Sigurlaug Margrét Jónasdóttir fjölmiðlakona rifjar upp sárar minningar af því þegar móðir hennar, Sigrún Sigurðardóttir, var langt leidd af krabbameini.Vegna veikindinna átti Sigrún í erfiðleikum með að koma með Sigurlaugu á sýningu í Íslensku óperunni. Mæðgurnar komust á endanum og grétu þar saman yfir óperunni Tosca sem sýnd var árið 2017. „Móðir mín var að deyja og hún lá á krabbameinsdeildinni þegar frumsýningin var og hún hafði mestar áhyggjur af því að hún kæmist ekki á frumsýningu. Þannig að ég fór á frumsýninguna, grét náttúrulega ennþá meira af því mamma var ekki með mér. En það sem gerðist, hún einhvern veginn jafnaði hún sig – eins og hægt er að jafna sig á því þegar maður er að deyja – og komst á sýningu,“ segir Sigurlaug í samtali við
RÚV.
Minningar um Tosca eru því Sigurlaugu sérstaklega hjartfólgnar. Í segist hún ekki getað hlutast á fallegar áríur án þess að fella tár. „Það gerðist eitthvað í lífi okkar beggja. Við sátum þarna saman, vissum að hún væri að deyja. Horfðum á Toscu, horfðum á afbrýðisemina, ástina, allar þessar tilfinningar og við bara eiginlega grétum báðar og vorum bara mjög hamingjusamar líka,“ segir Sigurlaug.





















Athugasemdir