Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svona kvaddi 10 ára gutti Fjölni afa sinn – Jónas deilir hugljúfri teikningu: „Bye afi“

Svona kvaddi 10 ára gutti Fjölni afa sinn – Jónas deilir hugljúfri teikningu: „Bye afi“

Jónas Har­alds­son blaða­maður skrifar áhuga­verðan pistil á vefnum Lifðu núna um ensku­notkun barna í dag. Hann segir sögu af því þegar barna­barn hans missti hinn hinn afa sinn þá hafi dreng­ur­inn skrifað hinstu kveðj­una á ensku. Hún hafi þó verið ákaf­lega hug­ljúf engu að síður.

„Hvað gerir 10 ára gutti sem stendur frammi fyrir því að kveðja afa sinn hinstu kveðju? Jú, hann kveður hann á sinn hátt, með elsku­legri kveðju, en kannski – og að vonum – nokkuð undir áhrifum Youtube og þeirrar ensku sem nútíma­börn læra sjálf­krafa með snjall­síma- og tölvu­notkun. Því neitar eng­inn að börn á þessum aldri eru býsna glúrin þegar kemur að notkun þess­ara mögn­uðu tækja, þótt deila megi um lengd þess tíma sem þau verja í sím­anum eða tölv­unni. Og ensku­kunn­áttan fylgir með. Nánast allt það efni sem börnin skoða í snjall­tækj­unum er á ensku og áður en nokkur veit eru þau mæl­andi á enska tungu löngu áður en til form­legs ensku­náms kemur,“ segir Jónas.

Afi pilts­ins var Fjölnir Björns­son sem lést 3. októ­ber síð­ast­lið­inn. „Þessi tíu ára yng­is­sveinn, sem að ofan er getið, er son­ar­sonur okkar hjóna en hann býr með for­eldrum sínum og systk­inum í Danmörku. Móðurafi hans, Fjölnir Björns­son, lést nú á haust­dögum eftir skamm­vinn veik­indi. Dreng­ur­inn kom því hingað til lands með sínu fólki vegna útfarar afa síns,“ segir Jónas.

Jónas segir að Fjölnir og barna­börnin hafi náð ákaf­lega vel saman. „Það var kært með móð­uraf­anum og barna­börn­unum enda var Fjölnir hlýr maður og umhyggju­samur. Það var því með sorg í hjarta sem börnin fylgdu afa sínum síð­asta spöl­inn. Að lok­inni kistu­lagn­ingu og útför vildu þau minn­ast hans á sinn hátt. Full­orðið fólk sendir blóm, sam­úð­ar­skeyti og þess háttar en annað hentar börnum betur. „Hvað eigum við að gera?” spurðu þau mömmu sína. „Þið getið perlað eitt­hvað fal­legt eða teiknað mynd sem við getum sett á leiðið hjá afa,” sagði mamma þeirra,“ lýsir Jónas.

Börnin vildu það vissu­lega. „Börnin tóku hana á orð­inu og hófust handa. Það dreifði hug­anum að búa eitt­hvað fal­legt til fyrir afann sem þeim þótti svo vænt um. Þau gáfu sér góðan tíma og perluðu, m.a. fal­legt hjarta og litla kan­ínu sem hægt var að leggja á leiðið. Tíu ára dreng­ur­inn vildi gera eitt­hvað annað svo mamma hans stakk upp á því að hann teikn­aði mynd fyrir afa sinn sem leggja mætti á leiðið. Það leist okkar manni vel á svo hann fékk blað og og liti,“ segir Jónas.

Hann lýsir svo því sem börnin lögðu á leiðið. „Þegar allt var til­búið fóru for­eldr­arnir með börnin að leiði afa síns. Perlu-kan­ín­unni var komið fal­lega fyrir sem og lit­skrúð­ugu hjart­anu. Síðan afhenti tíu ára pilt­ur­inn móður sinni teikn­ing­una sem hann hafði lagt hug og hjarta í. Þar sást sól og jörð, flug­vél á lofti sem vænt­an­lega tákn­aði ferð­irnar milli land­anna tveggja, íslenski fán­inn og loks skip á haffleti. Það var tákn­rænt því Fjölnir afi var fyrr á starfs­ferli sínum stýri­maður og skip­stjóri,“ segir Jónas.

Umrædd kveðju­orð voru þó mest áber­andi að sögn Jónasar. „En mest áber­andi á mynd­inni voru kveðju­orð til afa. Dreng­ur­inn er almæltur á íslensku – og dönsku, að sjálf­sögðu, þar sem hann hefur gengið í skóla í Danmörku und­an­farin ár – en hann ákvað engu að síður að minn­ast afa síns á ensku, sem hann kann vel eftir alla tölvu­leik­ina og Youtube-áhorfið. Áhrif þess leyndu sér ekki þegar hann rétti mömmu sinni mynd­ina til að leggja á leiðið en stóð þar skýrum stöfum:

Bye Fjölnir

you will

be mis­sed.

Efst í hægra horn­inu stóð, stutt og laggott: Love Viggó.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi