Líkt og flestir hafa tekið eftir þá liggur Facebook Messenger niðri hjá flestum á Íslandi. Líklega er það algengasti samskiptamáli landsmanna og óttast sumir það versta.
Á Twitter eru sumir sannfærðir um að stóri Messenger-lekinn muni kóróna slæmt ár. Því hefur lengi verið spáð að það sé einungis tímaspursmál þangað til öll samskipti þar verði lekið á netið. Flestir hafa látið ýmislegt flakka á Messenger sem þolir ekki dagsljós.
Kristín Soffía Jónsdóttir borgarfulltrúi segir þetta búið ef það reynist rétt. „Komið að þessu. Lífi mínu verður formlega aflýst. Stóri messenger lekinn. Sorrí með mig,“ skrifar hún. Hún er ekki ein um þessa skoðun en hér fyrir neðan má sjá fleiri tíst um málið.





















Athugasemdir