Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Herdís er látin: „Hún bar umhyggju fyrir íbúum, sem réttara væri að kalla væntumþykju“

Herdís er látin: „Hún bar umhyggju fyrir íbúum, sem réttara væri að kalla væntumþykju“

Herdís Hólm­steins­dóttir geð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur er látin en hún var ein­ungis 66 ára. Herdís mark­aði djúp spor á mál­efni þeirra sem minnst mega sín á Íslandi. Hún var deild­ar­stjóri geð­deildar Land­spít­ala 33C á árunum 1989 til 1997. „Þá varð hún for­stöðu­maður sam­býlis fyrir geð­fatl­aða á Hring­braut 8 og sinnti þeirri for­stöðu í um ára­tug, ásamt því að sinna fag­legum störfum hjá Geðhjálp. Árið 2008 tók hún að sér stöðu sem verk­efn­is­stjóri vegna yfir­færslu geð­vængs SSR frá ríki til borgar,“ segir í yfir­liti Morg­un­blaðs­ins.

Minn­ing­ar­greinar um Herdísi minn­ast nær allar á glað­lyndi hennar og hve hjarta­hlý hún var. Halldór Kr. Júl­í­us­son sál­fræð­ingur starfi með henni þegar hún var for­stöðu­manns sam­býlis fyrir geð­fatlað fólk en hann sviðs­stjóri. Hann lýsir henni svo:

„Herdís var glað­lynd og mætti sam­starfs­fólki sínu og verk­efnum af jákvæðni og með opnum hug. Hún var fag­leg í allri sinni vinnu en hún hafði mikla reynslu af störfum á geð­deildum og þjálfun í með­ferð áður en hún réðst til starfa hjá SSR. Hún bar virð­ingu og umhyggju fyrir íbúum sam­býl­is­ins og starfs­fólki sínu, sem rétt­ara væri að kalla vænt­um­þykju. Herdís hafði ein­stakt og næmt inn­sæi sem nýtt­ist henni á öllum sviðum, jafnt í stjórnun sem í með­ferð­ar­starfi. Þá var Herdís mikil bar­áttu- og hug­sjóna­kona sem sá fyrir sér mikla upp­bygg­ingu félags­legrar þjón­ustu fyrir fólk með geð­fötlun og opnun geð­heilsu­stöðva þar sem fólk gæti sótt fyrstu línu aðstoð með geð­ræn og sál­ræn vanda­mál.“

Hann segir Herdísi enn fremur hafa mikil áhrif á mál­efni geð­fatl­aðra. „Áhrif Herdísar á þróun félags­legrar þjón­ustu fyrir geð­fatlað fólk liggja víða. Skipulag hennar á starf­semi sam­býl­is­ins á Hring­braut 8 (síðar Sól­eyj­ar­götu 39) varð fyr­ir­mynd að annarri búsetu­þjón­ustu. Þá vann hún ötul­lega að skipu­lagi nýrra hús­næðisúr­ræða SSR fyrir geð­fatlað fólk. Þegar Herdís hóf störf hjá SSR var ljóst að stór hluti geð­fatl­aðs fólks dvaldi á stofn­unum heil­brigð­is­kerf­is­ins. Á vor­dögum 2003 réðst SSR í að gera úttekt á fjölda geð­fatl­aðra Reyk­vík­inga innan geð­heil­brigð­is­þjón­ust­unnar sem gætu nýtt sér félags­leg búsetu­úr­ræði. Sú upp­lýs­inga­öflun, sem Herdís vann, var und­an­fari úttektar á lands­vísu sem þáver­andi félags­mála­ráð­herra lét gera og sem varð grund­völlur átaks í upp­bygg­ingu félags­legra hús­næðisúr­ræða fyrir geð­fatlað fólk, – Straum­hvarfa­verk­efn­is­ins. Eftir að Herdís réðst til starfa hjá Reykja­vík­ur­borg var vel­ferð­ar­sviðið fljótt að koma auga á hæfi­leika hennar og fól henni að byggja upp vett­vangs­geðteymi til stuðn­ings geð­fötl­uðum íbúum í búsetu­þjón­ustu, – mik­il­vægt fram­fara­spor í félags­legri þjón­ustu.“

Þóra Björk Bjarna­dóttir sál­fræð­ingur skrifar minn­ing­ar­grein fyrir hönd Vett­vangs­geðteymis Reykja­vík­ur­borgar og vitnar í fyrr­ver­andi vinnu­fé­laga Herdísar. Þóra segir sjálf um hana: „Hún hafði smit­andi ástríðu fyrir fag­inu og því að auka lífs­gæði ein­stak­linga með geð­rask­anir. Hún var góður vinnu­fé­lagi og hafði sínar skoð­anir og var föst fyrir en rétt­sýn og frá­bær málsvari fyrir not­endur þjón­ust­unnar.“

Líkt og fyrr segir þá vitnar Þóra í nafn­lausa sam­starfs­menn Herdísar. „Eftir frá­fall Herdísar hafa teym­inu borist margar kveðjur frá fyrr­ver­andi sam­starfs­fé­lögum hennar og eru þær lýsandi fyrir eig­in­leika hennar og hvað hún skilur eftir: „Herdís var hjarta­hlý og ekk­ert verk­efni var of lítið eða of stórt fyrir hana og hjarta hennar brann fyrir fólki með geð­sjúk­dóma.“ „Hún var ein­stök, það var gott að vinna með henni og hún var góður hlust­andi.“ „Ég leit á Herdísi sem vin­konu mína. Hún var dásam­leg mann­eskja.“ „Hún gerði svo mikið fyrir mig og var sú reynslu­mesta og besta mann­eskja sem ég hef unnið með. Hún gleym­ist ekki.“ „Herdís var frá­bær og ynd­is­leg að kynn­ast. Fag­mann­eskja og gef­andi að vinna með henni. Blessuð sé minn­ing hennar sem mun lifa.“ „Minnist hennar með hlý­hug og virð­ingu.““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi