Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Viðskiptakanónur yfirgefa frjálshyggjuna og styðja Sósíalista: „Sjálfur er ég einn af þeim heppnu“

Viðskiptakanónur yfirgefa frjálshyggjuna og styðja Sósíalista: „Sjálfur er ég einn af þeim heppnu“
Jökull Sólberg Auð­uns­son. Mynd / Skjáskot RÚV.

Tveir þekktir nýsköp­un­ar­tölvu­kallar hafa lýst yfir stuðn­ingi sínum við Sósílista­flokk­inn. Báðir hafa þeir náð góðum árangri í við­skipta­líf­inu en segja að lífs­gæðin komi í gegnum félags­hyggju sós­í­al­ism­ans.Annar þeirra, Jökull Sólberg Auð­uns­son, rekur tölvu­fyr­ir­tækið Takumi sem býður áhrifa­völdum heims­ins aug­lýs­inga­þjón­ustu á sam­fé­lags­miðlum. Bæði breskir og banda­rískir fjár­festar hafa nú þegar lagt tæpan millj­arð í fjár­fest­ingu í félag­inu. Jökull sendi frá sér yfir­lýs­ingu á Facebook þar sem hann seg­ist geng­inn í Sós­í­alista­flokk­inn:„Við erum á hátindi nýfrjáls­hyggj­unnar. Ég er af kyn­slóð­inni sem þekkir eig­in­lega ekki neitt annað. Þessi hug­mynda­fræði um að stjórn­mál séu gam­al­dags og að „frjáls mark­aður“ gæti hags­muna allra ef hann er óáreittur. Að það sé „óeðli­legt“ að stjórn­völd skipti sér af. Að það sé best fyrir hvern og einn að ná sínu fram með því að koma sér í mjúk­inn hjá auð­vald­inu, læra af þeim, herma eftir þeim og verða „þeir“,“ segir Jökull og heldur áfram:„Sjálfur er ég einn af þeim heppnu í hópi þeirra heppn­ustu á þessu horni út á hafi sem hefur það, heilt yfir, betra en margir aðrir í heim­inum. En ég er far­inn að skilja sam­hengið betur. Annars vegar hef ég áttað mig á því hversu fátæk­leg og skað­leg hug­mynda­fræði hægr­is­ins er og hins­vegar hversu mik­il­vægir sigrar voru unnir á vakt félags­hyggju­afla á síð­ustu öld. Þaðan koma lífs­gæðin sem mestu skipta.“Jökull segir að þeir stjórn­mála­flokkar sem þjóni fyrst og fremst fyr­ir­tækjum lands­ins eigi hrein­lega ekki lengur erindi á Alþingi. „Stjórn­mál eiga að snú­ast um fólk, fjöl­skyldur, heim­ili, sam­fé­lög og umhverfi. Fyr­ir­tækin munu áfram spjara sig þegar vinstrið hefur aftur tekið völdin og ég vor­kenni ekki einum ein­asta stjórn­anda eða frum­kvöðli þó við fáum öfl­uga vinstri stjórn. Ef það er eitt­hvað sem atvinnu­lífið þarf á að halda í dag þá er það vinstri stjórn sem hugsar lengra fram í tím­ann og skaffar heil­brigð­ara starfs­fólk sem er ekki að drep­ast úr kvíða og álagi. Ég vil fá sem flesta „fence sitt­ers out there“ í lið með okkur í Sós­í­alistum. Ég veit hver þið eruð!,“ segir Jökull.

Hörður Ágústs­son, eig­andi Macland.

Versl­un­ar­eig­and­inn Hörður Ágústs­son, sem rekur Macland á Íslandi, tekur í sama streng. Hann hefur líka gengið í Sós­í­alista­flokk­inn. „Síðan ég byrj­aði að fylgj­ast með stjórn­málum hefur hug­mynda­fræðin um “frjálsan markað” ráðið ríkjum. Að það sé besta leiðin og allra best sé að láta mark­að­inn í friði. Stjórn­völd eigi helst að vera ekki fyrir og eina leiðin til að ná árangri í líf­inu sé að tengja sig auð­vald­inu, og ekki rugga bátnum. Vera með í geim­inu en samt miða sig út frá ein­stak­lings­hyggju nýfrjáls­hyggj­unnar,“ segir Hörður og bætir við:„Að fæð­ast á Íslandi, ásamt því að koma úr fjöl­skyldu sem er úr mið­stétt opnar margar, ef ekki flestar dyr að alls konar tæki­færum í líf­inu. Það var ekki ég sem skóp mína stöðu sjálfur. Því fer fjarri. Það liggur alveg ljóst fyrir hjá mér að kerfið er beyglað. Það lyftir ekki þeim upp sem þurfa upp­lyft­ingu, þvert á móti heldur kerfið þeim niðri. Kerfið er hannað til að vera svona, þetta er ekki óvart.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi