Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brynjar kominn með nóg af sóttvörnum: „Öll gagnrýni kaffærð með hræðsluáróðri“

Brynjar kominn með nóg af sóttvörnum: „Öll gagnrýni kaffærð með hræðsluáróðri“
Brynjar Níelsson

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seg­ist sótt­varn­ar­að­gerðir hér­lendis ekki hafa skilað þeim árangri sem stefnt var að. Þær hafi ein­kennst af óskil­virku alræði og eng­inn Íslend­ingur kjósi að búa í alræð­is­ríki. Með­virkni hans með sótt­varn­ar­að­gerð­unum er hér með lokið.

Þetta segir þing­mað­ur­inn í aðsendri grein á Vísi. Þar seg­ist hann alls ekki vilja gera lítið úr veirunni en að öll gagn­rýni á sótt­varn­ar­að­gerð­irnar sé kaf­færð með hræðslu­á­róðri. „Í alræði hefur ríkið afskipti af öllum þáttum mann­lífs, bæði einka­lífs og opin­bers lífs. Fáir sem taka afstöðu af yfir­vegun og still­ingu kjósa að búa í alræð­is­ríki. Sagan hefur enda sýnt að alræði þrífst ekki nema vald­hafar beiti hræðslu­á­róðri og útskúfun og smánun þeirra sem ekki vilja ganga full­kom­lega í takt,“ segir Brynjar og bætir við:

„Rík­is­valdið hefur stigið stærri skref til alræðis und­an­farna mán­uði en nokkru sinni fyrr í okkar sögu. Reistar hafa verið skorður við hvers kyns manna­mótum nema fámenn­ustu afmælis- og skírn­ar­veislum í heima­húsum. Atvinnu­lífið hefur verið lamað að stórum hluta. Heil­brigt fólk sætir í þús­undum ein­hvers konar stofu­fang­elsi(nefnt sótt­kví) stundum af lít­illi eða engri ástæðu og án nokk­urra raun­hæfra úrræða til að véfengja ákvarð­anir um slíkt. Þeir sem smit­ast sæta ein­angrun lengur en þekk­ist í öðrum löndum. Börn mega ekki leika sér saman eða stunda íþróttir við skipu­lagðar aðstæður. Allir þurfa svo að ganga í takt og við­ur­lögin ef út af bregður er opin­ber smánun. Öll gagn­rýni er kaf­færð með hræðslu­á­róðri. Allt er þetta með ein­dæmum.“

„Alræði þrífst ekki nema vald­hafar beiti hræðslu­á­róðri og útskúfun og smánun þeirra sem ekki vilja ganga full­kom­lega í takt.“

Eftir því sem líður á far­ald­ur­inn er Brynjar sann­færð­ari að hér á landi hafi ekki verið brugð­ist rétt við í bar­átt­unni við veiruna. Þegar fíl­hraustir tog­ara­sjó­menn smit­uð­ust af veirunni sé hrópað eftir lög­reglu­að­gerðum en það megi alls ekki gagn­rýna sótt­varn­ar­yf­ir­völd eða yfir­menn Land­spít­ala. „Þessi veira er ekki slíkt neyð­ar­á­stand sem rétt­læti að setja blóð­tappa í þjóð­ar­lík­amann með svona almennum og íþyngj­andi tak­mörk­unum. Sá blóð­tappi mun hafa miklu meiri áhrif á á líf okkar og heilsu til lengri tíma. Sjón­ar­mið eins og þessi sem hér eru viðruð eru gjarnan afgreidd með vísan til fávisku eða þekk­ing­ar­leysis. Beitt er og jafn­vel mis­beitt mis­kunn­ar­laust töl­fræði um fjölda þeirra sem mun deyja og veikj­ast illa verði ekki farið í allar þessar aðgerðir. Síðan er málum stillt þannig upp að þeir sem efist um rétt­mæti aðgerða yfir­valda séu að dæma fólk til dauða eða að minnsta kosti sama um líf þess og heilsu,“ segir Brynjar.

Eins og áður sagði er með­virkni Brynjars með sótt­varn­ar­að­gerð­unum lokið. „Ég vil búa í frjálsu sam­fé­lagi. Til að tak­marka frelsið svona mikið þarf meira neyð­ar­á­stand en þessa veira veldur og það sem er enn mik­il­væg­ara þá mega tak­mark­anir og þving­anir ekki hafa verri áhrif á líf okkar og heilsu til lengri tíma en veiran sjálf. Mér finnst þetta sjón­ar­mið rök­rétt og eðli­legt og þurfi ekki að kalla á útskúfun eða aðra opin­bera smánun,“ segir Brynjar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi