Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gná loksins komin heim af spítalanum: „Leið eins og einhver væri að stinga mig með hníf í magann“

Gná loksins komin heim af spítalanum: „Leið eins og einhver væri að stinga mig með hníf í magann“

Gná Jóns­dóttir háskóla­nemi upp­lifði erfið ára­mót vegna veik­inda sem hún hafði aldrei heyrt um fyrr. Hún er loks­ins komin heim af spít­al­anum en hennar bíður nú margra mán­aða end­ur­hæf­ing til að ná upp fyrra formi.

Í sam­tali við Mannlíf finnst henni mik­il­vægt að segja sögu sína því þarna úti geti verið fjöldi kvenna sem upp­lifi sömu veik­indi án þess að vita nokkuð um það. „Ég velti því fyrir mér hversu margar konur upp­lifa þessa verki og hafa ekki hug­mynd um hvað er í gangi, tala ekki um það vegna þess að það er of “við­kvæmt” umræðu­efni. Er ein­hver skömm eða eitt­hvað tabú í sam­bandi við kven­sjúk­dómar? Bara að spá sko…,“ segir Gná.

Sjúk­dóm­ur­inn sem hrjáir Gná heitir fjöl­blöðru­eggja­stokka­heil­kenni (e. PCOS) og byrj­aði hún að finna til ein­kenna dag­inn fyrir síð­asta gaml­árs­dag. „Ég byrj­aði að fá geggj­aða verki í kviðnum, ég vissi ekki alveg hvað þetta væri en hugs­aði með mér að þetta væri bara mjög slæmir túr­verkir, skrýtið samt hvernig þetta byrj­aði að leiða út um allan lík­amann, en hugs­aði samt að þetta væri bara túr­verkir. Nóttin var svo sem allt í lagi og ég vakn­aði í skárra ástandi en ég hafði sofnað í, ennþá verkir en þeir voru þó ekki eins brú­tal og kvöldið áður og ég ætl­aði nú ekki að láta ein­hverjir túr­verkir stoppa mig frá því að kveðja árið 2020 almenni­lega,“ segir Gná og heldur áfram:

„En þetta versn­aði og þegar nýja árið rann upp gat ég varla staðið í lapp­irnar af sárs­auka og svima. Nú var þetta orðið of skrýtið, ekki séns að þetta væri bara eitt­hvað eðli­legt, ég var alveg mátt­laus, hvít í framan, titr­andi og óglatt, leið eins og ein­hver væri að stinga mig með hníf í mag­anum. Við reyndum að hafa sam­band við lækna­vakt­ina en þar var lokað, svo hringdum við í bráða­mót­tök­una og útskýrði þessa brú­tal verki sem ég var með ásamt öllu hinu, ógleði, svima o.s.frv.“

Gná er nú að jafna sig eftir spít­ala­dvöl­ina og kynna sér sjúk­dóm­inn.

Loks þegar Gná náði síma­sam­bandi við bráða­mót­tök Land­spít­ala var henni sagt að hafa engar áhyggjur því þetta væru sjálf­sagt annað hvort tíða­verki eða melt­ing­ar­trufl­anir. Líkt og henni sjálfri hafði fyrst dottið í hug. „Ég var svo ringluð og mér leið eins og hálf­vita, fékk ofsa­kvíða­kast og ákvað og best væri að fara heim að hvíla mig og gá hvort ég væri ekki betri dag­inn eftir. Eftir mjög svefn­lausa nótt fór ég uppá lækna­vakt, send þaðan á bráða­mót­tök­una og svo með sjúkra­bíl á kvenna­deildin á lands­spít­al­ann. Þrátt fyrir blóð­gjöf á það eftir að taka ein­hverjar vikur/mán­uði fyrir lík­am­inn að kom­ast í venju­legt form en ég er þó á bata­veg,“ segir Gná.

Eins og áður sagði er Gná komin heim til sín af spít­al­anum og er nú í róleg­heit­unum að kynna sér sjúk­dóm­inn sem kvelur. „Svona fyrir þá sem hafa ekki heyrt um fjöl­blöðru­eggja­stokka­heil­kenni þá er það eitt­hvað sem hrjáir um það bil 1 af hverjum 5 konum í hinum vest­ræna heimi, ef þú hafðir ekki heyrt um þetta áður þá ertu eins og ég. Samt smá skrýtið fyrst að þetta er svona algengt meðal kvenna. Ég hafði aldrei heyrt um þetta, eða þar til að blaðra sprakk hjá mér. Þegar blaðra springur veldur það sárs­auka sem er mis­vondur miðað við hvað blaðran er stór. Yfir­leitt er ekk­ert gert, s.s. blaðran springur, vökvi úr blöðr­unni dreif­ist um kvið­inn og konan finnur fyrir miklum verkjum, tekur ibófen og svo bara búið. Stundum þarf konan að fara uppá spít­ala ef blaðran er stór eða, eins og í mínu til­viki þarf konan að fá blóð­gjöf vegna mikið blóð­tap og lyf til að stoppa blæð­ing­una,“ segir Gná.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi