Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Viðskiptablaðið heldur að foreldar muni eyða fæðingarorlofinu í að spila tölvuleiki

Viðskiptablaðið heldur að foreldar muni eyða fæðingarorlofinu í að spila tölvuleiki

Rit­stjórn Við­skipta­blaðs­ins virð­ist telja að for­eldrar muni eyða auknu fæð­ing­ar­or­lofi í skemmtun og leti. Í það minnsta má lesa það í rit­stjórn­arp­istli blaðs­ins í dag. Nýverið var sam­þykkt að lengja fæð­ing­ar­or­lof í sam­tals tólf mán­uði. Í nafn­lausum skoð­anapistli í Við­skipta­blað­inu í dag er þetta gagn­rýnt og full­yrt að börnin sem orlofið er vegna muni gremj­ast leng­ing orlofs­ins í fram­tíð­inni.

Við­skipta­blaðið sér fyrir sér að for­eldrar muni eyða orlof­inu ýmist á kaffi­húsi eða í tölvu­leiknum FIFA. „Þau hljóta einnig að spyrja for­eldra sína hvort þeim hafi þótt þetta þess virði. Í þeim til­fellum þar sem and­vökunætur voru fáar og allt gekk vel hvort það hafi virki­lega verið þess virði að skuld­setja börnin sín til þess að pabb­inn og mamman hafi eytt stórum hluta orlofs­ins í FIFA 21- 25, málað alla íbúð­ina, end­ur­gert garð­inn, eytt sex mán­uðum á sól­ar­strönd eða dvalið lang­dvölum á kaffi­húsum í mömmu­klúbb­unum og feðra­klúbb­unum,“ segir í Við­skipta­blað­inu.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, gerir grín af þessu í Facebook. Þar segir Sólveig: „Hér er partur af gagn­rýni Við­skipta­blaðs­ins á leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs í 12 mán­uði. Menn­irnir á Við­skipta­blað­inu hafa af því áhyggjur að allt of margir millj­arðar fari í þetta verk­efni og verði til þess að gera stöðu rík­is­sjóðs verri vegna gríð­ar­legrar skulda­söfn­unnar. Í við­leit­ini sinni til að miðla áhyggj­unum til les­enda fara þeir þá athygl­is­verðu leið að útbúa hípó­þetískt vel-mið­aldra barn sem mun árið 2056 krefja aldr­aða for­eldra sína svara um það hvers vegna skattar séu hærri þá en nú. „Hvers­vegna er ég skatt­pínt svo hræði­lega“, mun barnið æpa í upp­námi. „Hver er sagan á bak við þetta við­bjóðs­lega skatta-ofbeldi sem ég verð fyrir? Ég upp­lifi svo mik­inn van­mátt, svo mikið varn­ar­leysi!““

Hún heldur svo áfram: „Og þá munu aldr­aðir for­eldr­arnir svara (full iðr­unar eða köld sem klaki, í sam­ræmi við per­sónu­lega sið­ferð­is­kennd og kannski sam­skipta­sögu barns og for­eldra-teymis; hefur verið mikið um upp­nám og ásak­anir eða hafa sam­skiptin verið sívílíseruð fram að þessu átak­an­lega upp­gjöri?): „Barn, sann­leik­ur­inn er sá að við vildum ein­fald­lega fá tæki­færi til að spila tölvu­leiki á kaffi­húsi á sól­ar­strönd með for­eldra­klúbbnum. Og þessi leng­ing á fæð­ing­ar­or­lofi gerði okkur það kleift. Sorrý (eða ekki sorrý). Þetta er bara blá­kaldur sann­leikur máls­ins.““

Vinir hennar á Facebook segja flestir það sama, það sé aug­ljóst að kona hafi ekki skrifað þennan texta og ef við­kom­andi er for­eldri þá hafi hann ef til vill mátt sinna barn­inu sínu betur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi