Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ársæll vill krossapróf í Leifstöð: „Útlendingar sem vilja vera góðir Íslendingar velkomnir“

Ársæll vill krossapróf í Leifstöð: „Útlendingar sem vilja vera góðir Íslendingar velkomnir“

Ársæll Þórð­ar­son húsa­smiður vill festa kristna trú sem hina einu opin­beru trú sem leyfi­leg verði á Íslandi. Hann segir jafn­framt alla þá útlend­inga sem vilja vera góðir Íslend­ingar vel­komna hingað til lands, aðrir ekki.

Ákveðin skoðun Ársæls kemur fram í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu þar sem hann rifjar upp alla vinnu Þorgeirs Ljós­vetn­inga­goða við inn­leið­ingu kristn­innar. Þar kemur hann meira að segja fram með til­lögu að laga­texta sem stjórn­völd geta nýtt í stað trú­frels­is­á­kvæðis núgild­andi stjórn­ar­skrár­innar. „Það er löngu kom­inn tími til að leið­rétta þau afglöp og setja í stjórn­ar­skrána laga­texta í eft­ir­far­andi dúr: „Kristin trú skal vera ein allra trú­ar­bragða opin­ber trú á Íslandi og gildir þar um sam­þykkt alþingis frá árinu
1000 e.Kr. Öll opin­ber stjórn­sýsla Íslands taki mið af því í lögum lands­ins.“ Stjórn­ar­skrár­á­kvæðið mundi þá einnig varð­veita hina sögu­legu arf­leifð kristni­tök­unnar,“ segir Ársæll og bætir við:

„Þegar sjálf­ráða útlend­ingur leitar hér land­vistar á að trú­p­rófa hann og greina við­horf hans til að aðlaga sig íslenskri menn­ingu“

„Að setja það í lög að trú­frelsi skuli ríkja er illa ígrundað og óþarft ákvæði. Nú eru kristnir menn ofsóttir út um allan heim, mest þar sem guð­leys­ingjar (komm­ún­istar) eða múslimar
ráða ríkjum en líka í löndum þar sem búddistar og hindúar stjórna. Iðkun trúar er marg­breyti­leg og veldur árekstrum, þar þarf skil­grein­ingu. Þegar sjálf­ráða útlend­ingur leitar hér land­vistar á að trú­p­rófa hann og greina við­horf hans til að aðlaga sig íslenskri menn­ingu. Það er hægt að gera með krossa­prófi í flug­stöð.“

Ársæll full­yrðir að útlend­ingar sem vilja ríg­halda í trú sína ganga gegn íslenskum lögum. Þeir eigi því ekk­ert erindi inn í landið. „Sama gildir um þá erlenda sem aðhyll­ast trúpóli­tískar stjórn­mála­stefnur ein­ræð­is­sjón­ar­miða. Útlend­ingar sem hingað vilja flytja
og vilja verða góðir Íslend­ingar með því að gang­ast undir okkar menn­ing­ar­hefðir eiga að vera vel­komnir, aðrir ekki. Íslensk lög byggj­ast á kristnu gildum sem miða að lýð­ræð­is­legum stjórn­ar­háttum, sá menn­ing­ar­arfur er dýr­mæt­ari en svo að honum megi
ógna að óþörfu með því að veita fólki land­vist sem í lík­ing­unni ber með sér riðu­veiki, mæðu­veiki og fjár­kláða sem sýkir þjóð­ina og veldur árekstrum og ófriði,“ segir Ársæll og heldur áfram:

„Við sem veljum að vera sauðir í hjörð góða hirð­is­ins Jesú Krists verðum að standa vörð um ríki hans á Íslandi. Því miður eigum við í höggi við marga óvini í guð­leysi þó ekki bæt­ist við trú­ar­erjur. Úrskurður Þorgeirs forðum er í raun spá­dómur, kynd­ill sem íslenskri þjóð er ætlað að bera inn í fram­tíð­ina svo friður hald­ist í landi okkar. Ég bið Íslend­ingum Guðs friðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi