Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristín segir feitustu þjóð Evrópu að hætta að vera meðvirk með sykurfíklum

Kristín segir feitustu þjóð Evrópu að hætta að vera meðvirk með sykurfíklum

Kristín Heim­is­dóttir, stjórn­ar­for­maður Lýð­heilsu­sjóðs og lektor við tann­lækna­deild Háskóla Íslands, segir í aðsendri grein að nú sé kom­inn tími á að stór­hækka skatta á alla sykraða drykki. Hún seg­ist almennt á móti skatta­hækk­unum en ekki sé hægt að horfa fram­hjá því að það hafi virkað hvað varðar sígar­ettur. Hún segir að feitasta þjóð Evrópu, Ísland, þurfi að taka sig saman í and­lit­inu og hætta með­virkni með syk­ur­fíklum.

„Reglu­bundið rama­kvein hefur verið rekið upp vegna hug­mynda yfir­valda um að skatt­leggja sykraðar mat­vörur umfram holl­ari mat­vörur. Hæst heyr­ist í sæl­gætis- og gos­drykkjafam­leið­endum og er það afar skilj­an­legt. Hug­myndin er sú að vörur þeirra verði dýr­ari án þess að meira renni í þeirra vasa. Það er eðli­legt að mót­mæla slíkum áformum sem hags­muna­að­ili. Það er ekki endi­lega rétt að hlusta of mikið á þær raddir,“ segir Kristín.

Hún segir almennt á móti skatta­hækk­unum. „Und­ir­rituð er almennt á móti skatta­hækk­unum. Skattar á Íslandi eru of háir hvert sem litið er. Virð­is­auka­skattur með því hæsta sem ger­ist í heim­inum og það eitt er hvetj­andi fyrir svarta hag­kerfið. En hvernig má þá rétt­læta aukna skatt­heimtu sem þessa?,“ spyr Kristín og svarar:

„Rann­sóknir á fleiri hund­ruð þús­und manns með eft­ir­fylgni í 16-34 ár hafa sýnt bein tengsl auk­innar gos­drykkja­neyslu við aukna dán­ar­tíðni og þá sér­stak­lega vegna hjarta- og æða­sjúk­dóma. Hár lík­ams­þyngd­ar­stuð­ull hjá full­orðnum á Íslandi hefur hækkað frá því að vera fjórði algeng­asti áhættu­þáttur fyrir aukna dán­ar­tíðni og hreyfiskerð­ingu yfir í að vera annar algeng­asti áhættu­þátt­ur­inn, á eftir reyk­ingum. Hlut­falls­legur fjöldi þeirra sem eru í ofþyngd og offitu á Íslandi er með því hæsta í Evrópu. Þekkt er að mikil neysla sykraðra drykkja eykur líkur á hækk­aðri lík­ams­þyngd. Hækkaður lík­ams­þyngd­ar­stuð­ull er sterkur áhættu­þáttur sjúk­dóma eins og hjarta- og æða­sjúk­dóma, syk­ur­sýki af teg­und tvö og krabba­meina.“

Hún segir að Ísland geti tekið á þessum vanda. „Með sam­stilltu átaki og fræðslu auk leið­inda skatt­lagn­ingar höfum við séð hvernig hægt var að ná tökum á tóbaks­notkun Íslend­inga. Eftir því hefur verið tekið á heims­vísu. Á sama hátt getum við tek­ist á við stór­aukna gos­drykkja­neyslu ungs fólks með fræðslu og hefur mikið áunn­ist í þeim efnum. Betur má þó ef duga skal. Það hefur (því miður) sann­ast að stýr­ing með verð­lagn­ingu hefur enn meiri áhrif. Tal um frekju og frels­is­skerð­ingu á ekki við, enda er ekki verið að banna neinum neitt. Hærra verð ætti þó að skila auknum tekjum í rík­is­sjóð sem ætti með réttu að skila sér til heil­brigð­is­kerf­is­ins. Ekki veitir af,“ segir Kristín.

Sumir gagn­rýna syk­ur­skatt og segja það í raun fátækra­skatt. Kristín segir það þvælu: „Lág­kúru­leg­ast finnst mér þó þegar því er haldið fram að það sé verið að meina tekju­lægstu hóp­unum eilít­inn munað með því að hækka gos­drykki úr lægra skatt­þrepi í það hærra. Með sömu rökum ættum við að gauka sígar­ettu­pökkum að þessum hópum og telja okkur trú um að slíkt sé gert af góð­mennsku. Best færi á því að allir þjóð­fé­lags­hópar, óháð tekju­stöðu, slepptu bæði tóbak­inu og gos­drykkj­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi