Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Nokkuð viss um að eitthvað grunsamlegt hafi gerst þótt ég geti ekki staðfest það með neinum hætti“

Þrátt fyrir ungan aldur hefur margt mis­jafn­lega þrosk­andi drifið á mína daga. Eitt þess­ara atvika stendur fremur fast í mér, enda ekki skrýtið. Ég fór út að skemmta mér með vin­konum en af ein­hverjum ástæðum hefur stór hluti kvölds­ins ger­sam­lega þurrkast úr minni mínu. Ég var ekki drukkin þetta kvöld og skil ekki enn hvað veldur. Það versta er þó að opin­berir aðilar sem að máli mínu komu hafa sýnt mér mikla lít­ils­virð­ingu.

Helgi eina í ágúst síð­ast­liðnum hélt ég á djam­mið með vin­konum mínum. Fram undan var skemmti­legt kvöld í góðra vina hópi. Við byrj­uðum á að fara á ónefndan skemmti­stað, fórum á bar­inn og fengum okkur að drekka, og fundum okkur síðan borð á neðri hæð stað­ar­ins. Fín stemmn­ing var í hópnum, enda ekki annað hægt, gott veður og engin ástæða til að vera í vondu skapi. Við ákváðum nú að fara aðeins út á dans­gólfið áður en við færum að færa okkur á aðra skemmti­staði og döns­uðum í dágóða stund, fengum okkur síðan einn bjór á barnum, settum hann í plast­glas og gengum út.

Þegar komið var að næsta skemmti­stað kom upp svo­lítið vanda­mál. Ég var ekki með skil­ríki og reyndar hinar stelp­urnar ekki heldur en þær komust allar inn en ég stóð ein eftir fyrir utan, ofur­lítið kennd innan um fullt af drukknu og leið­in­legu fólki. Jæja, ég var nú ekk­ert að sýta það heldur ákvað bara að hringja í vin minn og fá hann til að sækja mig og koma með mér heim til tveggja ann­arra vina okkar. Það var auð­sótt og þegar til vin­anna var komið fengum við okkur pítsu, sátum á ver­önd­inni og spjöll­uðum í dágóða stund. Brátt fann ég að ég var orðin þreytt og taldi því að tími væri kom­inn til að fara heim og sofa eitt­hvert vit í koll­inn á mér. Ég og einn þess­ara vina minna pönt­uðum okkur leigu­bíl sem keyrði hann fyrst heim til sín þar sem hann borg­aði það sem komið var á mæl­inn og svo var haldið af stað heim til mín.

Finnst ein á ráfi í Hafnarfirði

Eftir þetta er eins og ein­hver hafi klippt atburða­rás­ina úr hausnum á mér. Ég man ekki nokkurn skap­aðan hlut. Eftir miklar eft­ir­grennsl­anir er það eina sem ég hef getað fundið út og vitað er um ferðir mínar eftir þetta að ég kom heim til mín eitt­hvað eftir hálf­sjö um morg­un­inn, skipti um föt og gerði eitt­hvað fleira sem var flest heimsku­legt. Síðan gekk ég út og tók leigu­bíl suður í Hafn­ar­fjörð. Þar er ég nokkuð viss um að eitt­hvað grun­sam­legt hafi gerst þótt ég geti ekki stað­fest það með neinum hætti því næst þegar ég vissi af mér var ég uppi á spít­ala þar sem verið var að keyra mig í sjúkra­rúmi úr rann­sókn hjá Neyð­ar­mót­tök­unni.

Sú rann­sókn leiddi í ljós klamydíusmit sem ég kann enga aðra skýr­ingu á en þá að eitt­hvað hafi nú gengið á þetta kvöld. Vanlíðan minni yfir því að vita ekki hvað gerð­ist verður ekki með orðum lýst og því hafði ég sam­band við þá sem ég hafði stundað kyn­líf með fyrir atburð­inn og þeir voru lausir við smitið. Sú stað­reynd að ég man ekki neitt frá þessu kvöldi gerir það að verkum að ég gæti eins verið að skrifa niður frá­sögn ein­hverrar vin­konu minnar eins og að segja ykkur frá atburðum sem hentu sjálfa mig. Því miður er ekki svo.

„Eftir þetta er eins og ein­hver hafi klippt atburða­rás­ina úr hausnum á mér. Ég man ekki nokkurn skap­aðan hlut.“

Helsta ástæðan fyrir því að mig lang­aði til að deila þessu með ykkur er hins vegar sú að ég vil vekja athygli ykkar á því hvernig við­mót maður fær við aðstæður sem þessar. Næstu daga á eftir var ég að reyna að raða brotum kvölds­ins saman í þeim til­gangi að fá ein­hverja heild­ar­mynd á það og í þeirri von að eitt­hvað rifj­að­ist upp fyrir mér. Meðal ann­ars tal­aði ég við vin­konu mína og mömmu hennar en ég hafði látið hringja í þær af sjúkra­hús­inu. Senni­lega hef ég kosið það fremur en að hringja í for­eldra mína því þeim hefði getað brugðið illa. Þær gátu fyllt upp í atburð­ar­rás­ina niður á spít­ala en þar lét ég víst eins og væri ég á lyfjum. Eig­in­lega er það eina skýr­ingin sem ég kann á þessu öllu, að mér hljóti að hafa verið byrlað eitt­hvert eitur, því dag­inn eftir var ég svo fár­veik að ég ældi stöðugt og í nokkra daga á eftir var ég mjög slöpp, lyst­ar­lítil og enn flök­urt.

Ég hringdi einnig á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans til að fá að vita hvernig ég hefði kom­ist þangað og hvers vegna. Á bráða­mót­tök­unni varð fyrir svörum ein­hver sú dóna­leg­asta kona sem ég hef nokkurn tíma talað við. Hún vildi litlar upp­lýs­ingar gefa en til­kynnti mér að lög­reglan í Hafn­ar­firði hefði komið með mig. Ég reyndi að spyrja hana nánar út í þetta en í stað þess að veita mér ein­hver svör hreytti hún í mig að ég ætti að hafa sam­band við lög­regl­una í Hafn­ar­firði. Það var alveg sama hvers ég spurði, þetta var eina svarið sem hún gat gefið. Ég hélt þó að til væru lög í land­inu sem segðu að sjúk­lingar ættu rétt á að fá allar þær upp­lýs­ingar sem í sjúkra­skýrslum þeirra væri að finna.

Lögreglan sýndi ókurteisi og vanvirðingu

Ég fór samt að ráðum þess­arar konu því mér leið, eins og gefur að skilja, hrylli­lega yfir þessu öllu og þráði ekk­ert heitar en að fá ein­hvern botn í þetta mál. Ég hringdi í lög­regl­una í Hafn­ar­firði á þriðju­deg­inum eftir þessa umtöl­uðu helgi. Sá lög­reglu­maður sem hafði farið með mig á bráða­mót­tök­una var ekki við en ég lagði inn skila­boð og bað hann um að hringja til baka. Nokkrum klukku­stundum síðar hringdi hann.

Allan tím­ann sem ég tal­aði við mann­inn leið mér eins og ég væri eitt það lít­il­fjör­leg­asta og við­bjóðs­leg­asta kvik­indi sem mann­kynið hefði upp á að bjóða. Hann tal­aði eins og þetta væri allt mér að kenna og lík­lega væri vart við öðru að búast af mann­eskju eins og mér. Eftir að hafa sýnt mér frámuna­lega mik­inn kulda og lít­ils­virð­ingu end­aði hann sím­talið á að segja mér að þeir hefðu hætt rann­sókn því þeir hefðu ekki haft á neinu að byggja. Hið eina sem þeir sáu athuga­vert var það að nær­bux­urnar mínar voru horfnar. Ég spurði hann nánar út í þetta og vildi m.a. fá að vita hvort það gæfi eitt­hvað til kynna. Hann taldi greini­lega að svo væri ekki því hann sagði að ég hefði trú­leg­ast bara týnt þeim sjálf.

„Á bráða­mót­tök­unni varð fyrir svörum ein­hver sú dóna­leg­asta kona sem ég hef nokkurn tíma talað við. Hún vildi litlar upp­lýs­ingar gefa en til­kynnti mér að lög­reglan í Hafn­ar­firði hefði komið með mig.“

Ég velti því hins vegar fyrir mér hvort lík­leg­ast sé ekki að ég hafi smitað mig sjálf af klamydíu. Flestir vita nú að það er ekki mjög auð­velt þar sem þar er um að ræða sjúk­dóm sem smit­ast við kyn­mök. Augljóst er að eitt­hvað hefur gerst þessa nótt en hvað það var fæ ég senni­lega aldrei að vita með neinni vissu. Sárast er þó að finna hversu mjög ég virð­ist hafa sett ofan í augum opin­berra aðila við þetta. Engu er lík­ara en ég sé í þeirra augum þriðja flokks mann­eskja sem hvorki á skilið kurt­eisi né til­lits­semi. Þið getið ekki ímyndað ykkur hversu mikil reiði hefur safn­ast upp innan í mér vegna þess­ara atburða.

Trúlega verður reiðin alltaf til staðar. Mér finnst óskap­lega sorg­legt að menn sem koma að kyn­ferð­is­brota­málum geti leyft sér að vera svona ónær­gætnir við fórn­ar­lömbin. Ef ég hefði verið mun við­kvæm­ari en raunin er hefði ég hrein­lega brotnað niður. Enn hefur ekk­ert rifj­ast upp fyrir mér af því sem gerð­ist þessa nótt og ég geri ekki ráð fyrir að það muni nokkru sinni verða ljóst. Ég mun hins vegar lengi enn þurfa að bera þessa byrði og það mun taka langan tíma að vinna úr þess­ari erf­iðu reynslu.

Ég vil gjarnan benda lög­reglu og öðrum opin­berum aðilum sem koma að rann­sókn kyn­ferð­is­brota á að þeir verði hrein­lega að til­einka sér smá til­lits­semi gagn­vart fórn­ar­lömbunum þó að málið byggi á litlum sönn­un­ar­gögnum. Fordómar eru enn miklir gagn­vart konum sem lenda í svona aðstæðum og til­hneig­ingin til að ákveða að þær hafi kallað þetta yfir sig rík. Það er ekki langt síðan klæða­burður kvenna var tal­inn geta haft áhrif á nauð­gar­ann og konan hrein­lega byði upp á ofbeldi með flegnum peysum eða stuttum pilsum. Nú á dögum eru þeir til sem telja að konur sem neyti áfengis geti sjálfum sér um kennt þegar eitt­hvað voða­legt hendir þær. Sam­fé­lagið verður hins vegar að læra að ofbeldi er aldrei afsak­an­legt og sá sem beitir ofbeldi er alltaf ábyrgur gerða sinna.

Hægt er að hlusta á Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Storytel. Guðrún Óla Jóns­dóttir, Gógó, blaða­maður hjá Vikunni, les upp lífs­reynslu­sögur sem sendar hafa verið inn í blaðið í gegnum tíð­ina og sög­urnar eru jafn ólíkar og þær eru margar. Ekki missa af því þegar nýr þáttur af Lífs­reynslu­sögum fer í loftið í viku hverri – fylgstu með okkur á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi