Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sighvatur steinhissa: „Mér – gömlum manninum – brá talsvert þegar RÚV valdi „manneskjur ársins“.“

Sighvatur steinhissa: „Mér – gömlum manninum – brá talsvert þegar RÚV valdi „manneskjur ársins“.“
Sig­hvatur Björg­vins­son

Sig­hvatur Björg­vins­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, seg­ist ekki alls kostar sáttur með RÚV og þá ákvörðun að velja „ein­stak­ling árs­ins“ en ekki „mann­eskju árs­ins“. Hann segir að menn séu ekki ein­ungis karl­menn og vitnar máli sínu til stuðn­ings í orð Vigdísar Finn­boga­dóttur, fyrr­ver­andi for­seta.

„Ég verð að játa, að mér – gömlum mann­inum – brá tals­vert þegar RUV valdi í gær­kvöldi þau (má víst alls ekki segja þá) sem RUV sagði vera „mann­eskjur árs­ins“. Ekki brá mér út af því hverjir valdir voru. Var sam­sinna því. Valdar voru mjög vel valdar „mann­eskjur“. En hvað um nafn­gift­ina. Hefur núver­andi kyn­slóð breytt skil­grein­ingu sinni á því hvað telst vera maður? Telur þessi kyn­slóð eða full­trúar hennar að mik­ill maður hljóti ávallt að vera karl­maður. Mikil kona geti ekki verið mik­ill maður – en kannske mikil mann­eskja?,“ spyr Sig­hvatur.

Hann spyr hvort fjöldi orða af sömu rót séu nú bönnuð. „Mér kemur í hug athygl­is­vert við­tal við þáver­andi for­seta­fram­bjóð­anda, Vigdísi Finn­boga­dóttur, þegar hún vís­aði á bug aðfinnslum við fram­boði sínu með þess­ari gull­vægu setn­ingu „Ég er maður“. Telja ein­hverjir Íslend­ingar þá yfir­lýs­ingu ekki lengur gilda? Hugtakið „mannúð“ eigi ekki lengur við neina aðra en bara karla? Hugtakið „menn­ing“ eigi ekki við um konur? Svo ekki sé nú rætt um hug­takið „mann­vonska“. Það merki sem sé bara vonda karla? „Mann­fyr­ir­litn­ing“ vænt­an­lega bara fyr­ir­litn­ing karla. „manngæzka“ merki bara góðu karl­ana (sem eru þá a.m.k. góðir við við konur) og „mann­tal“ hve margir karlar eru í hverju sam­fé­lagi til þess að keppa við konur?,“ spyr Sig­hvatur.

Hann ávarpar svo les­endur og spyr hvort fólk sé sam­mála honum. „Þykir ykkur les­endum ekki hér vera nokkuð langt seilst. Þegar því er neitað í raun að kven­maður geti verið og sé maður eins og Vigdís sagð­ist vera en að auð­kenna kon­una verði með öðru heiti en aðra menn? Þegar svo mis­jafnan mæli­kvarða á að leggja á kynin, að hafna verði því að kona sé maður eins og Vigdís lýsti sér, hvað eigum við þá að gera ef svo vildi til að hvorki kyn­greindur karl né kyn­greind kona hefði verið valin full­trúi árs­ins hjá íslenskri þjóð – heldur ein­hver af öðru kyni. Eigum við þá t.d. að ræða um við­kom­andi sem „hvor­ug­kyns­veru“ árs­ins – nú eða „ókyn­veru“ árs­ins ? Eða „hinseg­in­mann­eskju árs­ins“?,“ spyr Sig­hvatur og heldur áfram:

„Hvað segja femínistar – og RUV? Hvað þykir þér, les­andi góður? Að ég sé fullur kven­hat­urs? Skilji ekki rétt­inda­bar­áttu kynj­anna? Eða sé bara gam­al­menni, sem ekk­ert erindi eigi upp á dekk? Svona álíka gam­all og þegar hug­takið maður átti við hvort heldur sem er kven­menn eða karl­menn og jafn­framt allar aðrar mann­eskjur eins og mér var kennt frá barn­æsku og kennt að bera virð­ingu fyrir. Þegar menn árs­ins gáru verið aðrir en bara ein­hverjir karlar – eins og til dæmis líka kona, land­lækn­ir­inn!?! Ásamt auð­vitað Vigdísi okkar Finn­boga­dóttur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi