Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ársæll skólastjóri varpar ljósi á árásina í bréfi til foreldra: „Ofbeldið má ekki ná að sigra“

Ársæll skólastjóri varpar ljósi á árásina í bréfi til foreldra: „Ofbeldið má ekki ná að sigra“

Alvarleg árás átti sér stað í Borg­ar­holts­skóla í hádeg­inu fyrr í dag. Voru sex nem­endur fluttir á spít­ala. Þeir voru ekki alvar­lega særðir. Ekki hefur verið alveg ljóst hvers vegna árásin átti sér stað. Nú hefur Ársæll Guð­munds­son, skóla­stjóri varpað ljósi á málið í bréfi sem hann sendi for­eldrum skól­ans. Þar kemur meðal ann­ars fram að um hafi verið að ræða upp­gjör á milli hópa sem upp­haf­lega átti að fara fram á öðrum stað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Í bréf­inu segir að þeir sem báru hnífa eru ekki nem­endur skól­ans. Ársæll segir:

„Ofbeld­is­menn mættu í skól­ann vopn­aðir hnífum, hnúa­járnum og hafna­bolta­kylfu í ein­hverju að því er virð­ist upp­gjöri sem okkur skilst að hafi átt að fara fram allt ann­ars staðar. Vitað er að ofbeld­is­menn­irnir sem báru hnífa eru ekki nem­endur skól­ans en málið er í rann­sókn hjá lög­regl­unni og mun skýr­ast á næstu dögum.“

Þá útskýrir Ársæll af hverju nem­endum var haldið inn­an­dyra og hleypt út í hollum.

„Þar sem einn ofbeld­is­mann­anna komst undan á hlaupum var allt kapp lagt á að koma nem­endum í öruggt skjól með því að halda þeim í stofum og senda þá heim í hollum. Skólinn var rýmdur meðan sér­sveit lög­regl­unnar var á staðnum,“ segir Ársæll og bætir við:

„Við erum öll mjög miður okkar vegna þessa atburðar en erum stað­ráðin í því að láta hann ekki eyði­leggja fyrir okkur frá­bært skóla­starf Borg­ar­holts­skóla og halda áfram skóla­starf­inu þegar á morgun. Nemendum stendur til boða áfalla­hjálp sér­fræð­inga og hafa þeir aðgang að þeim allan dag­inn í stofum 103 og 105. Hvet ég ykkur til að ræða þennan atburð heima og alla nem­endur til að sækja skól­ann á morgun skv. stunda­skrá og hika ekki við að ræða við sér­fræð­ing­ana frá Miðgarði, náms­ráð­gjafa skól­ans, kenn­ara, umsjón­ar­kenn­ara og stjórn­endur um þennan atburð, sér­stak­lega þeim sem líður illa. Kennarar munu ræða þennan atburð við nem­endur sína á morgun en það er mjög mik­il­vægt að eiga sam­talið.“

Ofbeldið má ekki sigra

Þá geta nem­endur sótt þær skóla­töskur sem urðu eftir á morgun. Þá verður aðeins hægt að ganga inn um aðal­inn­gang skól­ans og þess sér­stak­lega gætt að óvið­kom­andi kom­ist ekki inn í skóla­bygg­ing­una. Þá segir Ársæll að lokum:

„Við viljum þakka nem­endum fyrir yfir­veguð við­brögð í dag og leggjum ríka áherslu á að ofbeldið má ekki ná að sigra í okkar góða sam­fé­lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi