Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Móðir minnist sonar síns sem lést í Mexíkó: „Tár­in flæða að skrifa þessi orð, elsku Atli“

Móðir minnist sonar síns sem lést í Mexíkó: „Tár­in flæða að skrifa þessi orð, elsku Atli“

Móðir Atla Þórs Ólafs­sonar minn­ist sonar síns í dag en hann lést í Mexíkó í síð­asta mán­uði. Hann var þar búsettur und­an­farin þrjú ár ásamt þar­lendri unn­ustu sinni. Atli Þór var 36 ára gam­all er hann lést.

Atla Þór er minnst í Morg­un­blað­inu í dag. Þar segir móðir hans, Brynja Hösk­ulds­dóttir, það þyngra en tárum taki að skrifa minn­ing­ar­orð um son sinn. „Elsku fal­legi dreng­ur­inn minn. Það er meira en tár­um taki að setj­ast niður og skrifa minn­ing­ar­orð um þig. Þú þessi góði dreng­ur sem mátt­ir ekk­ert aumt sjá, sama hvort það voru menn eða dýr. Það var alltaf sterk­ur streng­ur á milli okk­ar. Þú sagðir oft að ef eitt­hvað kom upp á hjá þér brást það ekki að sím­inn hringdi og mamma var í sím­an­um. Ég fann á mér ef þér leið illa, þýddi ekk­ert að leyna mig því. Svona vor­um við elsku karl­inn minn. Ég á svo góðar minn­ing­ar um þig sem ég geymi í hjarta mínu. Vona að þú sért sátt­ur og líði vel. Elska þig,“ segir Brynja.

Atli Þór fædd­ist 22. apríl á sjúkra­hús­inu á Ísafirði. Hann lést í Mexíkó 18. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Atli átti tvær systur, þær Hjördísi Ernu og Írisi Ösp. Síðustu ár hafði hann verið lengi búsettur erlendis, í Danmörku, á Spáni og nú síð­ast í Mexíkó frá árinu 2017.

Atli bjó síð­ustu ár í Mexíkó. Mynd / Skjáskot Facebook.

Áður en hann flutti til Mexíkó bjó Atli Þór um hríð á Íslandi. Þess minn­ist Hrefna frænka hans. „Símtal snemma á laug­ar­dags­morgni í sept­em­ber líður ekki úr minni. Að fá þær fréttir að Atli væri lát­inn. Elsku Atli sem mér þykir svo óskap­lega vænt um, svo hlýr og hlát­ur­mild­ur, hann hafði svo inni­leg­an og smit­andi hlát­ur. Ég er búin að vera í lífi hans frá því hann fædd­ist, auð­vitað mis­mikið eins og geng­ur. Við oft hvort í sínu land­inu, hann bú­inn að búa í Dan­mörku, Spáni og nú síð­ast í Mexí­kó. Minn­ing­arn­ar streyma fram. Dag­ur­inn sem hann fædd­ist sem bar upp á páska­dag það árið. Hon­um fannst spenn­andi að gista hjá okk­ur Sigga, þótt við byggj­um þá heima hjá mömmu og pabba. Hann gat verið frek­ar fyr­ir­ferðar­mik­ill þegar hann svaf, kom fyr­ir að Siggi flúði um miðja nótt,“ segir Hrefna og bætir við:

„Spán­ar­ferðin þegar ég og mamma kom­um þangað. Hann sner­ist í kring­um okk­ur. Þegar Spán­ar­ferðin var í und­ir­bún­ingi spurði ég Atla hvað hann lang­aði í frá Íslandi. Hann var ekki lengi að hugsa sig um, rúg­brauð, mar­in­eraða síld og mat­ar­kex. Hann vant­aði sár­lega mat­ar­kex, það sem hann ljóm­aði þegar ég kom með þetta. Hann gaf sko eng­um með sér, þetta átti bara hann. Tár­in flæða að skrifa þessi orð, elsku Atli, ég trúi að þú sért kom­inn á góðan stað, um­vaf­inn fólk­inu okk­ar sem þú ert bú­inn að sam­ein­ast í sum­ar­land­inu.“

Friðrik Hagalín Smára­son minn­ist góðs vinar síns með fal­legum orðum. „Ég trúi þessu varla enn þá. Lang­ar svo mikið til að hafa sam­band við þig en get það ekki, því nú er það orðið of seint. Atli var góður vin­ur og á milli okk­ar voru alltaf sterk­ar taug­ar. Þó ólík­ir vær­um var sam­band okk­ar alltaf sterkt. Hann átti sér stað í hjarta mínu og ég er viss um það hafi verið gagn­kvæmt. Já, Atli var svo sann­ar­lega traust­ur vin­ur. Við áttum mjög gott tíma­bil þegar við fórum báðir í AA og hug­uðum mikið að and­legum mál­efnum, tíma­bil sem mót­aði mig og gerði að þeim manni sem ég er í dag. En því miður féllst þú aftur og þá varð bara ekki aftur snúið. Þú fluttir frá Ísafirði til Reykja­víkur, til Dan­merkur, Barcelona, aftur til Reykja­víkur og end­aðir svo í Mexíkó. Þú naust þín vel á nýjum stöðum en svo fljót­lega virt­ist allt fara í kalda­kol,“ segir Friðrik sem segir marga munu sakna vinar síns.

„Atli var alltaf í góðu skapi, sæt­ur og hress. Maður sem lifði fyr­ir líð­andi stundu. Þess­ir eig­in­leik­ar gerðu hann afar kven­sam­an. Hann átti marg­ar kær­ust­ur og nokkr­ar vin­kon­ur í gegn­um tíð­ina og marg­ar þeirra syrgja hann í dag. Nú­ver­andi kær­asta hans heit­ir Hedna Gal. Vil ég sér­stak­lega votta henni mína innstu samúð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi