Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lára Guðrún barðist fyrir lífi sínu á liðnu ári: „Þetta var algert helvíti“

Lára Guðrún barðist fyrir lífi sínu á liðnu ári: „Þetta var algert helvíti“
Lára Guðrún bug­að­ist þegar hún fékk ung­barnið í hendur.

Lára Guðrún Jóhönnu­dóttir er ansi fegin því að árið 2020 er að baki. Ár þar sem hún barð­ist fyrir lífi sínu og var algert hel­víti að hennar sögn. Í raun var það svo erfitt að hún ótt­að­ist dauð­ann í árs­lok.

Það má með sanni segja að síð­asta ár hafi verið Láru erfitt þar sem hún glímdi við mik­inn heilsu­brest og hvert áfallið á fætur öðru dundi yfir. „Maður heldur bara áfram að bragg­ast, þetta er skref fyrir skref. Ég von­ast til að þetta fari allt saman vel en tekur bara sinn tíma,“ segir Lára í sam­tali við Mannlíf.

Lára skilur ekk­ert í hversu erfitt læknum reynd­ist að finna út hvað var að.

Lára lýsir hörm­ung­ar­ár­inu í færslu á Facebook. „Síðasta ár var algert hel­víti. Það var svo erfitt. Svo erfitt að ég átti alveg eins von á því að deyja fyrir árs­lok. Ég flakk­aði á milli lækna með A4 blað af ein­kennum og ég fékk alltaf sama svarið: “Þetta er bara streita”. Það hlust­aði eng­inn á mig og ég var á tíma­bili búin að sann­færa sjálfa mig um að ég væri bara með svona svaka­lega laskað mið­tauga­kerfi að ég væri ein­fald­lega að tapa vit­inu,“ segir Lára og heldur áfram:

„Það var ekki fyrr en ég hafði misst 14 kíló, helm­ing­inn af hár­inu, komin með alvar­legar sjón­trufl­anir, búin að missa alla til­finn­ingu í fót­unum, með djöfla­þorsta allan sól­ar­hring­inn og svo mikla mæði að ég komst varla upp tröpp­urnar heima hjá mér, að hjúkr­un­ar­fræð­ingur stakk upp á því að ég myndi óska eftir mæl­ingu á lang­tíma­sykri (HBA1C).“

„Mér leið stundum eins og ég myndi sofna og aldrei vakna aftur.“

Það var svo á Þor­láks­messu sem Lára var kölluð inn á Land­spít­al­ann. Þar seg­ist hún hafa fengið jóla­gjöf­ina sína, gjöf sem hún hefði óskað sér að fá ekki. „Syk­ur­sýki 1. Send heim með bunka af bæk­lingum, insúl­ín­sprautur, nálar, blóð­hnífa og blóð­syk­ur­mæli. Og boðin vel­komin á inn­kirtla­deild­ina fyrir lífs­tíð. Þessi jól og ára­mót hafa verið væg­ast sagt krefj­andi fyrir mig og fjöl­skyld­una mína. Blóð­syk­ur­inn minn var orð­inn svo hár að talan komst ekki fyrir á “HRINGDU Á LÆKNI STRAX ÞÚ ERT Í HÆTTUÁSTANDI” plakatinu sem hékk á veggnum á spít­ala­her­berg­inu,“ segir Lára.

„Ég man hvað ég fann það sterkt hversu veik­burða ég væri orðin þegar ég fékk hana í fangið. Hún var nokk­urra sól­ar­hringa gömul, full­komið ljós, full af lífi. Og ég var full­komin and­stæða. Að vesl­ast upp. Að berj­ast fyrir lífi mínu. Hanna Lillý bjarg­aði lífi mínu.“

Lára var kom­inn í það mikið hættu­á­stand að hún þurfti að vakna á tveggja klukku­stunda fresti yfir hátíð­irnar til að sprauta sig með insúl­íni og því miður hefur hún orðið fyrir óaft­ur­kræfum skaða vegna veik­ind­anna. Hún botnar ekk­ert í því hversu lengi læknar voru að greina hvað hráði hana. „Mér leið stundum eins og ég myndi sofna og aldrei vakna aftur. Það er langur vegur framundan og ég von­ast til þess að end­ur­heimta sem allra mest af fyrri styrk, en það er þó ein­hver skaði sem hefur orðið vegna sjúk­dóms­ins sem er því miður ekki aft­ur­kræfur. Við erum ennþá í áfalli yfir því hversu langan tíma það tók að kom­ast til botns í þessu. Það er samt alger­lega á hreinu að það fær eng­inn læknir að segja við mig aftur að ég þjá­ist “bara af streitu”. Ég þekki lík­ama minn best og hef áður bjargað lífi mínu með inn­sæ­inu og með því að hlusta á hvað hann er að segja mér,“ segir Lára og bætir við:

Láru bíður nú langt bata­ferli en hún von­ast til að ná sem mestu af kröftum til­baka.

„Það sem ég lærði á síð­asta ári er að lík­am­inn minn er sterkur. Hvöt mín til að lifa af er hvöt sem hefur búið inní mér í þús­undir ára. En mikið and­skoti er ég orðin þreytt. Þannig að núna ætla ég að eiga í heitu ást­ar­sam­bandi við insúlín og blóð­syk­ur­stjórnun. Ég læri nú ennþá betur á lík­amann minn. Og ég mun hafa enn betri yfir­sýn. Að hafa vald yfir blóð­sykrinum er vald sem ég ætla nú ekki að syrgja mikið eða lengi að hafa fengið í fangið, sem var faktískt séð fullt fyrir, ég verð bara að stækka faðm­inn ennþá meira. En akkúrat núna erum við fjöl­skyldan í aðlögun og þetta er töff. Verulega töff.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi