Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dularfullt smit skólabílstjórans – Ung kona veikist skyndilega – Austfirðingar standa saman

Íbúar Fljóts­dals­hér­aðs eru ugg­andi yfir skyndi­legu smiti skóla­bíl­stjóra Egils­staða­skóla. Aust­ur­land hefur verið það svæði sem hefur sloppið einna best við COVID. Þar hafa menn verið stoltir af því enda sá árangur ekki síst tengdur öfl­ugum vörnum. Fyrr­nefndur bíl­stjóri er ung kona og er ráð­gáta hvernig hún gat smit­ast. Hún hafði ekk­ert ferð­ast og ekki vitað um önnur smit á svæð­inu.

Hlynur Bragason, eig­andi Sæta hóp­ferða, sem sjá um skóla­akst­ur­inn, segir í sam­tali við Mannlíf að sem betur fer þá sé konan ekki mikið veik. Hún sé ein þeirra sem finni ekki til mik­illa ein­kenna. Tugir eru nú í sótt­kví á Aust­ur­landi eftir þetta dul­ar­fulla smit. For­eldrum hefur þó verið sagt að litlar líkur séu á að börnin séu smituð þar sem sótt­varna hafi verið gætt við akst­ur­inn.

Hlynur skrif­aði í gær opið bréf til íbúa á svæð­inu þar sem hann reyndi að kveða niður dap­ur­legar sögu­sagnir. Hann hafi lagt mikla áherslu á sótt­varnir og minnir á að eng­inn ætli sér að veikj­ast. Í Facebook-hópi íbúa skrifar hann:

„Í kjöl­farið á þessu smiti fóru allir okkar bíl­stjórar utan stræt­is­vagna­bíl­stjór­ans okkar, sem engin sam­skipti hefur átt við umrædddan starfs­mann, umsvifa­laust í sjálf­skip­aða sótt­kví og í kjöl­farið í sýna­töku. Allir þeir starfs­menn okkar grein­ast sótt­fríir, en verða samt sem áður áfram í sótt­kví þar til seinni sýna­taka á sér stað næst­kom­andi föstu­dag.

Við vonum að með þessum upp­lýs­ingum skap­ist friður, því miður þá er okkur að ber­ast til eyrna dap­ur­legar athuga­semdir sem engan vegin eiga rétt á sér. Eins og ein­hver sagði „Aðgát skal höfð í nær­veru sálar“ Sýnum frekar sam­stöðu og skiln­ing. ENGINN ÆTLAR að veikj­ast en því miður ger­ist það.“

Aust­firð­ingar hafa aug­ljós­lega tekið þessi skrif til sín því fjöldi manns lýsir yfir sam­stöðu sinni. „Gott að heyra að þú tekur þetta föstum tökum. Manni er alveg ljóst að íbúar hér á Aust­ur­landi taka smit­varnir alvar­lega, enda sést það á smit­tölum. Held að það sé alger óþarfi hjá fólki að gera meir úr þessu en efni standa til og halda áfram að vanda sig í smit­vörnum áfram eins og fram að þessu,“ skrifar Jens nokkur.

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­kona VG, sendir bar­áttu­kveðju austur og skrifar: „Það er svo ótrú­lega mik­il­vægt að standa saman þegar á reynir og elt­ast ekki við að ein­hverjum sé um að kenna. Eins og þú segir þá ætlar eng­inn að veikj­ast en veiru­skratt­inn laum­ast víða. Mik­il­væg­ast að styðja við þá sem veikj­ast eða eru í sótt­hví og það er hægt að gera með ýmsum hætti. Þið hafið staðið ykkur ótrú­lega vel á Aust­ur­landi og þetta frá­vik sýnir bara að sumt ráðum við bara ekki við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi