Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helgi horft upp á vini taka eigið líf: „Manni fannst maður ekki mega líða illa“

Helgi horft upp á vini taka eigið líf: „Manni fannst maður ekki mega líða illa“
Helgi Seljan blaða­maður.

Helgi Seljan frétta­maður hefur þurft að horfa á eftir vinum og jafn­öldrum sem sviptu sig lífi á Reyð­ar­firði þar sem hann ólst upp. Þar hafi sjálfs­víg verið það algeng á árum áður að halft þorpið hafi verið reglu­lega í jarð­ar­för.

Frá þessu sagði Helgi í podcasti Snæ­björns Ragn­ars­sonar, Snæbjörn talar við fólk, þar sem þeir ræddu heima og geyma. „Ég er alinn upp á stað þar sem lík­urnar á því að ég kom­ist í gegnum 17-25 ára ald­ur­inn voru bara tíu pró­sent minni en á næsta bæ og það mót­aði þetta sam­fé­lag og menn gáfust upp á líf­inu í kringum mig. Það er svona raun­veru­leiki sem ég hef áttað mig á að er svo fjarri hjá mörgum öðrum. Það er ekk­ert eðli­legt að í næstum því ára­tug sé hálft þorpið í jarð­ar­för út af því að ein­hvern ungur maður fyr­ir­fór sér,“ segir Helgi og heldur áfram:

„Ég horfði upp á það að vinir mínir misstu bræður sína eða náfrændur sína. Góður vinur minn og jafn­aldri líka. Þetta kom aldrei beint fyrir mig og manni fannst maður ekki mega líða illa, en þá fær maður sam­visku­bit, af hverju slapp ég. Maður fór að hugsa hluti eins og, hefði ekki verið eðli­legra að ég gerði þetta frekar en hann. Manni finnst svo­lítið eins og maður hafi ekki mátt gera þetta að sínu því í næsta húsi var eitt tómt her­bergi því að ein­hver ung­lingur dó og ákvað það sjálfur.“

„Ég lendi svo­lítið í því að vera eins og söngv­ar­inn í Creed í augum Sam­herj­a­manna. Það hata allir söngv­ar­ann í Creed og ég tek svo­lítið mikið hit­ann af þessu“

Helgi við­ur­kennir hafa átt í vand­ræðum með áfengi í gegnum tíð­ina og það var svo fyrir fimm árum að hann hætti að drekka. „Ég þótt­ist oft reyna að hætta að drekka og svo gerði ég það loks fyrir fimm árum síðan. Það var í sjálfu sér ekki erfitt en aðal­lega erfitt að átta sig á því af hverju ég væri ekki löngu búinn að gera þetta. Það var mikið sorg­ar­ferli að hætta þessu. Maður var búinn að lifa líf­inu eins og þetta væri eitt­hvað hald­reipi fyrir þig, í góðu eða slæmu, þá hefur maður alltaf þetta. Svo þegar þú hættir heldur þú að það séu bara berir veggirnir eftir en sem betur fer var ég fljótur að átta mig á því að svo er ekki,“ segir Helgi.

Þeir Helgi og Snæbjörn komust ekki í gegnum langt sam­talið án þess að Samherji bæri á góma. Helgi hefur einmitt verið skot­spónn útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins í því varn­ar­spili sem það hefur spilað und­an­farna mán­uði. „Ég lendi svo­lítið í því að vera eins og söngv­ar­inn í Creed í augum Sam­herj­a­manna. Það hata allir söngv­ar­ann í Creed og ég tek svo­lítið mikið hit­ann af þessu en ég var svo sann­ar­lega ekki einn að vinna þetta. Í raun var þetta heilt ár sem við vorum í þessu og vorum bara fjórir sem vissu hvað við værum að fara gera,“ segir Helgi Selja og bætir við:

„Þú gast í raun­inni ekki umgeng­ist neinn. Ef þú getur ekki rætt við fólk um vinn­una þína það er í raun eins og banna fólki að reyna brjóta ísinn og tala um veðrið. Þú getur í raun ekki verið týpan sem segir, ég get ekki talað um það. Og þú getur heldur ekki farið að ljúga að fólki, og þá er bara best að hitta ekki neinn og þess vegna ein­angrar maður sig svo­lítið mikið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi