Inga Birna Ragnarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri WOW, segir það skammarlegt hvernig Íslendingar koma fram við eldri borgra á hjúkrunarheimilum. Í pistli sem birtist í Víkurfréttum kallar Inga heimilin biðstofur dauðans en tekur þó fram að það sé ekki við starfsfólk að sakast. Inga Birna segist hafa grátið þegar hún sá í hvaða aðstæðum amma hennar heitin bjó í.
„Ég las mjög áhrifamikla grein í vikunni sem skrifuð var árið 2017. Þar lýsir kona síðustu mánuðum í lífi foreldra sinna, þeim mánuðum sem þau eyddu á biðstofu dauðans eins og hún kallar þá. Móðir hennar dvaldi síðustu mánuði í lífi sínu á hjúkrunarheimilinu á Vífilstöðum en pabbi hennar náði aldrei að komast á hjúkrunarheimili, biðin var of löng. Senda átti hann á hjúkrunarheimili á Akranesi þar sem ekkert pláss var í Reykjavík. Hann lést því á Landspítalanum. Ég fékk smá hroll og tár í augun við lesturinn. Það eru þrjú ár síðan greinin var skrifuð og nákvæmlega ekkert virðist hafa þokast í réttari átt í málefnum eldri borgara þó loforðin liggi sannarlega alltaf í loftinu,“ segir Inga.
Hún lýsir svo heimsókn sinni til ömmu sinnar. „Mín fyrsta reynsla af hjúkrunarheimili var þegar móðuramma mín flutti á hjúkrunarheimilið Garðvang í Garðinum í kringum aldamótin. Garðvangur þótti á þessum tíma ansi nútímalegt í nálgun sinni á þeirri þjónustu sem það veitti heimilisfólki. Gert var út á að hafa eitthvað fyrir stafni fyrir gamla fólkið, það var vel hugsað um það og því virtist ekki líða illa. Amma var orðin mjög veik, var með hægfara heilablæðingu. Hún gat ekki búið einsömul en líkami hennar var samt sem áður í góðu ásigkomulagi. Á Garðvangi var hún sem betur fer ein í herbergi. Mamma og systkini hennar gerðu allt til þess að vistarverur hennar væru með besta móti, keyptu ný húsgögn og reyndu að gera herbergið heimilislegt. Ég man alltaf eftir fyrstu heimsókn minni til ömmu á Garðvang. Mér vöknaði um augun. Hvert var ég komin og af hverju var amma mín komin hingað? Mér fannst þessi staður eitthvað sem ég gæti aldrei hugsað mér að búa á. Fannst herbergið lítið og lyktin vond. Amma lifði ekki lengi eftir að hún flutti á Garðvang. Ég hafði alltaf á tilfinningunni að henni hafi hrakað mjög fljótt við að búa í þessum aðstæðum. Biðstofu dauðans.“
Inga fer svo yfir fleiri sögu fleiri fjölskyldumeðlima sem hafa þurft að búa á svona stofnunum. Að lokum segir hún þetta ekki ganga lengur. „Erum við endalaust að vinna í því að gera þá ríku ríkari eða ætlum við að búa til öflugt velferðarsamfélag þar sem það er hreinlega öfundsvert að eldast? Mamma mín er 72 ára í dag. Í mörg ár hefur hún talað um það og tekið af mér loforð um að ég komi henni aldrei fyrir á hjúkrunarheimili. Hún er brennd fyrir lífstíð. Hún er ekki að gera kröfu um að ég hugsi um hana en hræðist mest af öllu að daga uppi á hjúkrunarheimili á Íslandi. Trúið mér, ég mun aldrei senda móður mína á hjúkrunarheimili eins og staða þeirra er í dag, aldrei,“ segir Inga og bætir við það:
„Ég spyr, af hverju erum við á sama stað ár eftir ár í þessum málum, af hverju gerist ekkert? Í þeirri efnahagskreppu sem nú blasir við veit ég að þessi mál aldraðra og veikra eiga eftir að fara enn neðar á listann hjá stjórnvöldum en ég bind vonir við að það birti til og við notum tækifærið til að gefa til baka og leyft elsta fólkinu okkar að eyða síðustu æviárunum á fallegum og góðum stað þar sem vel er hugsað um það. Við þurfum klárlega að endurhugsa hvernig við skilgreinum hjúkrunar- og dvalarheimili fyrir aldraða, fatlaða og mikið veika einstaklinga. Við erum öll samfélag og þessir einstaklingar eru hluti af því. Heimili þeirra á ekki að vera biðstofa dauðans.





















Athugasemdir