Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trylltist og truflaði slökkvilið: „Það var reynt að brenna mig inni, kveikja í mér. Ertu hálfviti?“

Trylltist og truflaði slökkvilið: „Það var reynt að brenna mig inni, kveikja í mér. Ertu hálfviti?“

„Ég er ekk­ert rólegur. Það var reynt að brenna mig inni,“ sagði reiður og ósáttur íbúi á Ólafs­firði sem ítrekað trufl­aði störf slökkvi­liðs Fjalla­byggðar sem kallað var út síð­ast­liðna nótt. Mynd­bands­upp­töku sem inni­heldur hluta sam­skiptum manns­ins við lög­reglu má finna neðar í umfjöllun.

Eldurinn kom upp í kjall­ara­í­búð að Kirkju­stræti á Ólafs­firði. Íbúi á efri hæð húss­ins lét ófrið­lega og trufl­aði störf slökkvi­liðs­ins ítrekað. Fullyrti mað­ur­inn að um íkveikju væri að ræða og nágrann­inn hefði ætlað að ráða sig af dögum.

Íbúinn á efri hæð þvæld­ist ítrekað fyrir slökkvi­liðs­mönnum og hreytti í þá fúk­yrðum og neit­aði að fara að fyr­ir­mælum bæði lög­reglu og slökkvi­liðs­manna. Vara­slökkvi­liðs­stjóri Fjalla­byggðar, Þormóður Sig­urðs­son, segir í sam­tali við Mannlíf að fólk sem hafi orðið undir í líf­inu hafi hreiðrað um sig í hús­inu. Þormóður kvaðst ekki geta svarað hvort um íkveikju væri að ræða en það væri á borði lög­reglu.

Elds­upp­tök voru í sófa og er íbúðin illa farin. Greiði­lega gekk að slökkva eld­inn en lög­regla á vett­vangi neydd­ist til að grípa í taumana þegar íbú­inn á efri hæð lét ófrið­lega og hót­aði slökkvi­liðs­mönnum sem unnu vanda­samt verk við að ráða nið­ur­lögum elds­ins í kjall­ar­anum. Hafði lög­regla fullt í fangi við að hafa hemil á mann­inum og ótt­uð­ust að hann gæti farið sér á voða á vett­vangi.

Á upp­töku sem Mannlíf hefur undur höndum og er um tólf mín­útna löng má heyra íbú­ann fagna því þegar slökkvi­liðið kemur á vett­vang. Hann hafði sjálfur óskað eftir aðstoð með því að hringja í 112. Var mað­ur­inn í ann­ar­legu ástandi og full­viss um að elds­voð­inn beind­ist að honum. Slökkvi­liðs­menn báðu íbú­ann ítrekað að vera ekki nærri hús­inu. Brást hann illa við þeirri beiðni og æst­ist frekar þegar einn liðs­manna slökkvi­liðs­ins bað hann um að róa sig niður.

„Ég er ekk­ert rólegur. Það var reynt að brenna mig inni,“ svar­aði íbú­inn reiður og ósáttur.

Lög­reglu­þjónn: Slappaðu af.

Íbúi: „Slappa af. Myndir þú slappa af ef það væri reynt að brenna þig inni. Ef ein­hver væri að kveikja í þér. Ertu hálf­viti?“

Á upp­tök­unni má heyra íbú­ann einnig lýsa yfir að hann hafi kvartað undan nágranna sínum deg­inum áður. Lög­reglu­þjónn reyndi þá að róa mann­inn og óskaði eftir að hann færð sig frá hús­inu svo hann færi sér ekki á voða. Á upp­töku má heyra mann­inn segja: „Láttu mig vera. Það var reynt að brenna mig inni […]Ekki rífa í mig“

Lög­reglu­þjónn: Komdu með mér, áður en ég set þig í hand­járn.

„Fyrir hvað?“ spurði íbú­inn hvumsa.

Lög­reglu­þjónn: Fyrir það að vera þvæl­ast hérna fyrir á vett­vangi. Nú er ég búinn að segja við þig að þú þarft að koma frá.

Íbúi: „Þú ert að fara með mig í reyk!“

Lög­reglu­þjónn: Hlustaði aðeins á mig

Maðurinn bað lög­reglu­þjón­inn að losa takið sem svar­aði að ef hann þyrfti að beita valdi til að koma honum af vett­vangi, yrði svo að vera.

Íbúi: „Ég er ekki fyrir. Ég má alveg horfa á þetta. Er ein­hver sem bannar það? Af hverju ertu að eyði­leggja skyrt­una mína? […] Það er reynt að brenna mig inni. Skilyrðu ekki að ég sé reiður út af því?“

Lög­reglu­þjónn: Það bætir ekki ástandið að hegða sér svona.

Íbúi: „Ég hringdi á hund­rað og fokk­ing tólf. Þegar ég byrj­aði að finna hel­vítis bruna­lykt­ina og hana arg­andi út í garði að reyna að ögra mér.“

Lög­reglu­þjónn: Hvað ger­ist?

Íbúi: „Ég veit ekk­ert um það. Allt í einu fer ég út, ég fann flug­elda­lykt, leit út og það var því­líkur reykur inni hjá mér. Punktur.“

Lög­reglu­þjónn: Ég bað þig um að taka með þér jakka, af hverju gerðir þú það ekki? Ég verð að koma þér í skjól.

Íbúi: „Ég fer bara til mömmu. Mér er ekki kalt.“

Lög­reglu­þjónn: Þú ert alltaf að æsa þig meira og meira. Það bætir ekki ástandið að öskra á mig.

Íbúi: „Ég veit það Bjössi en þú þurftir ekki að vera rífa í mig.“

Lög­reglu­þjónn: Nei, en ég þurfti að taka í þig því þú vildir ekki koma með mér. Nú er þetta í fersku minni, hvað gerð­ist?

Íbúi: „Ég sat hérna uppi. Ég var að fara að sofa. Ég var nýbú­inn í hug­leiðslu. Ég var að fara að leggja mig þegar að …“

Slökkvi­liðs­maður hrópar: Er ein­hver þarna niðri?

Íbúi svarar neit­andi og bætir við: „Ég sat uppi að fara sofa þegar ég finn flug­elda­lykt og hún [konan] alveg kemur út og neglir hurð­inni. Argar og gargar og er reyna að ögra mér. Ég finn flug­elda­fýlu.“

Þögn. Íbúinn stendur einn og horfir yfir sviðið:

Íbúi: „Geð­veikis­lega gáfu­legt kvöld maður. Er maður í reyk­holti?“

Fljót­lega eftir þessa atburða­rás tókst lög­reglu að lokum að róa íbú­ann niður sem fékk síðan að halda til síns heima.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi