Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gísli Matthías og fjölskylda stökkva út í djúpu laugina: „Við vonum bara það besta“

Gísli Matthías og fjölskylda stökkva út í djúpu laugina: „Við vonum bara það besta“

Veit­inga­mað­ur­inn og meist­ara­kokk­ur­inn Gísli Matthías Auð­uns­son ætlar að fetar nýjar slóðir og opna sæl­kera­verslun. Í sam­tali við Gest­gjafann segir hann að COVID-19 hafi orðið til þess að hann og fjöl­skyldan ákváðu að kýla á þetta fyrir jólin.

Að sögn Gísla verður boðið upp á alls­konar góð­gæti í búð­inni.

„Maður er spenntur og pínu stress­aður líka, ég við­ur­kenni það nú alveg fús­lega. En ég held að við­tök­urnar verði góðar. Við förum alla vega inn í þetta með opnum huga og bara vonum það besta,“ segir Gísli Matthías Auð­uns­son, mat­reiðslu- og veit­inga­maður, sem vinnur nú að því opna nýja sæl­kera­verslun í Vest­manna­eyjum.

Fyrir rekur Gísli veit­inga­stað­inn Slippinn, sem hann opn­aði ásamt fjöl­skyldu sinni í Eyjum árið 2012. Slipp­ur­inn hefur notið mik­ill vin­sælda allt frá opnun og und­an­farið hefur fjöl­skyldan unnið dag og nótt að því að breyta hús­næði að Strand­vegi 79, sem er beint á móti staðnum, í sæl­kera­búð Slipps­ins.

„Við rákum í hús­inu annan veit­inga­stað, ÉTA, sem við opn­uðum fyrr á þessu ári en tókum ákvörðun um að breyta honum í sæl­kera­verslun,“ útskýrir hann. „Þetta var ekki eitt­hvað sem hafði lengi staðið til,“ tekur hann fram. „Við vorum aðeins búin að ræða það innan fjöl­skyld­unnar að okkur lang­aði til að opna verslun sem byði upp á fisk og ferskt sjáv­ar­fang og aðra sæl­kera­vöru, en það var í raun ekki fyrr en í þessu ástandi, covidinu og allri óviss­unni, sem við ákváðum að kýla á það núna fyrir jólin.“

„Það er mikil spenna fyrir þessu í bænum. Við höfum meira að segja verið að fá fyr­ir­spurnir frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu um hvort við ætlum að senda vörur til Reykja­vikur.“

Spurður út í vöru­úr­valið segir Gísli að ferskur fiskur, ostar og kjöt­af­urðir komi til með að verða á boðstólum og svo „take-away“-réttir frá Slippnum. „Við fengum til liðs við okkur hana Eirnýju Sig­urð­ar­dóttur sem hefur rekið sæl­kera­búð­ina Búrið við góðan orðstír síð­ustu ár. Hún er auð­vitað fag­mann­eskja á sínu sviði og mun sjá til þess að það verði gott úrval af ostum. Svo verður boðið upp á gæða­hrá­skinkur, grafið kjöt og ferskt kjöt og ferskan fisk. En með hlið­sjón af því að við í Eyjum erum umkringd ferskum fiski er ótrú­legt að hugsa til þess að hann skuli hvergi fást hérna. Okkur finnst til­valið að bæta úr því. Í bland við þetta verða svo til­búnir réttir frá Slippnum, humar­súpan okkar góða, grafið lamb, súkkulaði­mús og fleira gott­erí sem fólk getur tekið með sér.“

„Viss kúnst að vinna með mömmu“

Hvernig hafa heima­menn brugð­ist við fregnum af nýju búð­inni? „Ótrúlega vel. Það er mikil spenna fyrir þessu í bænum. Við höfum meira að segja verið að fá fyr­ir­spurnir frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu um hvort við ætlum að senda vörur til Reykja­vikur, en ég get nú ekki alveg lofað því,“ segir Gísli og hlær.

Hann kveðst vera þakk­látur fyrir við­brögðin og segir að þau slái svo­lítið á stressið sem fylgir því að opna verslun. „Já, þessar góðu und­ir­tektir hjálpa til og vissan um að maður sé bæði með góða vöru í hönd­unum og gott fólk með sér í þessu. Ég hef nátt­úr­lega aldrei opnað verslun áður. Þetta er alveg nýtt fyrir mér.“

En hvernig er eig­in­lega að standa í svona fjöl­skyldu­rekstri? „Það hefur auð­vitað sína kosti og galla. Það er til dæmis viss kúnst að vinna með mömmu sinni,“ svarar hann og skellir upp úr. „Nei, nei, ég er nú bara að grín­ast. Við fjöl­skyldan vinnum mjög vel saman, setjum okkur mark­mið og reynum að vinna að þeim sam­eig­in­lega. Kost­irnir eru því ótví­rætt fleiri. Og svo það sé á hreinu þá er mamma alveg ynd­is­leg!“

Auðunn Arnar Stefn­is­son, Katrín Gísla­dóttir, Indíana Auð­uns­dóttir og Gísli Matthías Auð­uns­son reka Slippinn og sæl­kera­búð Slipps­ins. Mynd / Aðsend

Hvenær ætlið þið að opna búð­ina? „Við gáfum út að versl­unin yrði opnuð snemma í des­em­ber, en það verður örugg­lega í kringum 8. til 9. des­em­ber. Síðan stefnum við á að hafa hana opna fram að ára­mótum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni