Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir íslenska rjúpnaveiðimenn hjartalausa: „Limlesta eða drepa saklausa fugla sér til gleði“

Segir íslenska rjúpnaveiðimenn hjartalausa: „Limlesta eða drepa saklausa fugla sér til gleði“
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd / Skjáskot RÚV.

Ole Anton Bielt­vedt, stofn­andi og for­maður Jarð­ar­vina, segir að gráð­ugir og hjarta­lausir skot­veiði­menn séu búnir að koma rjúpu­stofn­inum í útrým­ing­ar­hættu. Þeir vaði upp um fjöll og firn­indi í þús­unda tali til að lim­lesta eða drepa sak­lausa og varn­ar­lausa fugla, og önnur dýr, sér til ánægju og gleði. Þennan hóp kallar Ole dauða­sveit­ina.

Skoðun sína setur Ole fram í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu. „Árið 2002 var svo komið fyrir íslenzku rjúp­unni að hún var, vegna óbil­girni veiði­manna og und­an­láts­semi stjórn­valda, komin á útrým­ing­ar­stig. Guði sé lof, tók þáver­andi umhverf­is­ráð­herra, Siv Frið­leifs­dóttir, af skarið og bjarg­aði rjúpna­stofn­inum með friðun. En gráð­ugir veiði­menn óðu uppi og þrýstu á um veiðar, sem hófust aftur með nokkru skipu­legri og skap­legri hætti,“ segir Ole.

„Sársauki og þján­ing fugls­ins, sumir liggja lengi særðir og lim­lestir – bíða jafn­vel eftir, að blóð­eitrun og drep ljúki kvöl­inni og líkni í lokin – er auð­vitað hvergi tekin með í reikn­ing­inn“

Ole bendir á að rjúpan sé ein­fald­lega á válista yfir þá fugla sem telj­ast í yfir­vof­andi hættu. Stofninn hafi hrein­lega dreg­ist saman um allt að 70 pró­sent. „En hvern varðar um það? Greini­lega ekki Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands, hvað þá umhverf­is­ráð­herra, svo að ekki sé talað um hjarta­lausa veiði­menn, sem vaða um fjöll og firn­indi til að lim­lesta eða drepa sak­lausa og varn­ar­lausa fugla og dýr, sér til gleði og ánægju. Umhverf­is­ráð­herra heim­il­aði veiðar á 72.000 fuglum í fyrra, án þess að með þessum veiðum sé nokk­urt eft­ir­lit; treyst er á heið­ar­leika veiði­manna og „virð­ingu fyrir nátt­úr­unni og fugl­inum“. Allt gott og fínt – sárs­auki og þján­ing ekk­ert mál,“ segir Ole harð­orður og bætir við:

„Sársauki og þján­ing fugls­ins, sumir liggja lengi særðir og lim­lestir – bíða jafn­vel eftir, að blóð­eitrun og drep ljúki kvöl­inni og líkni í lokin – er auð­vitað hvergi tekin með í reikn­ing­inn. Hvað varðar NÍ, gal­vaska veiði­menn og ráð­herra um slíkt!?“

Þá vindur Ole tal­inu að þessum skot­vetri þar sem hann segir gild­andi sam­þykkt vera algjöran brand­ara í ljósi þess hversu veikur rjúpna­stofn­inn er. „Hvað gerðu stjórn­völd? Nú kom NÍ með plan um, að hver veiði­maður skyldi veiða 4-5 fugla, og, að þetta yrði allt bara gott og fínt aftur. Þetta fannst umhverf­is­ráð­herra skyn­sam­legt, raun­sætt og fínt plan, og lagði blessun sína yfir það í hvelli. Til fjalla fyrir fjóra fugla? Tillagan, sem for­stjóri NÍ lagði fyrir ráð­herra og hann sam­þykkti án þess að blikka augum, að því er virð­ist, er auð­vitað bara eins og hver annar „skíta­brand­ari“. Hver heil­vita maður sér, að „5.000-6.000 manna dauða­sveitin“ mun ekki hafa unnt sér friðar eða hvíldar fyrr en 70.000 til 90.000 fuglar lágu í valnum. Er ég þá að tala um þá fugla, sem náð­ust og taldir verða. Til við­bótar koma svokölluð „afföll“, þeir fuglar, sem sær­ast og lim­lest­ast, en kom­ast undan veiði­manni, sem gætu verið 20-30.000 fuglar,“ segir Ole.

Ofan á allt saman furðar Ole sig á við­horfum skot­veiði­manna sem hafi einnig farið fram á stór­lengt veiði­tíma­bil á rjúp­unni. Hann von­ast þó til að Covid-far­aldr­ur­inn hafi mögu­lega bjargað rjúp­unni. „Hver skilur þessa menn og þeirra afstöðu til líf­rík­is­ins og nátt­úr­unnar? Bjargaði Covid rjúp­unni í bili? Veiði­tími 2020 er nú afstað­inn, og það veit eng­inn, hvernig þetta fór, en kannski bjarg­aði Covid rjúp­unni, þar sem botn­inn datt nokkuð úr veiði­mönnum með flandur og ferða­lög vegna far­ald­urs­ins, auk þess sem það frétt­ist fljótt, að það fynd­ist varla fugl, sem sló nokkuð á veiði­gleði. Vonandi tekur sannur dýra­vernd­un­ar­sinni við umhverf­is­ráð­herra­emb­ætt­inu því eina von rjúp­unnar og íslenzka dýra- og líf­rík­is­ins virð­ist nú vera að ný umhverf­is­væn rík­is­stjórn og raun­veru­legur dýra­vernd­un­ar­sinni, með bein í nef­inu, taki við emb­ætt­inu 2021,“ segir Ole.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi