Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hilmar deilir töfralausninni: Sparar sér fúlgur fjár og losnar við kílóin – „Til betra lífs“

Hilmar deilir töfralausninni: Sparar sér fúlgur fjár og losnar við kílóin – „Til betra lífs“

Veiran sem við öll þekkjum og herjar á heims­byggð­ina hefur haft skelfi­legar afleið­ingar. Hún skóp á skömmum tíma nýja ver­öld og veldur ótta, atvinnu­leysi, kvíða, ein­angrun, auknu heim­il­is­of­beldi og and­látum. Listinn er mun lengri. En þá eru margir hafa nýtt ófremd­ar­á­standið og tekið líf sitt til gagn­gerar end­ur­skoð­unar, eflt sig og styrkt. Í þeim hópi er Hilmar Þór Norð­fjörð, mark­aðs­maður og ljós­mynd­ari. Hann vill deila reynslu sinni, öðrum til inn­blást­urs. Töfra­ráðið sem Hilmar lumar einnig á, getur sparað fólki tugi ef ekki hund­ruð þús­und og um leið orðið til þess að styrkja bæði sál, lík­ama og budd­una.

Kostaði aðeins 30 til 40 þúsund

Lokun lík­ams­rækt­ar­stöðva eftir að COVID skall á hefur reynst mörgum þungur baggi. Hilmar greip þá til þess ráðs að end­ur­hanna eitt her­bergj­anna í íbúð­inni og breyta því í glæsi­lega einka­lík­ams­rækt­ar­stöð. Þetta tókst honum fyrir aðeins 30 til 40 þús­und krónur! Er það aðeins dýr­ara en þriggja mán­aða kort í World class en ódýr­ara á mörgum öðrum lík­ams­rækt­ar­stöðvum.

„Ég fékk líka sjálfur Covid og þá byrj­aði þessi bakt­ería, að hafa aðstöðu heima til að æfa. Ég hef alltaf verið með lík­ams­rækt­ar­kort en hef svo ekki notað það mikið,“ segir Hilmar í sam­tali við Mannlíf og bætir glett­inn við:

„Yfir­leitt er ég að borga mán­að­ar­lega fyrir mont­rétt­inn að geta sagst vera í rækt­inni – sem ég var svo ekki mikið að stunda.“

Þolinmæði og heppni

Hilmar átti hjól fyrir frá Sport­vörum og þá tók leitin að öðrum tækjum til að bæta í safnið. Hann lagð­ist yfir sölu­síð­una Brask og brall á Facebook

„Það hefur verið nán­ast ómögu­legt að kaupa æfinga­vörur und­an­farna mán­uði en ef maður fylgist með og er hepp­inn, þá dettur maður niður á alls­konar flotta hluti,“ segir Hilmar en lóðin keypti hann á Facebook.

„Í öðru til­fell­inu þá stal ég eig­in­lega sölu til ann­ars og er með smá sam­visku­bit yfir því. Dóttir mín æfir oft heima og hún kom með hug­mynd um að hafa box­púða, ég gaf okkur svo­leiðis í jóla­gjöf en ég mæli ein­dregið með boxi til að æfa. Það er bæði skemmti­legt og rosa­lega erfitt að boxa,“ segir Hilmar og bendir rétti­lega á að box sé alhliða æfing og ódýrt að fjár­festa í bún­aði.

Þá er hægt að fara út á pall eftir lík­ams­rækt­ina og skella sér í heita pott­inn.

Opið allan sólarhringinn

En lík­ams­rækt­ar­stöð stendur ekki undir nafni ef eng­inn er það lyft­ing­ar­bekk­ur­inn. Þeir reynd­ust upp­seldir í land­inu þegar Hilmar fór að líta í kringum sig. En þeir fiska sem róa og á end­anum fann Hilmar bekk til sölu á Facebook og fékk hann á góðum kjörum.

„Það var það eina sem vant­aði að mér fannst og núna er ég með nán­ast allt sem ég not­aði í rækt­inni heima og hef engar afsak­anir til að æfa ekki,“ segir Hilmar og bendir á að stöðin hans sé opin allan sól­ar­hring­inn.

Von á einkaþjálfara

Nú hefur lík­ams­rækt­ar­stöð Hilmars orðið sér úti um einka­þjálf­ara fyrir aðal­kúnna stöðv­ar­innar! Finnur Atli Magn­ús­son, einka­þjálf­ari og KR-ingur er góður félagi Hilmars og hefur veitt góð ráð.

„Hann ætlar að taka með mér næsta skref í þjálfun­inni en hann ætlar að koma í heim­sókn nokkrum sinnum í mán­uði til að hafa æfing­arnar fjöl­breyttar og skemmti­legar. Ef fólk er að æfa og æfing­arnar eru alltaf eins þá verða þær eins­leitar og fólk missir móð­inn og áhug­ann. Ég mæli því með góðum „wingman“ til að halda manni við efnið og brjóta upp æfingaplanið,“ segir Hilmar.

Allt annað líf

Á síð­ustu mán­uðum hefur Hilmar lést um 22 kíló. Hann fór á síð­asta ári í maga­ermi-aðgerð. Þegar hann byrj­aði að létt­ast fór bolt­inn að rúlla og ýtti undir áhug­ann á að rækta lík­amann.

„Núna æfi ég eitt­hvað dag­lega, stundum boxa ég eða hjóla. Stundum lyfti ég lóðum eða nota teygjur og stundum fer ég bara út að labba, en ég hreyfi mig alla­vega eitt­hvað dag­lega,“ segir Hilmar og bætir við:

„Þegar maður kemst í rútínu með þetta þá verður þetta gaman og ég tala nú ekki um þegar krakk­arnir æfa með uppá félags­skap­inn. Allar æfingar og sér­stak­lega box eru líka ótrú­lega streitu­los­andi og maður getur látið pirr­ing hvers­dags­ins dynja á box­púð­anum sem glaður tekur við hverju „þungu“ höggi.“

Til gleði og betra lífs

En hvaða ráð hefur Hilmar fyrir aðra sem til dæmis strengdu ára­móta­heit og hafa stefnt að bættri heilsu.

„Það er ótrú­lega frelsandi og gott fyrir sál­ina að játa eigin van­mátt og leita hjálpar útaf vanda­málum, eins og ofþyngd. Ég hef verið mjög opinn með mitt ferli í að berja niður þyngd­ina og ég hef fengið fjölda fyr­ir­spurna og sím­tala frá fólki sem eru reyna finna lausnir á sínum málum,“ segir Hilmar og finnst merki­legt að allt eru það ungir karl­menn sem leita ráða hjá honum.

„Ég fór í maga­ermi og líður mjög vel í dag í mínu ferli, og með betri líðan, mik­illi hvat­vísi og heil­miklu bráð­læti þá henti ég upp heima­rækt­inni á frekar stuttum tíma,“ segir Hilmar og á eitt gott ráð handa les­endum að lokum: „Ég mæli ein­dregið með því að allir sem þurfa á því að halda leiti sér hjálpar og úrræði, til betra lífs!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi