Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Álftnesingar sakaðir um útlendingahatur: „Okkur sagt að fara því þetta væri svo fínt hverfi“

Álftnesingar sakaðir um útlendingahatur: „Okkur sagt að fara því þetta væri svo fínt hverfi“

Útlend­ingar sem búsettir eru á Íslandi segja Íslend­inga mikla útlend­inga­hat­ara. Margir þeirra lýsa reynslu sinni af búsetu í mörgum löndum og segja þeir Ísland það land þar sem þeir mæta mesta hatr­inu.

Nicola van Kui­len­burg, sem búsett er hér á landi, stofnar til umræðu í hópi útlend­inga á Facebook sem búsettir eru á Íslandi. Þar lýsir hún óskemmti­legi atviki sem hún varð fyrir á Áltanesi í gær­kvöldi þar sem hana lang­aði til að sjá norð­ur­ljósin með kær­ustu sinni og börnum hennar. „Ég verð að tappa af smá­veigis. Okkur lang­aði til að sjá norð­ur­ljósin og þar sem það var skýjað yfir Reykja­vík ókum við út á Álftanes og lögðum þar á bíla­stæði. Eftir um það bil 20 mín­útur kemur að bílnum kona sem bankar á rúð­una og til­kynnir okkur að við megum ekki vera þarna. Ég baðst afsök­unar og sagð­ist ekki hafa séð skiltin sem bönn­uðu okkur að leggja og hún við­ur­kenndi að það væri engin slík. Engu að síður hélt hún áfram að reka okkur í burtu,“ segir Nicola og heldur lýs­ingu sinni áfram:

„Ég spurði því hvort við værum að brjóta ein­hver lög eða reglur með því að vera þarna. Konan sagði nei en að við mættum samt ekki vera þarna. Þá spurði ég hvort við værum þarna á einka­lóð en hún sagði um bæj­ar­lóð að ræða. Fyrir vikið spurði ég hver það væri sem hefði leyfi til að reka okkur í burtu. Íbúarnir sem búa hér, var svarið. Af hverju spurði ég þá. Af því þið getið verið glæpa­menn, sagði þá konan og benti mér á að íbú­arnir skipt­ist á nágranna­vörslu þar sem fólki er sagt að yfir­gefa bíla­stæðin því þetta væri svo fínt hverfi.“

Nicola undr­ast valdið sem íbúar Álftanes virð­ast hafa tekið sér. Hún segir að konan, sem hún í umræð­unni kallar Karen, hafi tekið mynd af bíla­núm­er­inu sínu. „Ég spurði kon­una hvort nágranna­gæslan væri opin­ber sam­tök sem hefðu rit­aðar reglur um hverjir mættu vera á bæj­ar­landi og á hvaða tímum. Því svar­aði hún neit­andi og þá lýsti ég yfir aðdáun minni að hópur íbúa hafi tekið sér vald yfir því hverjir fái að gera hvað á Áltanesi. Ég fann að konan varð sífellt pirraðri á mér og á end­anum skellti hún fram full­yrð­ing­unni um að hún vissi ekki hversu lengi ég hafi verið á Íslandi. Á þessum tíma­punkti fékk kærastan mín nóg og fór að tala íslensku við kon­una sem breytti sam­stundis fram­komu sinni, baðst afsök­unar, þrætti fyrir að hafa beðið okkur um að fara og sagði þetta allt byggt á mis­skiln­ingi.“

Nicola seg­ist í þræði sínum finna fyrir vax­andi kyn­þátta- og útlend­inga­hatri hér á landi. „Ég er sann­færð um að ég fékk þessar mót­tökur því ég ræddi við kon­una á ensku. Væri ég með dökkan hör­und­s­lit hefði hún sjálf­sagt hringt á lög­regl­una. Hér á landi eru for­dómar og mér finnst þeir verða meira áber­andi því lengur sem ég bý hér. Án þess að vera of nei­kvæð þá fæ ég reglu­lega á til­finn­ingu að Íslands sé klúbbur útval­inna þar sem aðeins fáir geta notið að fullu,“ segir Nicola.

Andrew Meeking tekur undir þetta. „Ég hef búið í sex löndum og Ísland er það land sem kyn­þátta- og útlend­inga­hat­rið er mest,“ segir Andrew. Cris Rodrigues hefur svip­aða sögu að segja. „Ég hef búið í fjölda landa, í þremur mis­mun­andi heims­álfum, og ekki einu sinn í Rúss­landi varð ég var við eins mikla for­dóma og ég hef séð hér síðusta ára­tug. Munurinn er að Íslend­ingar sýna for­dómana sjaldan með lík­am­legu ofbeldi og því er það mun sjaldnar til­kynnt eða tekið eins alvar­lega,“ segir Cris.

Loki nokkur er einn nokk­urra sem stinga upp á því í umræð­unni að stríða íbúum Álfta­ness á næst­unni. „Núna vil ég endi­lega fara og stríða Kareni á Álfta­nesi. Hvar lagð­iru?,“ segir Loki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi