Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þjóðin slegin yfir harmleiknum – Engin þolinmæði fyrir rasistum – Ummæli í Pabbatips vekja reiði

Þjóðin slegin yfir harmleiknum – Engin þolinmæði fyrir rasistum – Ummæli í Pabbatips vekja reiði

Íslenska þjóðin er slegin yfir harm­leiknum í Skötu­firði en í gær var greint frá því að litli dreng­ur­inn, Mikolaj Majewski, væri lát­inn. Hann var aðeins 18 mán­aða. Móðir hans, Kamila Majewska, lést einnig eftir hið hræði­lega slys en Tomek Majewska, faðir drengs­ins og eig­in­maður Kamila, komst lífs af. Þau höfðu fest rætur á Flateyri og voru á leið þangað þegar bíll þeirra fór í sjó­inn.

Pólska sendi­ráðið á Íslandi segir mikla sorg vegna máls­ins og innan Facebook-hóps Pólverja á Íslandi er fólk harmi slegið. „Wyrazy wspołczucia,“ segir fólkið. Það mætti þýða sem „sam­úð­ar­kveðjur“. Islandia, Facebook-síða um mál­efni Pólvegja á Íslandi, deilir mynd­inni hér fyir ofan og segir pólska sam­fé­lagið í sárum.

Víða má sjá sterk við­brögð meðal Íslend­inga enda Pólland mikil vina­þjóð Ísland. Flestir þekkja ein­hvern frá Póllandi enda búa þús­undir þeirra hér á landi. Skemmst er svo þess að minn­ast þegar Pól­verjar réttu Íslend­ingum hjálp­ar­hönd í neyð í hrun­inu.

Söfnun fór á stað í gær fyrir aðstand­endur og gengur vel. Í gær söfn­uð­ust tæp­lega fjórar millj­ónir króna og voru bæði Íslend­ingar og Pól­verjar sem lögð­ust þar á eitt. Sandra Stephowska, vin­kona fjöl­skyld­unnar, sagði í sam­tali við Mannlíf að öll hjálp væri vel þegin.

Andvirði söfn­un­ar­innar er hugsað til þess að styrkja nán­ustu fjöl­skyld­una sem flýgur nú til íslands og flytja Kamilu og Mikolaj til heima­lands­ins.

Ef þú vilt hjálpa fjöl­skyld­unni og leggja söfn­un­inni lið þá getur þú gert það hér.

Atvikið vekur þó upp fleiri til­finn­ingar en sorg því óhætt er að segja að Íslend­ingar hafi tekið því illa og af reiði þegar um það var talað af van­virð­ingu. Ummæli sem féllu á Facebook-hópnum Pabbatips hafa vakið mikla reið utan hóps­ins. Jóel nokkur vakti athygl á þeim í öðrum hóp „Hjálp­leg­ustu” kommentin og á stuttum tíma höfðu ótal manns lýst yfir van­þóknun sinni. Daníel nokkur skrif­aði athuga­semd við færslu í Pabbatips þar sem allir voru hvattir til þess að taka þátt í söfnun til styrktar unga föð­urs­ins, Tomek Majewska, sem missti eig­in­konu og barn í slysi í Skötu­firði.

Daníel skrifar í Pabbatips: „Samskot fyrir hvern? Þau eru útlend­ingar og fjöl­skylda þeirra vænt­an­lega í Póllandi og þau verða vænt­an­lega flutt þangað, miklar líkur á að við fáum sömu fréttir af pabb­anum á næstu dögum.“ Óvíst er hvaða við­brögð þetta vakti innan Pabbatips en þau eru hörð í hinum fyrr­nefnda hópnum.

Jóel sem deilir því skrifar: „Þetta er pabbatips hóp­ur­inn, allir pab­b­arnir þarna að tala um að sýna sam­stöðu og ræða hvernig væri hægt að hjálpa föð­ur­inum sem missti konu sína og barn, svo kemur einn svona pési með svona „hjálp­legt komment“…..“

Allir eru sam­mála honum þar. „Fooookking aum­ingi sem kommentar svona,“ skrifar einn meðan kona nokkur segir: „Ojjjj hversu ljótt“. Önnur segir svo: „Ógeð… þetta er sið­laust að commenta svona  svo fárán­legt að nota orðið útlend­ingur alltaf! Frekar þreyt­andi hvað er það sem gerir manni af Íslend­ing?“

Sumir vildu ganga lengra eins og einn sem segir: „Ég er ekki í grúpp­unni en langar inni­lega að ganga í hana til þess eins að segja þessum manni að hoppa upp í rass­gatið á sér.“ Kona svarar honum og segir: „Ég er einmitt að pæla í að ná í sím­ann hjá mann­inum mínum í sama til­gangi“

Einn maður seg­ist nán­ast vilja lúskra á þessum manni. „Maður sem missti kon­una sína og tæp­lega tveggja ára son og þetta er kommentið sem kemur? Stundum þarf bara að kýla menn með hamri.“ Kona nokkur er á svip­uðum slóðum og segir: „Sumt fólk á ekk­ert annað skilið enn skóflu beint í and­litið. Fólk er fífl, frasin á vel hér við.“

Baldur nokkur skrifar að lokum athuga­semd um hvað gerð­ist á Pabbatips eftir að ummælin féllu. „Hann skýrði kommentið neðar í umræð­unum. Hann hélt ein­fald­lega að þar sem þetta eru pól­verjar, og óvíst hvort pabb­inn myndi lifa þetta af, þá væri óvíst hver ætti að taka við pen­ingnum. Spurn­ingin var ónær­gætin, en alls ekki rasísk eða á neinn hátt ill­gjörn. Sá hugur kemur ekki fram í orð­unum. Það er hins vegar hægt (en alls ekki nauð­syn­legt) með ákveðnu mind­setti að lesa hann milli lín­anna. Mér finnst meira áríð­andi að eyða þessu sham­ing festi­vali héðan en komment­inu hans af pabbatips ef ég á að segja alveg eins og er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi