Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dramatík í móttöku RÚV – Óli lét Gísla heyra það: „Ætti að vera mál málanna í þætti kvöldsins“

Dramatík í móttöku RÚV – Óli lét Gísla heyra það: „Ætti að vera mál málanna í þætti kvöldsins“

„Óli og Gísli Marteinn í spjalli utan mynd­vers­ins í Efsta­leit­inu. Þetta sam­tal ætti að vera mál mál­anna í þætti kvölds­ins. Einhæft val á gestum þátta Gísla er auð­vitað verð­ugt rann­sókn­ar­efni.“

Þetta skrifar Leifur A. Bene­dikts­son, annar þeirra sem kalla sig Skilta­karl­arnir, og deilir mynd­unum sem má sjá hér fyrir ofan. Ólafur Sig­urðs­son og Leifur mættu upp í Efsta­leiti á föstu­dag­inn til að afhenda Gísla Marteini Bald­urs­syni bæn­ar­bréf um að hleypa almenn­ingi í þátt­inn sinn. Þeim tveimur blöskr­aði að Bjarni Bene­dikts­son yrði meðal gesta í skemmti­þætti sem að nafn­inu til væri ætl­aður öllum lands­mönnum.

Bréfið má lesa hér fyrir neðan en þar kemur fram við­horf sem verður sífellt algeng­ara, að RÚV ræði ávallt við full­trúa elítu en venju­legt og jafn­vel fátækt fólk sést aldrei. Þeir félagar segja hins vegar að hag­mun­ar­að­ilar hafi alltof greiðan aðgang að RÚV.

Bréfið í heild sinni

Berist Gísla Marteini Bald­urs­syni, útvarps­stjóra og stjórn RÚV
Bæna­skjal skilta­karl­anna

Opið bréf til Gísla Marteins, stjórn­enda og starfs­manna RÚV og útvarps allra lands­manna.
Kæri Gísli og RÚV, við viljum byrja á að þakka ykkur fyrir að vera fjöl­mið­ill­inn okkar og útvarpið okkar og að hafa fengið að alast upp við þá menn­ing­ar­stofnun sem Rík­is­út­varpið er.

Hins­vegar er erindi okkar annað nú.

Okkur finnst að umræðu- og skemmti­þættir eins og þátt­ur­inn þinn séu að verða of ein­hliða í umfjöllun og vali á við­mæl­endum og oftar en ekki oft sama fólkið sem kemur fram að segja sömu hlut­ina.

Rík­is­fjöl­mið­ill á að end­ur­spegla þjóð­ina og rödd hennar, rödd allra. Hins­vegar háir það umræð­unni að sífellt komi að hags­muna­að­ilar eða stjórn­mála­menn sem gæta hags­muna efna­manna. Meira að segja Alþingið okkar er alltof ein­hæft eins og stundum hefur verið bent á. Þar vantar oft rödd stórra þjóð­fé­lags­hópa. Þetta á ekki að vera svona og ekki er betra þegar hags­muna­að­ilar geta gengið að því vísu að kom­ast alltaf að í fjöl­miðlum til að túlka sín sjón­ar­mið á meðan aðrir hópar hafa alls ekki sama aðgang. Þetta þekkja flestir sem vinna við fjöl­miðla enda virð­ast hags­muna­að­ilar hafa keypt flesta fjöl­miðla á Íslandi og geta þannig lokað á aðrar skoð­anir en eig­enda.

Sé mál til umræðu til dæmis í Silfrinu þar sem rætt er um spill­ingu í banka­kerf­inu, þá er einnig hags­muna­að­ili í sett­inu sem gjammar fram í, heldur fram ósönnum eða vafasömum full­yrð­ingum og ein­fald­lega ,,Trumpar“ umræð­una, eins og oft er sagt nú á tímum, enda má vænta að leik­ur­inn sé til þess gerður.

Í Bret­landi gekk þetta svo langt að vís­inda­menn og frétta­menn sem fjöll­uðu um umhverf­is­vána á BBC neit­uðu ein­fald­lega að koma í við­töl ef þar væri á sama tíma aðili sem afneit­aði hætt­unni. Við skulum vona að við lendum ekki þarna varð­andi umræður á RÚV um stjórn­mál og mál­efni sem varða almanna­hag á líð­andi stund.

Að sjálf­sögðu erum við ekki að fara fram á að ,,taka yfir umræð­una“ eða slíkt, heldur að þess sé gætt að hags­muna­að­ilar hafi ekki svo greiðan aðgang að umræð­unni á RÚV-miðl­unum að þeir sem hafa önnur við­horf fái lít­inn sem engan aðgang í sam­an­burði.
Í kvöld, í skemmti­þætti á föstu­dags­kvöldi, er til dæmis boð­inn mjög umdeildur stjórn­mála­maður, Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og vafa­samur kaup­sýslu­maður með tengsl við fjöl­mörg gjald­þrota­mál frá tímum hruns­ins.

Nú getum við sem sé búist við því að fá að heyra hans sjón­ar­mið um banka­sölu og önnur átaka­mál á skemmti­legum nótum í þætt­inum þínum og svo jafn­vel aftur á alvar­legri nótum í Silfrinu á sunnu­dags­morgun. Þar að auki hafa ótal greinar birst í fjöl­miðlum und­an­farið um hversu væn­leg sala Íslands­banka er fyrir ríkið. Vissu­lega hefur gagn­rýni á þetta komið fram en við skilta­karlar teljum að það halli veru­lega á aðra hlið­ina í þeirri umræðu.
Því hvetjum við ykkur á RÚV að gæta að hlut­verki ykkar á við­kvæmum tímum í sam­fé­lag­inu þar sem þeir sem ,,eiga“ ráða en hinir verða að sjá um sig sjálfir í auknu atvinnu­leysi, fátækt og mennt­un­ar­skorti.

Við viljum því ein­fald­lega hvetja ykkur til að skoða hvort þið getið gert betur í að vera útvarp og fjöl­mið­ill allra lands­manna.

Með kærri kveðju og þakk­læti fyrir allt liðið,
Skilta­karl­arnir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi