Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hetjur stíga fram opinberlega í fyrsta sinn: Ragna, 72 ára, vorkennir Jóni Baldvin og Bryndísi

Hetjur stíga fram opinberlega í fyrsta sinn: Ragna, 72 ára, vorkennir Jóni Baldvin og Bryndísi
Ljósmynd af Frétta­blað­inu

Ragna Björg Björns­dóttir 72 ára, Sig­ur­björg Jóns­dóttir og Elísabet Sif Helga­dóttir taka stórt skref og  í fyrsta sinn stíga þær fram opin­ber­lega og svara Jóni Baldvini fullum hálsi, undir nafni og mynd.

Það er sjald­gæft að eldri konur, sem hafa alist upp á tímum þögg­unar, stígi fram. En sá múr er að brotna líka, þökk sé hug­rekki kvenna sem

vilja skila skömminni.

Rætt er við kon­urnar í Frétta­blað­inu. Tugir kvenna hafa á síð­ustu árum stígið fram og sakað Jón Baldvin Hanni­bals­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra um kyn­ferð­is­lega áreitni og alvar­legt kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Margar þeirra hafa sagt sögu sína í fjöl­miðlum undir nafni. Þá hafa birst frá­sagnir frá konum sem segj­ast hafa verið á aldr­inum 13 til 14 ára þegar meint kyn­ferð­is­leg áreitni á að hafa átt sér stað. Þær voru þá nem­endur í Haga­skóla og kenndi Jón Baldvin þessum nem­endum árið 1967.

Jón Baldvin hefur haldið fram að frá­sagnir þeirra og ann­arra kvenna sé upp­spuni og megi rekja til Aldísar Schram, dóttur Jóns og Bryn­dísar. Það hefur oft verið hrakið, meðal ann­ars í Stund­inni. Aldís hefur sakað föður sinn um að hafa kyn­ferð­is­lega áreitt hana. Aldís var einnig svipt frelsi af Jóni Baldvin og nauð­ung­ar­vi­stuð á geð­deild. Virðist Jón Baldvin trúa að Aldís stýri hópi tugi kvenna gegn sér í ann­ar­legum til­gangi!

Ragna Björg segir í sam­tali við Frétta­blaðið að fólk hafi látið allt eftir Jóni Baldvini og hann hafi fengið að koma fram við fólk eins og honum listi. Ragna Björg sem er eins og áður segir 72 ára sakar Jón Baldvin um að brjóta á sér kyn­ferð­is­lega er hún var við störf í ráð­herra­bú­staðnum. Jón Baldvin var drukk­inn þessa nótt og er sagður hafa brotið rán­dýr krist­als­glös og fleira. Ragna segir:

„Allt í einu þeys­ist hann inn í eld­hús og galar:

Mig vantar kven­mann!

Hann rýkur á mig, kemur aftan að mér, grípur utan um mig og klípur í brjóstin á mér. Ég gat ekk­ert losnað frá honum.“ Ragna Björg hafði áður sagt sögu sína nafn­laust og vakti frá­sögn hennar þá strax óhug. Ragna seg­ist hafa hrópað á Jón Baldvin:

„Farðu, kar­land­skoti.“

Þá birt­ist yfir­maður hennar og þakkar Ragna að hann hafi getað aðstoð­aði hana að losna frá ráð­herr­anum. Ragna segir að þá hafi hann snúið sér að 16 ára þjón­ustu­stúlku. Yfir­mað­ur­inn hafi þá logið að hún hafi verið 13 ára. Hringt var á leigu­bíl og kveðst Ragna hafa orðið ill Jóni þegar stúlkan fór með en hún segir Jón Baldvin hafa neitað að fara í bíl­inn án hennar. Ragna segir:

„Mér fannst þetta svo ógeðs­legt og mér brá svo ofboðs­lega. Mér leið eins og ég væri stödd í ein­hverri vit­firr­inga­ver­öld.“

Jón Baldvin hefur haldið fram að Aldís Schram hafi spunni ð þessa frá­sögn. Svar Rögnu við þeim sam­sær­is­kenn­ingum að konur séu oft stimpl­aðar geð­veikar.

„Það er syndrómið í þessum mönnum, þeir geta ekk­ert annað en kallað konur geð­veikar sem dirfast að stíga fram. Þetta er sagan enda­lausa …“

segir Ragna og bætir við að MeToo bylt­ingin sé rétt að byrja.

Jón Baldvin hefur end­ur­tekið þrætt fyrir að hafa verið í ráð­herra­bú­staðnum kvöldið örlaga ríka eða gert nokkuð rangt. Stígur þá fram kona að nafni Elísabet Sig Helga­dóttir, sem er unga stúlkan í sög­unni. Hún stað­festir frá­sögn­ina og er kvöldið greypt í minni hennar. Upplifun hennar er að Jón Baldvin hafi verið rudda­legur. Hún seg­ist hafa séð þegar Jón Baldvin greyp um Rögnu.

Sig­ur­björg Jón­as­dóttir er þriðja konan er segir sögu sína í Frétta­blað­inu. Hún elskar að sjá börn blómstra og hefur unnið sem stuðn­ings­full­trúi í 20 ár. Hún sakar Jón Baldvin um grófa kyn­ferð­is­lega áreitni er hann kenndi henni ensku í Haga­skóla.

Sig­ur­björg segir Jón Baldvin hafa boðað hana í auka­tíma sama dag og nem­endur fóru í jóla­frí. Um þetta leyti var hún 15 ára. Sig­ur­björg var ein í stof­unni með Jóni og sett­ist niður og byrj­aði að læra. Hún segir að ekki hafi liðið langur tími þar til Jón Baldvin hafi sest fyrir aftan hana og hún hálf­part­inn skorðuð á milli borðs­ins og Jóns Baldvins. Þá kveðst hún hafa fundið fyrir hreyf­ingu up við bakið á sér.

„Ég fann fyrir aftan mig að hann var harður og eitt­hvað var að ger­ast,“ lýsir Sig­ur­björg sem not­aði alla sína krafta og náði að ýta borð­inu. Hún segir Jón hafa lýst yfir að hann ætl­aði að kalla hana í annan auka­tíma. Hryllti hana við þeirri til­hugsun.

„Alltaf þegar sím­inn hringdi, þá fékk ég hnút í mag­ann. Ég hler­aði allt til þess að vita hvað mamma myndi segja,“ segir Sig­ur­björg sem ótt­að­ist að ensku­kenn­ar­inn væri á hinni lín­unni. Í sam­tali við Frétta­blaðið upp­lýsir hún að þó mörg ár séu síðan að meint kyn­ferð­is­legt ofbeldi átt sér stað er minn­ingin alltaf til staðar. Hún segir:

„Þetta rifj­ast upp í hvert sinn sem maður sér hann.“

Sig­ur­björg ákvað að stíga fram og vildi deila sögu sinni til að styðja Aldísi, dóttur Jóns Baldvins og Bryn­dísar. Hún segir hræði­legt að fylgj­ast með þeim hjónum mála Aldísi sem geð­veika. Aldísi verði að fá rétt­læti. Þá segir Sig­ur­björg að lokum:

„Hef engan hefnd­ar­þorsta gagn­vart Jóni Baldvini, ekki lengur, því ég sé hann sem sjúk­ling, bæði hann og konu hans,“ segir Sig­ur­björg og heldur að Jón Baldvin átti sig ekki á alvar­leika máls­ins eða það sem hann hafi gert sé rangt. Sig­ur­björg bætir við að lokum:

„Það segir manni að þau þurfi bæði á hjálp að halda. Í full­komnum heimi myndi hann biðj­ast afsök­unar en hann mun held ég aldrei gera það.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi