Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðrún yfirlæknir á sóttvarnarsviði jarðsungin í dag: „Að mamma sé farin er svo ólýsanlega sárt“

Guðrún yfirlæknir á sóttvarnarsviði jarðsungin í dag: „Að mamma sé farin er svo ólýsanlega sárt“

Guðrún Sig­munds­dóttir, doktor í smit­sjúk­dóma­lækn­ingum og yfir­læknir á sótt­varn­ar­sviði emb­ættis Land­læknis, verður borin til grafar í dag. Hún lést langt fyrir aldur fram á heim­ili sínu eftir erf­iða bar­áttu við krabba­mein 27. októ­ber síð­ast­lið­inn, aðeins 59 ára að aldri. Guðrún gegndi lyk­il­hlut­verki í bar­átt­unni við Covid-19 hér á landi.

Guðrún ólst upp í Voga­hverfi og síðar á Sel­tjarn­ar­nesi. Hún lauk stúd­ents­prófi frá MR og emb­ætt­is­próf í lækn­is­fræði frá HÍ. Þaðan hélt hún í fram­halds­nám í smit­stjúk­dómum og sýkla­fræði í Svíþjóð. Þar varði hún einnig dokt­ors­rit­gerð sína í smit­sjúk­dómum árið 2010. Eftir sér­námið starf­aði Guðrún sem sér­fræð­ingur og yfir­læknir á rann­sókn­ar­stofu Land­spít­al­ans og hjá emb­ætti Land­læknis. Hún tók virkan þátt í vís­inda­starfi og skrif­aði fjöl­margar greinar um smit­sjúk­dóma og far­alds­fræði þeirra.

Hólm­fríður Gylfa­dóttir lyfja­fræð­ingur minn­ist móður sinnar í hjart­næmri minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu í dag. Þar segir hún móður sína hafa kennt sér svo ótrú­lega margt. „Und­an­far­inn mánuð hef ég gengið í gegnum mik­inn missi. Með aðeins þriggja vikna milli­bili missti ég háaldr­aða móð­ur­ömmu mína og í kjöl­farið 59 ára móður mína eftir bar­áttu við erfitt krabba­mein. Það er þung­bært að horfast í augu við þá stað­reynd, mamma átti ekk­ert að fara svona snemma. Að mamma sé farin er svo ólýs­an­lega sárt, hún var mín stoð og stytta í einu og öllu og hefur alltaf verið mér svo dýr­mæt. Ekki datt mér annað í hug en að hún næði háum aldri því hún hugs­aði alltaf svo vel um sig, bæði hvað varðar matar­æði og hreyf­ingu,“ segir Hólm­fríður.

Með frá­falli Guðrúnar hefur Ísland misst einn af færs­ustu sér­fræð­ingum sínum á sviði sótt­varna en hún gegndi lyk­il­hlut­verki við gerð við­bragðs­á­ætl­ana sem voru þunga­miðjan í við­brögðum við Covid-19. Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir syrgir góðan sam­starfs­mann. „Gunna var góður starfs­maður, vel að sér í fræð­unum, atorku­söm og ósér­hlífin. Mestu kostir Gunnu voru hennar mann­lega hlýja, glað­værð og jákvæðni. Alltaf reyndi hún að leysa mál með mála­miðl­unum en gat þegar það átti við verið ákveðin og hélt sínum hlut. Síðustu árin voru Gunnu erfið eftir að sjúk­dóm­ur­inn sem varð henni að ald­urtila tók að láta á sér kræla. Hún tók hins vegar örlögum sínum af miklu æðru­leysi og lýsandi fyrir hana var síð­asta sam­tal okkar þar sem hún baðst afsök­unar á því að hafa ekki getað tekið meiri þátt í bar­átt­unni við COVID-19. Ég svar­aði að hennar þáttur í öllum und­ir­bún­ingi og vinn­unni á meðan hennar naut við hefði verið ómet­an­legur,“ segir Þórólfur.

„Núna stöndum við fjöl­skyldan eftir í tóma­rúmi og sting­andi sorg“

Hólm­fríður minn­ist þegar þegar Guðrún móðir hennar lenti í alvar­legu bílslysi fyrir þremur árum. Ári síðar komu fylgddi í kjöl­farið áfallið, erfið krabba­meins­grein­ing. „Eftir öll þessi áföll stóð þessi magn­aða fyr­ir­mynd mín alltaf upp og stapp­aði í mig stál­inu þegar ég var hvað hrædd­ust. En að lokum varð þessi versti ótti minn því miður að veru­leika. Núna stöndum við fjöl­skyldan eftir í tóma­rúmi og sting­andi sorg. Þrátt fyrir alla þessa erf­ið­leika er hug­ur­inn þó furðu fljótur að gleyma því slæma og draga upp það góða. Góðu minn­ing­arnar eru svo ótal­margar, þökk sé mömmu og pabba. Mamma hefur mótað mig til fram­búðar. Þeir eig­in­leikar sem hún hafði og gildin sem hún kenndi mér eru að hjálpa mér að takast á við þessa erf­iðu sorg, hún er ljósið mitt í myrkr­inu,“ segir Hólm­fríður.

Alma Möller land­læknir segir skarð fyrir skildi hjá emb­ætt­inu eftir frá­fall Guðrúnar. „Guðrún hóf störf hjá emb­ætti land­læknis fyrir tutt­ugu árum og var það stofn­un­inni mikið happ. Hún var ein­stakur fag­maður enda vel menntuð í smit­sjúk­dóma­lækn­ingum og með dokt­ors­próf á því sviði. Guðrún var gáfuð kona, fjöl­fróð og gaman að spjalla við hana um heima og geima. Þau lýs­ing­ar­orð sem sam­starfs­fólk taldi upp á minn­ing­ar­stund voru að Guðrún var hlý, traust, sam­visku­söm, úrræða­góð, rétt­sýn og for­vitin um aðra á jákvæðan hátt. Hún hafði góða nær­veru, var sposk, brosmild, með gott skop­skyn og öll munum við minn­ast smit­andi hlát­urs­ins,“ segir Alma og bætir við um mik­il­vægi Guðrúnar heit­innar í bar­átt­unni við Covid-19:

„Þegar far­aldur COVID-19 skall á stóð Guðrún í stafni með sótt­varna­lækni og sam­starfs­fólki enda hafði hún tekið þátt í að þróa við­bragðs­á­ætl­anir og verk­ferla. Henni var fengið það vanda­sama hlut­verk að leiða vinn­una þegar fyrstu til­fellin greindust og sem svo varð að vinnu rakn­ingateymis. Hún tók þátt í að skapa gagna­grunn um sjúk­dóm­inn og að koma á lagg­irnar heima­síð­unni covid.is. En svo tók sjúk­dóm­ur­inn sig upp og Guðrún varð frá að hverfa. Hún reyndi þó að lið­sinna þar til starfs­þrekið þraut.“

„Guðrún var gáfuð kona, fjöl­fróð og gaman að spjalla við hana um heima og geima. Hún var ein­stakur fag­maður enda vel menntuð í smit­sjúk­dóma­lækn­ingum.“

Guðrún setti fjöl­skyld­una ávalt í for­gang segir Hólm­fríður en á sama tíma hafi hún náð að vera mjög ábyrgð­ar­full í starfi sínu. „Hún var glað­lynd, heið­ar­leg, dríf­andi, eld­klár og hvetj­andi. Hún þekkti mig svo vel, oft jafn­vel betur en ég þekkti sjálfa mig og vissi alltaf þegar eitt­hvað var að. Mamma veit og ég lof­aði henni að ég mun standa stöðug með báða fætur á jörð­inni eftir allt saman, því þannig ól hún mig upp. Ég mun alltaf vera stolt og þakk­lát fyrir það að vera dóttir hennar. Við sem fengum að kynn­ast henni erum gríð­ar­lega heppin, hvað þá að fá að eiga hana sem mömmu. Eftir allt sem við höfum gengið í gegnum var ekk­ert ósagt okkar á milli, hún veit að ég veit og ég veit að hún veit. Nú eru veik­indin ekki hluti af okkar lífi lengur, en mamma mun alltaf eiga risa­stóran stað í mínu hjarta. Takk fyrir alla gleð­ina elsku mamma,“ segir Hólm­fríður.

Útför Guðrún fer fram í Dóm­kirkj­unni í dag kl. 11:00. Athöfn­inni verður streymt og hlekk­inn getur þú nálg­ast hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi