Svo virðist sem það sé vaxandi vandamál að fólk upplifi kvíða vegna Svart föstudags, þegar fyrirtæki bjóða upp á misgóða afslætti að bandarískri fyrirmynd. Sumir myndu segja að nú væri neysluhyggjan komin út fyrir allan þjófabálk. Fréttablaðið greinir frá þessu og ræðir við Óttar Guðmundsson geðlæknir.
Nokkuð hefur borið á því að fólk sé kvíðið yfir því að missa af góðu tilboði. Kvíði er oft byggður á ranghugmyndum sem passar ágætlega við þá staðreynd að margir íslenskir kaupmenn bjóða upp auman 10 prósent afslátt. Á Íslandi er það óðs manns æði að halda maður finni góðan afslátt.
Óttar segir þetta vel þekkt vandamál. Fólki finnst eins og allir aðrir séu að gera góð kaup og óttast að missa af einhverjum tilboðum. Þetta ástand fylgir oft útsölum. Þetta er hluti af áráttu þráhyggjuástandi þar sem ákveðin hugsun verður ráðandi í huga einstaklingsins,“ segir Óttar.
Fólk sé síðan oftast að kaupa einhverja dellu. „Í þessu tilviki er það hugsunin: Ég er að missa af einhverju. Viðkomandi fer þá að eltast við þráhyggjuna og leita uppi öll tilboð og jafnvel kaupa einhverja hreina dellu. Aðalmálið er að hann telur sig vera að græða. Eftirleikurinn er síðan venjulega timburmenn þegar það kemur að skuldadögum.“































Athugasemdir