Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jökull átti að bíða 288 mínútur eftir strætó: „Bara 0,0006% af mannsævi. Hví þennan asa?“

Jökull átti að bíða 288 mínútur eftir strætó: „Bara 0,0006% af mannsævi. Hví þennan asa?“

Jökli nokkrum, íbúa í Vesturbæ Reykja­víkur, var ekki skemmt yfir bið­tím­anum sem honum var boðið upp á hjá Strætó. Hefði hann misst af næsta vagni voru nefni­lega tæpar fimm klukku­stundir í þann næsta.

Jökull vakti athygli á hinum mikla bið­tíma hjá Strætó inni í hverf­is­hópi Vest­ur­bæ­inga á Facebook. Um var að ræða leið 11 nærri Hótel Sögu við Hagatorg. „Þetta sá ég í strætó­skýl­inu við Hótel Sögu. Eru 288 mín­útur ekki full­langur bið­tími?,“ spyr Jökull.

Fjöl­margir furða sig á þessum langa bið­tíma og þjón­ustu Strætó almennt. Tón­list­ar­mað­ur­inn Jón Ólafsson veltir fyrir sér ástæðum þessa langa bið­tíma. „Skert þjón­usta? Nið­ur­skurður?,“ spyr Jón. Sunnefa Ger­hads­dóttir er ekki hrifin. „Meira ruglið,“ segir Sunnefa.

Atla Jós­efs­syni finnst hins vegar óþarfi að vera gera of mikið mál úr þess­ari þjónstu. „Þetta er samt bara 0,0006% af mannsævi. Hví þennan asa?,“ segir Atli.

Gerður Kristný rit­höf­undur blandar sér í umræð­una og segir frá nýlegri upp­lifun sinni í Strætó. „Það kastaði tólf­unum í morgun þegar ég tók tólf­una heim af Hlemmi. Ævin­týra­legri reisu hef ég varla upp­lifað – og hef ég þó tekið fimm vélar til Indónesíu og eitt­hvað álíka til Bangla­desh. Við beygðum til hægri við Suð­ur­göt­una, erf­iðum upp Tún­göt­una, beygðum til vinstri inn Garða­strætið og löll­uðum þá spök eftir Hóla­torgi. Þá beygðum við inn Ljós­valla­götu og hröktum þar bíl til baka þegar við ókum á móti umferð út á Miklu­braut. Ég hafði aldrei setið í strætó þarna megin við Hóla­valla­garð og fannst mikið til koma. Svo ókum við bara alls kyns leiðir eftir að yfir í 107 var komið. Þetta var svo mikið flipp að við Mela­skóla varð vagn­inn að bakka til að hann færi ekki að vaða yfir trjá­beð. Einhvern veg­inn komst ég svo heim til mín glöði bragð eins og krakki í barna­bók æsku minnar. Í alvöru! Mér fannst ég bæði hafa lært að mat­búa og jag­ast síðan svo kröft­ug­lega í lamaðri stúlku að loks sá hún sitt óvænna og steig alheil upp úr hjóla­stólnum. Nú mega jólin koma fyrir mér!,“ segir Gerður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi