Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Drífa gagnrýnir jólakúltur leikskólanna: „Ertu búin að hugsa málið, með jólin, þúst?“

Drífa gagnrýnir jólakúltur leikskólanna: „Ertu búin að hugsa málið, með jólin, þúst?“

Drífa Jón­as­dóttir afbrota­fræð­ingur bendir Reykja­vík­ur­borg á að fjöl­margir for­eldar hafi engan mögu­leika á að vera með börnin sín heima milli jóla og nýárs. Því skilur hún illa það fyr­ir­komu­lag sem leik­skól­arnir virð­ast hafa komið sér upp þar sem hrein­lega er ætl­ast til að börnin komi ekki í skól­ann.

Skoðun sína setur Drífa fram í færslu á Facebook og fær þar fjöl­margar stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingar. „Er ekki kom­inn tími á nöldur? Hvað með Jólanöldur um fyr­ir­komu­lag „frí­daga“ í leik­skólum borg­ar­innar. Ekkert akút mál svosem en ég velti fyrir mér van­líðan og sam­visku­biti for­eldra sem ekki hafa nokkurn ein­asta mögu­leika á að hafa barnið sitt heima yfir jól og ára­mót, sama sosum hver ástæðan er. Ég held að flestum for­eldrum þætti ofsa­lega gaman að búa til sjón­varps­aug­lýs­ingu-jólastemm­ingu heima hjá sér yfir hátíð­arnar. Hafa kósý, púsla, lesa góða bók, borða nammi, baka, skreyta pip­ar­kökur og allir sjúk­lega glaðir og ham­ingju­samir. Njótum stund­anna saaaman, verum í faðmi fjöl­skyld­unnar og allt það,“ segir Drífa og heldur áfram.

„En svo eru það börn sem hafa ekki séns á svona kósí­heitum heima. Hinar ýmsu aðstæður geta legið þar að baki. For­eldrar þurfa að vinna, ein­staða for­eldrið þarf að vinna því það er ekki í boði að taka launa­laust frí eða vinnan gefur ekki jóla­gjöf í formi frí­daga og eng­inn getur passað meðan við­kom­andi þarf að mæta í vinn­una. Svo geta verið allt aðrar aðstæður fyrir því að fólk þarf/vill nýta vist­un­ar­tím­ann; eins og til­dæmis mikið stress á heim­il­inu eða ofbeldi.“

Drífa segir að það sá kúltúr hafi skap­ast á leik­skól­unum að reiknað sé með því að börnin mæti þangað ekki yfir hátíð­irnar. Hún bendir á að heim­ilin hafi greitt fyrir vistun og því eigi að gera ráð fyrir þeim í skól­ann, nema for­eldri láti vita um annað. „Í Reykja­vík er það gjarnan lenska hjá leik­skóla­stjórn­endum að senda mjúk­lega orð­aða pósta á for­eldra í aðdrag­anda hátíð­anna. Svo eru for­eldrar spurðir í covid gætt­inni í úti­fata­horn­inu þegar þeir koma með börnin á morgn­anna: „ertu búin að hugsa málið, með jólin, þúst?“ Þegar for­eldri herðir sig síðan upp og segir „ég þarf bara að nýta þessa daga“ þá þarf annað hvort að kvitta á blað, nafn barns­ins og taka fram hvaða daga ætlar barnið að koma í dvöl eða að senda leik­skóla­stjóra póst þess efnis,“ segir Drífa og bætir við:„Per­sónu­lega er mér ekki vor­kunn en ég get ímyndað mér „lélegu for­eld­rana“ (les­ist með kald­hæðni) sem verða að vinna, fá ekki frí, hafa ekki efni á að taka frí eða for­eld­rana þar sem er ekki allt löðr­andi í pip­ar­köku­skreyt­ing­ar­kremi og bara stress og rifr­ildi og streita alla daga, líka dag­ana milli jóla og nýárs. Væri ekki snjallt hjá Reykja­vík­ur­borg að hafa það sem er default áfram bara default og að ef ég vil halda mínu barni heima yfir jólin þá sendi ég bara línu þess efnis. Annars er gert ráð fyrir að barnið mæti?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi