Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigurgeir segir eftirlitið pervertískt: „Óhjákvæmilegt að neðrihluti líkama yrði í mynd“

Sigurgeir segir eftirlitið pervertískt: „Óhjákvæmilegt að neðrihluti líkama yrði í mynd“

Sig­ur­geir Jónsson, smá­báta­sjó­maður í Suð­ur­nesjabæ, segir eft­ir­lit Fiski­stofu komið út fyrir allan þjófa­bálk. Nú ætli stofn­unin að fylgj­ast með sjó­mönnum með drónum og nær eft­ir­litið nær alla leið heim til hans. Sig­ur­geir segir að trillukarlar munu bregð­ast við þessu með því að bera sig að neðan fyrir mynda­vél­un­unm.

Sig­ur­geir segir í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu. „Á vef Fiski­stofu er hinn 7. jan­úar 2021 frétt frá stof­unni um að hún hafi tekið í notkun dróna við eft­ir­lit. Í frétt­inni kemur fram að drón­arnir verði not­aðir við eft­ir­lit á sjó, vötnum og landi. Í frétt­inni er tekið fram að aflað hafi verið allra til­skil­inna leyfa. Líka er sagt til hverra menn eigi að snúa sér ef þeir vilji frek­ari upp­lýs­ingar og hafði und­ir­rit­aður sam­band við deild­ar­stjóra veiði­eft­ir­lits Fiski­stofu og spurði um útgáfu leyf­anna og hvort sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra eða ein­hver í hans umboði hefði gefið leyfi fyrir notkun drón­anna í höfnum eða yfir fiski­skipi við löndun eða hver önnur störf sem fylgja fiski­skipi.“

Hann segir Kristján Þór Júl­í­us­son hafa leyft þetta eft­ir­lit. „Ekki var annað á deild­ar­stjór­anum að skilja en sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hefði leyft ótak­mörkuð afnot drón­anna við eft­ir­lit, þar með talið að fylgj­ast með skip­verjum við komu að skipi eða brott­för, allt að dyrum heim­ilis skip­verj­ans, í raun mætti Fiski­stofa fylgj­ast með skip­verj­anum allan sól­ar­hring­inn hvar sem næð­ist til hans. Fyrir tveimur árum viðr­aði þáver­andi fiski­stofu­stjóri þá hug­mynd að setja um borð í trillur sem önnur fiski­skip mynda­vélar til að Fiski­stofa gæti fylgst með skip­verjum við störf sín. Sagðist Fiski­stofa vera með heim­ild frá ráð­herra til að fara í þetta,“ segir Sig­ur­geir.

Hann bendir svo á að Fiski­stofa muni sjá ófá typpi ef þetta verður raunin. „Fiski­stofa var spurð hvort henni væri kunn­ugt um að í fæstum þeim fleytum sem stunda hand­færa­veiðar væri önnur sal­ern­is­að­staða en borð­stokk­ur­inn, sem mynda­vélin ætti að mynda, eða fata og óhjá­kvæmi­legt væri að neðri­hluti lík­ama manna sem væru að gera þarfir sínar yrði í mynd við eft­ir­litið sökum smæðar þeirrar fleytu sem Fiski­stofa teldi nauð­syn­legt að fylgj­ast með ef eyð­ing fisk­stofna á Íslands­miðum ætti ekki að eiga sér stað,“ segir Sig­ur­geir.

Hann segir ráð­herra að skamm­ast sín fyrir að vilja taka upp á mynd­band þegar trillu­kallar gera þarfir sínar. „Ekki hefur enn orðið af því að Fiski­stofa komi með mynda­vélar um borð í smæstu kló­sett­lausu trillur en nú skulu það vera drónar fyrir starfs­menn Fiski­stofu að leika sér með og vísað er í ESB, þaðan sem allt gott á víst að koma. En trillukarlar munu halda áfram að gera þarfir sínar úti á dekki á kló­sett­lausum trillum og veifa aft­ur­end­anum við verkið hvort sem dróni frá ráð­herra strand­veiða og grá­sleppu er við mynda­töku af við­burð­inum eða ekki. Nei ráð­herra, svona á ráð­herra ekki að gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi