Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigmundur þarf að velja á milli Gunnars Braga eða kvenna

Sigmundur þarf að velja á milli Gunnars Braga eða kvenna

Halldór Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi sókn­ar­prestur í Holti og áhrifa­maður í Mið­flokknum, segir í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu að ef flokk­ur­inn ætli sér að bæta fylgið þá verði flokk­ur­inn að losa sig við Gunnar Braga Sveins­son. Halldór segir margar konur ekki geta hugsað sér að kjósa Mið­flokk­inn vegna hans og ofan á það sé hann óvin­sæll meðal bænda.

Gunnar Bragi hefur verið nán­asti banda­maður Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar og kann það að skýra ástæðu þess að lögum flokks­ins var breytt, að svo virð­ist, til að tryggja honum vara­for­manns­sæti flokks­ins. Vígdís Hauks­dóttir hugð­ist bjóða sig fram en nú hefur emb­ætti vara­for­manns lagt niður og þing­flokks­for­mað­ur­inn mun gegna skyldum hans.

Halldór telur ljóst að auka­lands­þingið haldið til þess að tryggja stöðu Gunnars Braga Sveins­sonar. „Sann­ar­lega tel ég að það hafi verið brýnt að ákveða hver staða Gunnars Braga Sveins­sonar ætti að vera. Það kom þó hvergi fram í beinni til­lögu, hvað þá að það væri sagt. Í við­ræðum við flokks­menn um þetta hef ég heyrt til skiptis að staða hans hefði verið tryggð óbreytt eða að með þessu hafi flokk­ur­inn losnað við hann. Ef flokk­ur­inn á að ná þeirri stöðu sem for­mað­ur­inn tal­aði fyrir verður flokk­ur­inn að ná jafnt til karla og kvenna, sem ég tel að flokk­ur­inn muni ekki gera með fram­boði Gunnars Braga Sveins­sonar við næstu alþing­is­kosn­ingar,“ skrifar Halldór.

Halldór segir að það sé alltaf það sama nefnt þegar við­kom­andi seg­ist ekki vilja Gunnar Braga. Hann segir þó ekki hver sú ástæða er. „Skoð­ana­kann­anir sýna að konur kjósa síst flokk­inn. Þetta stað­festir síð­asta fram­boð flokks­ins til sveit­ar­stjórnar á Aust­ur­landi á sinn hátt. Næstum án und­an­tekn­ingar heyri ég eig­in­konur manna hlið­hollra Mið­flokknum segja við mig: Ég kýs ekki Mið­flokk­inn ef Gunnar Bragi Sveins­son býður sig fram. Þegar ég spyr um ástæður er svarið það sama sem ég þarf ekki að end­ur­segja, því allir virð­ast sam­mála um ástæð­una,“ segir Halldór.

Ofan á þetta segir hann að Gunnar Bragi fæli bændur frá flokknum. „Bændur hlið­hollir Mið­flokknum hafa margir sagt það sama við mig, að við­bættri gagn­rýni á for­ystu Gunnars sem utan­rík­is­ráð­herra, að láta sam­þykkja við­skipta­bann á Rússland að beiðni ESB, sem hefur kostað íslenskan land­búnað og sjáv­ar­út­veg marga millj­arða á ári, sam­hliða því að Evr­ópu­banda­lags­lönd hafa nær engan skaða borið af ákvörð­un­inni. Einnig að ekki hefði end­an­lega verið lokið í hans ráð­herra­tíð að aft­ur­kalla umsókn um inn­göngu í ESB, sem vænt­an­leg Sam­fylk­ing­ar­vinstri­st­jórn mun auð­veld­lega geta end­ur­nýjað og náð fram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi