti á ekki heima á ein­kenn­is­fatn­aði lög­reglu eða öðrum fatn­aði sem þeir klæð­ast við sín störfm“ segir Gísli Rúnar.

Einn þeirra sem gagn­rýnir við­brögð lög­regl­unnar í heild sinni er Eiríkur Rögn­valds­son, pró­fessor emeritus í íslenskri mál­fræði. Hann segir skilj­an­legt að þeir hafi ekki áttað sig á merk­ingu fán­anna en nú sé búið að segja þeim það. Því skjóti skökku við halda áfram að verja notkun þeirra. Hann segir á Facebook og deilir fyrr­nefndri frétt Vísis:

„Kommon, það er marg­búið að koma fram fyrir hvað þessir fánar standa. Látum hana njóta vafans og trúum því að hún hafi ekki vitað það fyrir, en það er alla­vega búið að segja henni það núna. Samt segir hún „Þessir fánar eru ekki slæmir, það er alveg á hreinu“ og að hún myndi aldrei „taka þátt í ljótum leik sem þeim að bera fána sem koma slíkum skila­boðum á fram­færi“ og að hún skammist sín ekki fyrir fán­ana.

Svo segir hún „Punisher-fáinn, ef hann stuðar fólk tek ég hann niður.“ Í fyrsta lagi hefur komið mjög skýrt fram að hann stuðar fólk, og í öðru lagi er yfir­stjórn lög­regl­unnar búin að segja mjög skýrt að öll merki á lög­reglu­bún­ingum séu bönnuð. Er ekki í lagi með fólk? Það er greini­lega eitt­hvað mikið að hjá lög­regl­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi