Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jólamatarvenjur Íslendinga fyrr og nú

Jólamatarvenjur Íslendinga fyrr og nú
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Á síð­ustu ára­tugum hafa orðið miklar breyt­ingar á jólamat­ar­hefðum okkar Íslend­inga. Fólk sem fædd­ist upp úr miðri síð­ustu öld man örugg­lega eftir öllum smáköku­sort­unum sem bak­aðar voru og ekki mátti snerta fyrr en á aðfanga­dag og rauðu jóla­eplin sem keypt voru rétt fyrir jólin og komu með jólailm­inn í húsið. Ýmislegt góð­gæti var útbúið og keypt og öllu var svo tjaldað til fyrir jóla­há­tíð­ina. Til­hlökkun barn­anna var mikil eins og endranær en senni­lega oft meiri þá en nú því fólk gerði sér ekki oft daga­mun eins og gert er nú á dögum.

Næfurþunnar pönnukökur af hveitiskorti

Steikt brauð, laufa­brauð, lummur og pönnu­kökur var hátíð­ar­brauðið fyrr á öldum. Korn­leysið sem hér ríkti hefur senni­lega sett sitt mark á ýmsar hefðir sem enn eru við lýði á Íslandi. Pönnu­kök­urnar okkar eru t.d. óvenju­þunnar miðað við pönnu­kökur ann­arra landa og telja sumir að það hafi verið gert til að spara hveitið. Laufa­brauðið okkar er sér­ís­lenskt þó að það þekk­ist vel í öðrum löndum að steikja þunnar kökur í feiti en ekki útskornar eins og gert er hér á landi. Kökurnar voru hafðar næf­ur­þunnar til að allir gætu fengið smá­vegis bita og skornar út til að gera þær hátíð­legri og girni­legri. Í bók Hall­gerðar Sig­urð­dóttur Íslenskum mat­ar­hefðum kemur fram að elsta laufa­brauðs­heim­ildin sem vitað er um sé frá árinu 1736 og að fyrst hafi það verið bakað fyrir höfð­ingja en orðið svo að hátíð­ar­brauði almenn­ings á 19. öld.

Grasaseyði út á jólagrautinn

Jóla­graut­ur­inn var oft­ast búinn til úr banka­byggi eða grjónum og hafður hnaus­þykkur með rús­ínum. Á síð­ari ára­tugum og enn í dag er sá siður hér á landi að setja möndlu út í jóla­graut­inn en sá leikur er senni­lega kom­inn frá Danmörku eins og svo margar aðrar mat­ar­hefðir okkar. Líklega hefur mjólk, mysa og grasa­seyði bragð­bætt með sýrópi verið notað út á graut­inn.

Hressing fyrir hátíðarnar

Upp úr miðri 18. öld fór kaffi og te að ber­ast til lands­ins og þá var það lengi vel ekki notað nema í kringum jólin. Kemur fram í rit­inu Íslenskum þjóð­háttum að aldrei hafi fólk keppst eins mikð við prjóna­skap­inn eins og á jóla­föst­unni, svo þurfti að þvo allt hátt og lágt. Einnig var það siður víða að fara í kaup­stað fyrir jól og fá sér í jólakút­inn eða fá sér „aðeins í tána“ til að hressa sig við fyrir hátíð­arnar og lagði fólk oft mikið á sig til þess að ná sér í slíka jóla­hress­ingu.

Kjötsúpa á aðfangadagskvöld

Gömul venja hér á landi var einnig að slátra kind rétt fyrir jólin til að hafa nýtt kjöt um jóla­há­tíð­ina og stundum var nýfæddum kálfi slátrað eða náð í rjúpur þar sem hægt var. Algengt var að bera á borð magál, sperðil (sver pylsa fyllt með kjöti), laufa­brauð og hangi­kjöt. Einnig var algengt að borða kjöt­súpu á aðfanga­dags­kvöld og hangi­kjöt á jóla­dag sem við þekkjum enn.

Grein þessi var unnin upp úr bók­unum Íslensk mat­ar­hefð eftir Hall­gerði Gísla­dóttur, Íslenskir þjóð­hættir eftir Jónas Jónasson frá Hrafna­gili og Í jóla­skapi eftir Árna Björns­son og Hring Jóhann­es­son.

Texti / Bergþóra Jón­as­dóttir
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni