Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Miriam Petra syrgir konu sem hún hitti einu sinni: „Maður veit aldrei hvaða fólk snertir við manni“

Miriam Petra syrgir konu sem hún hitti einu sinni: „Maður veit aldrei hvaða fólk snertir við manni“

Miriam Petra Ómars­dóttir Awad minn­ist skóla­systur föður hennar í færslu sem hefur vakið tals­verða athygli á Twitter. Miriam er hálf egypsk og lýsir því hvernig skóla­systk­ini hans hafi haldið sam­bandi svo ára­tugum skipti. Hún kynnt­ist einni skóla­systur hans og varði með henni einum degi í París. Hún lést nýverið og skrifar Miriam færsl­una af því til­efni.

„Hversu mikið teng­ist þið grunn­skól­anum ykkar? Þráður, en ekki alveg um það sem þið haldið: Pabbi minn gekk í grunn­skóla í Kaíró á árunum 1948-1956 sem hét English School Cairo. Grunn­skóli að enskri fyr­ir­mynd, skóla­bún­ingar, God save the King/Queen, allur pakk­inn. Krakk­arnir voru egypskir, grískir, Armenar, ítalskir, franskir, breskir, múslimar, kristnir, gyð­ingar – þver­skurður af egyp­sku sam­fé­lagi þess tíma. Umróta­tímar á árunum 1952-56 enda með Suez stríð­inu og skól­anum er lokað. Krakk­arnir fara öll í sitt­hvora átt­ina, pabbi sendur til Englands í nám og endar svo á Íslandi (önnur saga, líka áhuga­verð). Margir enda á Bret­landi, ein­hverjir í N-Ameríku, sumir áfram í Egypt. Þetta fólk er enn, ára­tugum seinna, að halda reunion. Þau voru nota bene 6-14 ára í þessum skóla. Fljúga milli landa til að mæta,“ lýsir Miriam.

Hún fór eitt sinn á slíkt bekkj­ar­mót. „Árlega er haldið eitt í Kaíró OG eitt í London. Í fyrra var mér boðið að vera semi heið­urs­gestur á hitt­ingnum í London – fyrir hvað? Jú þeim þótti svo vænt um pabba, honum fannst alltaf svo gaman að hitta þau, kannski ég vildi koma? Ég skellti mér með Eurostar og bauð gam­alli bekkj­ar­systur með mér. Hún nátt­úru­lega heill­aði armensku hjónin á borð­inu okkar upp úr skónum með ferða­sögum frá Armeníu og ég kynnt­ist gömlum vinum pabba. Og sög­urnar sem þetta fólk hefur að segja frá þessum tíma, eft­ir­stríðs­árin, mið-Aust­ur­lönd – & vin­átta sem enn er svo sterk,“ segir Miriam.

Ein skóla­systir hafði svo sam­band við Miriam síðar. „Fór svo aftur til Parísar þar sem ég bjó þá og nokkrum mán­uðum seinna hafði ein gömul kona úr hópnum sam­band, vildi bjóða mér í hádeg­is­mat fyrst hún var í bænum. Fyrir mat­inn kíktum við inn í Sacré Cœur og hún keypti enda­laust af minja­gripum og dóti fyrir vini sína, “Miriam, you see, I also like to pray in churches, it’s all the same god, really who cares” – nákvæm­lega eins og pabbi sagði svo oft. Þannig var bara stemm­ingin þegar þau voru að alast upp í Egypt. Hún gaf mér svo kerl­ing­ar­lega peysu í gjöf, Par­ís­ar­bolla úr túrista­búð og fárán­legt magn af kleenex pökkum. Gat ekki afþakkað, þeir sem hafa hitt gamlar mið­aust­ur­lenskar konur tengja.Kleenexið kom sér reyndar vel löngu seinna þegar það var orðið kalt í París,“ segir Miriam.

Hún segir að lokum að þetta sýni vel að maður veit aldrei hvaða fólk snerti við manni. „Ahh Camélia. Hún tal­aði og tal­aði, hætti ekki að brosa og hlæja, var eins og ætti auka ömmu í 1 dag Frétti áðan að hún væri dáin. Ég tók því nærri mér, hún var svo hlý og góð við mig, dóttur manns sem hún var með í grunn­skóla árið 1949ish og þau voru ekki einu sinni saman í bekk. Camélia, hvíldu í friði þú dásam­lega kona. English School Cairo var greini­lega magn­aður skóli Bottom line. Maður veit aldrei hvaða fólk snertir við manni né hvaða tíma það hefur á jörð­inni. Fólk er dásam­legt og að bind­ast vina­böndum getur greini­lega lifað af aðskilnað heims­álfa og tíma. That’s all. Eigið góða nótt .“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi