Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Köld kveðja frá Air Iceland Connect: „Þú átt fluginneign sem er útrunnin“

Köld kveðja frá Air Iceland Connect: „Þú átt fluginneign sem er útrunnin“

Neyt­enda­vaktin er á per­sónu­legum nótum í dag og segir frá eigin upp­lifun af við­skiptum sínum við Air Iceland Connect. Í síð­ustu viku ætl­aði ég að panta mér far frá Reykja­vík til Egils­staða og nota til þess 2 flug­leggi sem ég átti eftir af flug­kort­inu mínu. Maðurinn minn á 5 leggi. Þetta fór ekki betur en svo að þegar ég fór inn á flug­inn­eigna­list­ann blöstu við mér þessi skila­boð:

„Þú átt flug­inn­eign sem er útrunn­inn.“

Mín inn­eign rann sem sagt út 09.08.20 og inn­eign manns­ins míns rann út 27.09.20.  Við höfum nokkrum sinnum keypt flug­inn­eign hjá flug­fé­lag­inu en aldrei áttað okkur á því að hún rynni út á svo skömmum tíma. Eftir að COVID hóf inn­reið sína í landið hefur ferðum okkar milli lands­hluta fækkað vegna til­mæla sótt­varna­yf­ir­valda um að halda kyrru fyrir. Fyrir utan það er tak­markað sæta­fram­boð á flug­inn­eignum þannig að til að nýta flug­kort þá þarf að plana ferðir fram í tím­ann, sem sjaldan hentar í nútíma­sam­fé­lagi. Hægt er að nýta inn­eign­ina upp í dýr­ari flug­miða – en þá er afslátt­ur­inn fyrir bí. Ekki hjálpar til að Air Iceland Connect er eina flug­fé­lagið sem flýgur Reykja­vík-Egils­staði og því engin sam­keppni.

Flug­inn­eign (6 flug­leggir) kost­aði árið 2018 –  77.400 kr. og kostar nú 80.400 kr.

Ég tók upp tólið og hringdi í flug­fé­lagið:

„Það er ekk­ert mál að fram­lengja gidis­tím­ann, sendu bara tölvu­póst á xxx og þau græja þetta í hvelli,“ svar­aði indæll ungur maður. Ég náði þó ekki net­fang­inu og leit­aði eftir því að heima­síð­unni – án árang­urs. Ég hringdi aftur og fékk það upp­gefið og sendi póst. 7 tímum síðar hafði ég ekki fengið nein við­brögð, próf­aði þá aftur að hringja. Kom í ljós að mér hafði verið gefið upp vit­laust net­fang. Tæpum sóla­hring síðar fékk ég svarið:

„Sæl Berglind,

Flug­frelsin ykkar beggja hafa verið fram­lengd um 6 mán­uði og gilda nú fram í mars 2021.“

Þetta gat ég ekki sætt mig við svo ég sendi annan póst:

„Takk fyrir svarið. Við sjáum ekki fram á að nýta þetta nú í Kófinu þar sem til­mæli eru um að fólk sé ekki að ferð­ast á milli lands­hluta. Geturðu fram­lengt þetta meira?Svo spyr ég bara um við­skipta­hætt­ina. Þegar ég keypti Flug­frelsi átt­aði ég mig alls ekki á því að þetta myndi renna út. Ég hefði amk haldið að það væri að lág­marki 4 ára gild­is­tími. Sbr:

https://www.neytendastofa.is/fyrirtaeki/orettmaetir-vidskiptahaettir/skilarettur/

“Kveðja,Berglind.Svar barst:

„Sæl,

Ég fram­lengdi þetta um Ár“

Engin svör við spurn­ingu minni um hvort þetta væru eðli­legir við­skipta­hættir.

Ég ákvað að bera þetta mál undir Neyt­enda­sam­tökin. Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Neyt­enda­sam­tak­anna hafði þetta að segja:„Við höfum verið að berj­ast gegn þessum stutta gild­is­tíma á gjafa­bréfum almennt en ekki síst hvað varðar flug. Við höfum ekki enn fengið kvörtun vegna Flug­fé­lags Íslands en þarna gilda sömu lög­mál. Tveggja ára gild­is­tími er of stuttur að okkar mati. Vanda­málið er að það gilda engin lög eða reglur um gild­is­tíma gjafa­bréfa og aldrei hefur reynt á slíkt mál fyrir dómi. Við lítum hins vegar svo á að þarna sé um að kröfu að ræða og almennur fyrn­ing­ar­frestur á kröfum er fjögur ár.“Já kæru neyt­endur, við þurfum bara alltaf að vera á tánum og megum aldrei sofna á verð­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi