Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Auður segir karlmenn í álverinu kúgaða af konum – Rekinn eftir 15 ár fyrir rifrildi um poll

Auður segir karlmenn í álverinu kúgaða af konum – Rekinn eftir 15 ár fyrir rifrildi um poll

Auður Ósk nokkur segir að eig­in­maður sinn hafi verið rek­inn úr álver­inu í Straums­vík eftir eitt sam­tal við sam­starfs­konu um olíu­poll. Hún segir sam­talið ein­ungis hafa verið ágrein­ingur milli sam­starfs­manna. Auður segir hann hörku dug­legan starfs­kraft sem hafi starfað þar í 15 ár. Hún full­yrðir að konur í álver­inu kúgi karl­kyns sam­starfs­fé­laga sína.

Hún fer yfir þetta í færslu á Facebook sem hefur vakið athygli og sitt sýn­ist hverjum. „ÍSAL hjarta fjöl­skyld­unnar hætti að slá í gær, föstu­dag­inn 20.11´20. Ég er fimm­tug, eig­in­kona, móðir tveggja stúlkna og tveggja drengja, amma tveggja barna, háskóla­menntuð, í fram­halds­námi og í fullri stöðu sem grunn­skóla­kenn­ari á ung­linga­stigi. Mér er það hug­leikið á þessum tíma­punkti hvernig líf­inu er háttað, þá sér­stak­lega þetta ár 2020, í miðjum heims­far­aldri og rétt rúmur mán­uður í jóla­há­tíð­ina. Ég hef sterka rétt­læt­is­kennd og er til­búin að vaða eld og brenni­stein fyrir fólkið mitt. Það var ömur­leg upp­lifun í gær­morgun þegar lífi okkar var snúið á hvolf því eig­in­maður minn til margra ára, faðir barn­anna minna, afi og vel met­inn pípu­lagn­inga­meist­ari, sem hefur unnið sl. 15 ár á aðal­verk­stæði ÍSAL, var rek­inn fyr­ir­var­ar­laust vegna sam­tals við kven­kyns sam­starfs­fé­laga sinn,“ skrifar Auður.

Hún veltir því fyrir sér hvort sumar konur hafi sett í sig í spor karla. „Ég velti fyrir mér starfs­manna­málum hjá fyr­ir­tæk­inu, hver er stefna þeirra sem það leiða, er þetta jafn­rétt­is­stefna fyr­ir­tæk­is­ins? Vilja konur í ÍSAL virki­lega vera í þessum sporum? Að klaga karl­menn fyrir ein­elti því þær höndla ekki að þeir geri athuga­semdir varð­andi vinnu­fram­lag þeirra. Ef þú sem kona hefur valið að vinna á karllægum vinnu­stað, þarftu þá ekki að ígrunda vel hvernig sam­skipti þú velur að hafa við menn­ina. Ágrein­ings­efnið varð­aði olíu­poll á miðju verk­stæð­is­gólfi, sem skap­aði slysa­hættu og skv. örygg­is­stöðlum fyr­ir­tæk­is­ins á ekki að við­gang­ast. Konan sem er „verk­stæð­is­for­maður“ hafði ítrekað leitt poll­inn hjá sér en í sjálfu sér er það mögu­lega í hennar starfs­lýs­ingu að hafa verk­stæðið á þann veg að þar sé hægt að ganga um af öryggi og fag­mennsku. Atvikið klagar hún í verk­stjóra og áfram í ein­eltisteymi, lýsir Auður.

Hún bendir á að sam­kvæmt reglu­gerð þá telst ágren­ingur til ein­eltis. „En skil­grein­ing á ein­elti skv. reglu­gerð Stjórn­ar­ráðs­ins hljóðar svo: ein­elti er ámæl­is­verð eða síend­ur­tekin ótil­hlýði­leg hátt­semi, þ.e. athöfn eða hegðun sem er til þess fallin að nið­ur­lægja, gera lítið úr, móðga, særa, mis­muna eða ógna og valda van­líðan hjá þeim sem hún bein­ist að. Kyn­ferð­is­leg áreitni og annað and­legt eða lík­am­legt ofbeldi fellur hér undir. Hér er ekki átt við skoð­ana­á­grein­ing eða hags­muna­á­rekstur sem kann að rísa á vinnu­stað milli stjórn­anda og starfs­manns eða tveggja eða fleiri starfs­manna nema hann sé við­var­andi eða end­ur­tek­inn.“

Hún segir eig­in­mann sinn aldrei hafa fengið áminn­ingu. Hann hafi hins vegar fengið hvatn­inga­verð­laun. „Minn maður hefur aldrei fengið áminn­ingu um slíkt eða annað er varðar hans störf hjá ISAL. Hann hefur þvert á móti fengið hvatn­inga­verð­laun, verið hampað fyrir vel unnin störf, hefur haft metnað fyrir starfi sínu og hefur sinnt því af alúð og mik­illi sam­visku­semi í öll þessi ár. Hann hefur ávallt mætt á réttum tíma, hefur varla tekið út frí­daga sína, biður aldrei um skipti á kall­vöktum eða að verk­stjóri hafi þurft mikið fyrir honum að hafa. En það er einskis metið! Hann er sendur heim sl. mið­viku­dag í „kæl­ingu“, hann fær ekki að segja sína skoðun eða upp­lifun,“ segir Auður.

Því næst var hringt í hann. „Það er haft sam­band við hann sím­leiðis seinni part­inn þar sem honum er til­kynnt að hann þurfi ekki að mæta til vinnu næsta dag en eng­inn til­kynn­ing um það hvar „málið“ stæði. Seinni part fimmtu­dags hringir verk­stjór­inn boðar hann á fund í gær, föstu­dags­morgun, hann segir að á fund­inum verði full­trúi frá ein­eltisteym­inu en segir ekk­ert til um hvað standi til annað en að hann fái að segja frá sinni hlið máls­ins. Því eins og mál­tækið segir: „Þá er aldrei einn þar sem tveir deila“. Verk­stjóri tekur á móti honum ásamt starfs­manna­stjóra (sem er kven­kyns) en minn maður átti aldrei mögu­leika, athuga­semdir og sú nið­ur­læg­ing sem hann upp­lifði á þessum 15 mín­útna fundi af hálfu starfs­manna­stjór­ans var gjör­sam­lega órétt­mæt, ómann­úð­leg og kaldrifjuð. Upp­sagn­ar­bréfið lá á borð­inu til und­ir­skriftar.“

Auður segir að lokum að þetta sé ekk­ert nema kúgun. „Missir aðal­verk­stæðis álvers­ins í Straums­vík er mik­ill, því ég held að flestir sem þekkja til Reynis vita að hann er þéttur og góður verk­maður. Með sorg í hjarta yfir því hvernig komið er fram við karl­kyns starfs­menn í ÍSAL, þeir eru kúg­aðir af konum, þora ekk­ert að segja af hættu við að verða klag­aðir og reknir án fyr­ir­vara. Þetta er jafn­rétt­is­stefna ISAL.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi