Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bryndís ræðst á Laufeyju, hún sé öryrki sem drekki ofan í verkjalyf – „Er as low as you can go”

Bryndís ræðst á Laufeyju, hún sé öryrki sem drekki ofan í verkjalyf – „Er as low as you can go”

„Allir sem þekkja okkur Jón Baldvin, vinir og kunn­ingjar, vita, að við erum hvorki ruddar né dóna­kallar. Við erum mann­vinir, og umgöng­umst fólk af virð­ingu og vænt­um­þykju – kannski for­vitni, en aldrei óþarfa ágengni. Hvað þá, ef við þekkjum fólk ekki neitt og höfum aldrei séð áður.“

Þetta segir Bryndís Schram á Facebook síðu sinni. Þar fer hún ófögrum orðum um Laufeyju, móður Carmen Jóhanns­dóttur sem  sakar Jón Baldvin Hanni­bals­son um kyn­ferð­is­brot. Carmen hefur áður lýst atvik­inu svo:

„Svo sat vin­kona þeirra á milli þeirra og ég og mamma. Ég sat næst honum. Þegar ég stóð upp á einum tíma­punkti og fór að skenkja í glösin, þá bara gerði kall­inn sér lítið fyrir og byrj­aði að strjúka á mér rass­inn. Og ekk­ert bara rétt aðeins, heldur upp og niður strjúka á mér rass­inn.“

Carmen sagði í pistil á vef Mannlífs að hún von­að­ist til þess að rétt­lætið myndi sigra. Henni varð ekki að ósk sinni en ákæru sak­sókn­ara á hendur Jóni Baldvini Hanni­bals­syni fyrir að hafa strokið Carmen utan­klæða um rass  á heim­ili hans í Granada á Spáni 2018 var í dag vísað frá Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Bryndís birtir langan pistil þar sem hún

Bryndís segir að þetta kvöld hafi hún lagt hvítan dúk á borð og borið fram sín bestu glös. Í mat­ar­boð­inu var nágranni hennar og síðan Laufey og tvær dætur hennar.

„Jón Baldvin fór í það að bera borð­búnað og mat­föng upp á þak, þar sem gest­irnir voru að dást að útsýn­inu. Hann átti síðan að vísa þeim til sætis, svo að allir væru sestir, þegar ég kæmi upp með fangið fullt,“ segir Bryndís og kveðst hafa haft heim­ildir fyrir því að Laufey móðir Carmen væri öryrki á sterkum lyfjum.

„Eftir á að hyggja skýrir það ýmis­legt sem á eftir fór,“ segir Bryndís og bætir við á öðrum stað:

„Carmen gekk á undan mér, og ég stóð fyrir aftan hana á meðan hún lagði grjónin og sal­atið á mitt borðið. Síðan sett­ist hún við hlið móður sinnar. Það var samt þó nokkuð bil á milli þeirra, þar sem Laufey hafði fært sig til. Þegar ég hafði lagt kjúkling­inn á borðið fyrir framan hús­bónd­ann, sem ætl­aði að skammta á diska gesta, sett­ist ég í mitt sæti með þessum orðum:

„Velkomin, og verði ykkur að góðu“.

Ég hafði ekki fyrr sleppt orð­inu en Laufey æpir alveg upp í eyrað á mér:

„Jón Baldvin, þú átt að biðja dóttur mína afsök­unar, því að ég sá, að þú káf­aðir á henni“! Mér rann kalt vatn milli skinns og hör­unds. Það fer enn um mig hrollur, þegar ég minn­ist þess­ara orða. Illskan í orðum Lauf­eyjar kom mér svo á óvart. Hún var svo heift­úðug og níst­ingsköld.“

Bryndís bætir við: „Mamma, ég get alveg séð um mig sjálf“ æpti Carmen, um leið og hún struns­aði niður tröpp­urnar. En móðir hennar hélt áfram að hella úr skálum reiði sinnar. Ég var ger­sam­lega ráð­þrota.“

Bryndís segir að eftir þetta hafi borð­haldið verið í upp­námi.

„Jón Baldvin var reiður, ég alger­lega miður mín, og grann­konan horfði á mig spurn­ar­augum, gap­andi af undrun. Hún hristi bara höf­uðið.“

Bryndís heldur fram að Jón Baldvin hafi látið sig hverfa inn í her­bergi og lokað á eftir sér.

„Laufey var enn óða­mála og rudd­ist inn til hans, þar sem hún æpti ókvæð­is­orð að honum. Þegar hér var komið sögu, var Jóni Baldvini ger­sam­lega mis­boðið,“ segir Bryndís og bætir við: „Hann var ösku­reiður og skip­aði Laufeyju að snauta burt, hypja sig út. Hún hélt áfram að atyrða hann, um leið og hún greip far­angur sinn og æddi út í átt að bílnum.“

Þá heldur Bryndís áfram að draga úr trú­verð­ug­leika Lauf­eyjar, móður Carmen. Hún kveðst hafa haft áhyggjur að mæðgurnar færu sér á voða á hrað­braut­inni.

„ … búnar að sitja heilan fót­bolta­leik á torg­inu fyrr um dag­inn, þar sem Laufey hafði, að sögn sjón­ar­votta, drukkið ótæpi­lega, þrátt fyrir að mega ekki, að eigin sögn, drekka ofan í lyfin sín,“ segir Bryndís og bætir við að lokum: „Kannski það skýri að ein­hverju leyti þessa ótrú­legu – og satt að segja – óskilj­an­legu fram­komu.“

Carmen hefur áður sagt að ógeð­fellt sé á hvaða hátt Jón Baldvin beiti Bryndísi í málsvörn sinni og hafi staðið fyrir skipu­lagðri aðför að mann­orði hennar sem og Bryn­dísar. Þá steig fjöldi kvenna fram og sak­aði Jón Baldvin bæði um gróft kyn­ferð­is­of­beldi og kyn­ferð­is­lega áreitni. Einnig var stofnuð grúppa á Facebook sem heitir #metoo Jón Baldvin Hanni­bals­son.

Carmen hefur full­yrt að henni hafi verið hótað mál­sókn af Jóni Baldvini ef hún myndi greina frá því sem gerð­ist opin­ber­lega. Carmen sagði í sam­tali við DV á sínum tíma:

„Við heyrðum Jón Baldvin sturl­aðan, öskr­andi, þegar við fórum út. Mamma kom klyfjuð út með allan far­ang­ur­inn okkar og hann hróp­aði á eftir henni: „Ef þið farið með þetta í fjöl­miðla þá lög­sæki ég ykkur!“

Í pistl­inum á vef mann­líf, sagði Carmen:

„Það er ofboðs­lega sorg­legt. Hann [Jón Baldvin] afhjúpar sig, hvort sem hún tekur þátt í því eða ekki. Þetta er ákveðið ofbeldi að beita öðrum svona fyrir sig. Þeirra fjöl­skyldu harm­leikur er kom­inn frá þeim sjálfum. Það er algjör stað­reynd. Hann heldur þessu á lofti. Þetta er as low as you can go.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi