Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gró segir frumvarpið vera „rúsínuplokk“- Vill nöfn sérfræðinganna

Gró segir frumvarpið vera „rúsínuplokk“- Vill nöfn sérfræðinganna
Gró Ein­ars­dóttir, doktor í félags­sál­fræði

Gró Ein­ars­dóttir, doktor í félags­sál­fræði, talar um „rús­ínuplokk“ í vinnu­brögðum sam­ráðs­gáttar sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að jöfn skipt­ing fæð­ing­ar­or­lofs milli for­eldra með heim­ild um að fram­selja einn mánuð sín á milli væri besti kost­ur­inn.

Fæð­ing­ar­or­lofs­frum­varpið var sent í sam­ráðs­gátt í sept­em­ber og fékk nefndin sendar tæp­lega 250 umsagnir um frum­varpið sem mið­uðu lang­flestar að skipt­ingu orlofs­ins. Þar hafi 85% umsagn­ar­að­ila kallað eftir auknum sveigj­an­leika á skipt­ingu orlofs­ins.

Þrátt fyrir það komst nefndin að þeirri nið­ur­stöðu, með hjálp sér­fræð­inga, að orlofið yrði sex mán­uðir á hvort for­eldri. Sér­fræð­ing­arnir töl­uðu flestir fyrir jafnri skipt­ingu þar sem jafn­rétti og réttur barns til sam­vista við báða for­eldra vóg þyngst. Jöfn skipt­ing dragi úr launa­mun kynj­anna og sam­ræmir fjöl­skyldu- og atvinnu­líf betur.

„Þetta getur varla talist til marks um gagn­sæja stjórn­sýslu, þar sem ekki kemur fram hverjir sér­fræð­ing­arnir eru, né hvert þeirra sér­svið er,“ skrifar Gró. Hún telur enn fremur ómögu­legt að leggja sjálf­stætt mat á hvort nefndin hafi tekið til­lit til helstu rann­sókna sem koma mál­inu við.

Staðfestingarskekkja þegar fleiri ólíkar rannsóknir eru ekki teknar til skoðunar

Gró telur fyr­ir­fram­gefnar skoð­anir nefnd­ar­innar hafa end­ur­spegl­ast í vali á sér­fræð­ingum sem komst að þess­ari nið­ur­stöðu og vitnar í heima­síð­una betra fæð­ing­ar­or­lof þar sem „rann­sóknum sem styðja við jafna skipt­ingu hefur verið vand­lega safnað á einn stað en litið er fram hjá öllum rann­sóknum sem hafa aðra sögu að segja,“ skrifar hún. Eins segir hún lít­inn sveigj­an­leika skapa hættu á að sum börn fá styttra orlof en önnur börn.

Lengra orlof verndandi þáttur fyrir heilsu kvenna

Gró fjallar um rann­sóknir sem stað­festa mik­il­vægi leng­ingar á fæð­ing­ar­or­lof­inu. Hún fjallar um brjósta­gjöf og til­mæli frá land­lækn­is­emb­ætt­inu um að barn skuli alfarið vera á brjósti í 6 mán­uði. Þessi til­mæli geti hindrað konur til að fylgja þessum ráð­legg­ingum, sér­stak­lega er talað um konur í veikri félags­legri stöðu. Þá vitnar hún í rann­sóknir sem segja lengra orlof fyrir móð­ur­ina vera vernd­andi þáttur fyrir heilsu­far þeirra, þá sér­stak­lega and­lega heilsu þeirra en 17% heil­brigðra mæðra upp­lifa fæð­ing­ar­þung­lyndi.

Núverandi frumvarpi fylgja kostir og gallar

Gró telur afar áríð­andi að þegar sér­fræði­á­lit er notað sem afsökun fyrir því að hlusta ekki á yfir­gnæf­andi meiri­hluta umsagna, eins og gert var í þessu til­felli, „þá sé tryggt að vel hafi verið staðið að verki við að safna inn heild­stæðu und­ir­lagi af stöðu rann­sókna. Ég tel, í fullu sam­ræmi við álit Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins, að það hafi ekki verið gert,“ skrifar hún.

Pólitík ræður för

Hún segir nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar snú­ast um póli­tík og segir hún það ekki létt­vægt að nefndin líta fram hjá 85% umsagna.

Hún telur 4-4-4 skipt­ing­una vera rétt­látasta þar sem hún taki mið af álagi, þörfum og jafn­rétti. Þá bendir hún á skýra afstöðu gegn skipt­ing­unni hjá almenn­ingi eigi að hvetja stjórn­mála­menn til að kom­ast að því hvaða skipt­ing það er sem nýtur stuðn­ings meiri­hluta lands­manna.

Skoð­un­ar­grein Gróar birt­ist á Vísi í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi