Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjáðu áður óbirta tölvupósta sem Samherji telur sýna fram á samsæri RÚV og Seðlabankans

Sjáðu áður óbirta tölvupósta sem Samherji telur sýna fram á samsæri RÚV og Seðlabankans

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, og hans fólk heldur áfram árásum sínum á RÚV og Seðla­banka Íslands. Nú telur fyr­ir­tækið hafa afhjúpað sam­ráð þeirra á milli í aðdrag­anda Seðla­banka­máls­ins svo­kall­aða og birtir útgerð­ar­fyr­ir­ætkið því til sönn­unar áður óbirta tölvu­pósta á vef­síðu sinni.

Samherji birtir af þessu til­efni fjölda tölvu­pósta sem útgerð­ar­fyri­tækið segir óbirta. Alla tölvu­póstana getur þú séð hér. Hér að neðan má svo finan skrif Samherja í heild sinni af heima­síð­unni, undir hana ritar Margrét Ólafs­dóttir:

Seðla­banki Íslands hefur afhent Samherja öll tölvu­póst­sam­skipti milli þáver­andi fram­kvæmda­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­bank­ans og frétta­manns Rík­is­út­varps­ins í aðdrag­anda hús­leitar hjá Samherja hinn 27. mars 2012. Þennan sama dag var sýndur Kast­ljós­þáttur þar sem settar voru fram alvar­legar ásak­anir á hendur Samherja sem eng­inn fótur reynd­ist fyrir. Samherji birtir þessa tölvu­pósta nú í fyrsta sinn.

  • Frétta­mað­ur­inn og fram­kvæmda­stjóri gjald­eyr­is­eft­ir­lits skipt­ust á tugum tölvu­pósta á fimm vikna tíma­bili fyrir hús­leit hjá Samherja.
  • Seðla­bank­inn sagði ósatt fyrir hér­aðs­dómi árið 2015 um að engin sam­skipti hefðu átt sér stað við við fjöl­miðla í aðdrag­anda hús­leit­ar­innar.
  • Heim­ild­ar­maður Rík­is­út­varps­ins dró ásak­anir til baka þremur vikum fyrir hús­leit og sýn­ingu þáttar Kastljós. Engu að síður settu bæði Seðla­bank­inn og Rík­is­út­varpið fram full­yrð­ingar um und­ir­verð­lagn­ingu.
  • Útvarps­stjóri neit­aði Samherja um afhend­ingu tölvu­póst­anna með vísan til verndar heim­ild­ar­manns.
  • Seðla­bank­inn gaf í skyn að umfang ætl­aðs brots hlypi á millj­örðum en varð­aði í reynd 25 milljón króna við­skipti.

Seðla­bank­inn afhenti Samherja umrædda tölvu­pósta hinn 4. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Um er að ræða tugi tölvu­pósta milli Ingi­bjargar Guð­bjarts­dóttur, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits­ins og frétta­manns­ins Helga Seljan, yfir fimm vikna tíma­bil, frá 20. febr­úar til 26. mars 2012 í aðdrag­anda hús­leitar hjá Samherja og umfjöll­unar Kast­ljóss 27. mars 2012. Sam­skiptin afhjúpa óeðli­leg og hugs­an­lega sak­næm vinnu­brögð starfs­manna Rík­is­út­varps­ins og Seðla­bank­ans.

Tölvu­póst­arnir leiða í ljós að hinn 20. febr­úar 2012 greindi Helgi Seljan Seðla­bank­anum frá ásök­unum um meinta und­ir­verð­lagn­ingu Samherja sem varð, sam­kvæmt full­yrð­ingum frétta­manna Rík­is­út­varps­ins þann 27. mars 2012, kveikjan að rann­sókn á mál­efnum Samherja. Helgi Seljan hélt stjórn­anda rann­sókn­ar­innar að fullu upp­lýstum um gang sinnar eigin rann­sóknar í Kast­ljósi. Þannig greindi Helgi Seljan frá því hvernig heim­ild­ar­maður sinn í úrskurð­ar­nefnd sjó­manna og útvegs­manna hefði, eftir að hafa verið þrá­spurður í við­tali við Helga, „jánkað“ því að Samherji hefði selt karfa á und­ir­verði. Tveimur dögum síðar, eða hinn 4. mars 2012, upp­lýsti Helgi að heim­ild­ar­mað­ur­inn hefði óskað eftir því að við­talið við hann yrði tekið upp aftur þar sem hann hefði fengið upp­lýs­ingar um verð Samherja sem sýndu að ekki væri um und­ir­verð­lagn­ingu að ræða. Virðist Helgi Seljan og fyrrum fram­kvæmda­stjóri gjald­eyr­is­eft­ir­lits­ins, sem stýrði rann­sókn á Samherja, hafa látið sér þetta í léttu rúmi liggja. Rétt er að geta þess að heim­ild­ar­mað­ur­inn minnt­ist ekki einu orði á karfa­við­skipti í umræddum þætti Kast­ljóss.

Þrátt fyrir þetta og þá stað­reynd að engin gögn gæfu til kynna að um und­ir­verð­lagn­ingu væri að ræða fór Seðla­bank­inn í hús­leit hjá Samherja þann 27. mars 2012 með vísan til þess­ara upp­lýs­inga sem þá höfðu í reynd verið leið­réttar þremur vikum fyrr. Sama kvöld var sýndur þáttur Kast­ljóss í umsjón Helga Seljan þar sem full­yrt var að Samherji hefði selt karfa frá Íslandi á und­ir­verði. Var sú full­yrð­ing sögð byggja á skýrslu frá Verð­lags­stofu skipta­verðs sem síðar kom í ljós að var óund­ir­ritað vinnu­skjal sem frétta­mað­ur­inn hafði slitið úr sam­hengi. Frétta­mað­ur­inn las og birti efn­is­grein úr skjal­inu mikið stytta en ekki efn­is­greina í heild sinni og gjör­breytti þar með efn­is­legu inn­taki hennar. Ekkert í vinnu­skjal­inu styður ásak­anir um sölu karfa á und­ir­verði, raunar þvert á móti. Það kom hins vegar ekki í ljós fyrr en í ágúst á þessu ári þegar skjalið fannst loks­ins hjá Verð­lags­stofu.

Áður­nefnd tölvu­póst­sam­skipti benda einnig til þess að frétta­mað­ur­inn hafi vitað hvað var í bígerð, enda spurði hann fram­kvæmda­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits­ins í tölvu­pósti 9. mars 2012 hvort ein­hvers væri „að tíð­inda af þessu sem við töl­uðum um.“ Í ljósi þess að hann sendi síðan fram­kvæmda­stjór­anum drög að frétt um hús­leit­ina, dag­inn áður en hún var fram­kvæmd, verður að telja að yfir­gnæf­andi líkur séu á að fram­kvæmda­stjór­inn fyrr­ver­andi sé heim­ild­ar­mað­ur­inn um hús­leit­ina. Þegar útvarps­stjóri neit­aði að afhenda tölvu­póstana árið 2020 bar hann fyrir sig ákvæði laga um vernd heim­ild­ar­manns.

Beiðni Seðla­bank­ans til hér­aðs­dóms um hús­leit byggði að öllu leyti á ásök­unum sem stjórn­endum bank­ans var kunn­ugt um að stæð­ust ekki. Verður útreikn­ingum og ásök­unum Seðla­bank­ans gerð sér­stök skil síðar en þó er rétt að geta þess hér að þunga­miðjan í rök­stuðn­ingi bank­ans fyrir hús­leit byggði á ábend­ing­unni frá Helga Seljan frétta­manni. Eins og að framan er rakið grund­vall­að­ist sú ábend­ing ekki á neinu eftir að heim­ild­ar­maður frétta­manns­ins hafði dregið í land með ásak­anir sínar og hafði fram­kvæmda­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits­ins verið gert við­vart um það. Engu að síður rataði upp­runa­lega ásök­unin í beiðni til hér­aðs­dóms. Í kröf­unni skap­aði fram­kvæmda­stjór­inn fyrr­ver­andi, sem und­ir­rit­aði hana ásamt aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra, að því er virð­ist vís­vit­andi þau röngu hug­hrif hjá dóm­ara að umfang ætl­aðs brots hlypi á millj­örðum króna. Stað­reyndin er aftur á móti sú að umfang sölu á karfa af eigin skipum Samherja til tengdra aðila, á því þriggja mán­aða tíma­bili sem krafan til­tók, nam 120 tonnum af alls 1.500 tonnum sem skipin lönd­uðu af karfa. Samherji flutti út 25.000 tonn af sjáv­ar­af­urðum á tíma­bil­inu fyrir um 11 millj­arða en verð­mæti hins útflutta karfa til tengdra aðila nam 25 millj­ónum króna, eða 0,2% af útflutn­ings­verð­mæti tíma­bils­ins. Til að kór­óna vit­leys­una í vinnu­brögðum var svo útreikn­ingur á verðum rangur. Hefur það verið stað­fest af dóm­stólum og var fellt niður af öllum emb­ættum sem höfðu málið til skoð­unar í kjöl­farið, þar á meðal Seðla­bank­anum árið 2016.

Það liggur því fyrir að fram­kvæmda­stjór­anum fyrr­ver­andi, sem und­ir­rit­aði beiðni um hús­leit hjá Samherja og síðar kærur á hendur Samherja og til­teknum ein­stak­lingum, var kunn­ugt um að ásak­anir á hendur fyr­ir­tæk­inu byggð­ust á rang­færslum. Rík­is­út­varpið tók virkan þátt í árásinni á Samherja á árinu 2012 og hefur síðan þá gert allt til að koma í veg fyrir að Samherji fái þau gögn sem nú eru komin fram í dags­ljósið í fyrsta sinn. Að sama skapi hefur Seðla­bank­inn, þar til nú, ítrekað komið í veg fyrir að þessi gögn kæmust í hendur Samherja. Þá sagði Seðla­bank­inn ósatt um sam­skiptin við Rík­is­út­varpið fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur árið 2015. Það varð til þess að Samherji fékk umrædda tölvu­pósta ekki afhenta fyrr en fimm árum síðar.

„Þessir tölvu­póstar stað­festa það sem okkur hefur lengi grunað og höfum sagt áður. Þáver­andi stjórn­endur Seðla­bank­ans héldu frá okkur gögnum og töldu það ekki eftir sér að fara vís­vit­andi með rangt mál fyrir dóm­stólum. Við birtum þessa tölvu­pósta núna svo fólk geti séð svart á hvítu að sam­skipti Rík­is­út­varps­ins og Seðla­bank­ans í aðdrag­anda hús­leit­ar­innar voru mjög óeðli­leg. Þessar stofn­anir höfðu sam­an­tekin ráð um árás á Samherja á grund­velli ásak­ana sem starfs­fólk þess­ara stofn­ana vissi að eng­inn fótur var fyrir, sem er auð­vitað grafal­var­legt,“ segir Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja.

Vegna yfir­lýs­inga for­svars­manna Rík­is­út­varps­ins hefur Samherji tekið ákvörðun um að birta umrædd tölvu­póst­sam­skipti og eru þau aðgengi­leg í tíma­röð hér. Þessi sam­skipti RÚV og Seðla­bank­ans eru nú til rann­sóknar hjá lög­reglu vegna kæru Samherja á vor­mán­uðum 2019 og eftir að for­sæt­is­ráð­herra vís­aði mál­inu þangað með bréfi hinn 11. sept­em­ber 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi