Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Geir Hannes er látinn: Missti 4 systkini og ákvað að fara í læknisfræði til að draga úr barnadauða

Geir Hannes er látinn: Missti 4 systkini og ákvað að fara í læknisfræði til að draga úr barnadauða

Geir Hann­es Þor­steins­son, fædd­ist í Reykja­vík 27. októ­ber 1928. Hann lést á Land­spít­al­an­um í Foss­vogi 8. janú­ar 2021. Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Geirs er Elísa­bet Krist­ins­dótt­ir. Geir upp­lifði margt á sinni löngu ævi og í raun krafta­verk að hann hafi orðið eldri en eins árs. Hann átti síðan eftir að láta gott af sér leiða og var einn stofn­enda Félags íslenskra barna­lækna og fyrsti for­maður félags­ins. Geir missti sjálfur fjögur systk­ini úr berklum og spurn­ing­unni um af hverju hann hefði ákveðið að ger­ast lækn­ir var auðsvarað:

„Ég ætl­aði að verða garð­yrkju­maður og kenna fólki að rækta ma­t­jurtir en ákvað að fara í lækn­is­fræð­ina til að draga úr barna­dauða.“

Geir og Elísa­bet eign­uð­ust fjög­ur börn sam­an, Rósu, Þorstein, Gunnar Ellert og Auði Eddu. Son­ur Elísa­bet­ar af fyrra sam­bandi er Krist­inn Pét­urs­son.

Geir ólst upp í Reykja­vík og lauk prófi frá lækna­deild Há­skóla Íslands 1958. Hann hélt síðar til Banda­ríkj­anna í sér­nám í barna­lækn­ing­um og stund­aði nám við Northwestern Hospital í Minn­ea­polis 1960-1961. Þaðan hélt hann til Uni­versity Hospital of Iowa City þar sem hann hlaut rétt­indi sem barna­lækn­ir árið 1964.

Geir starf­aði lengi sem skóla­læknir, við ung­barna­eft­ir­lit og sem heim­il­is­lækn­ir. Hann var einn stofn­enda Fé­lags ís­lenskra barna­lækna og fyrsti for­maður­inn og var lengi ald­urs­for­seti félags­ins. Í Lækna­blað­inu segir um Geir:

„Geir fékk sér­fræði­við­ur­kenn­ingu 1963 og vann aðal­lega við ung­barna­vernd víða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á stofu og við skóla­lækn­ingar. Geir gat sér gott orð­spor í starfi, en ákvað að söðla um og vinna sem heilsu­gæslu­læknir í Heilsu­gæslu Kópavogs þegar hún var stofnuð árið 1980 og vann hann þar til starfs­loka. Geir var kjör­inn fyrsti for­maður félags­ins á stofn­fundi þess, sem að hans sögn kom honum á óvart. Hann sat í eitt ár.“

Geir upp­lifði margt á sinni löngu ævi og í raun krafta­verk að hann hafi lifað. Aðeins eins árs fékk hann berkla og lýsir Gunnar Ellert, sonur Geirs, þeirri bar­áttu í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu:

„Þér var ekki hugað líf við fæð­ingu og fékkst berkla 1 árs gam­all. Lík­am­legt og and­legt at­gervi þitt hef­ur án vafa gert þér kleift að snúa þig út úr því á þinn ein­kenn­andi snagg­ara­lega hátt.“

Þor­steinn, annar sonur Geirs, segir föður sinn stundum hafa sagt um þann tíma:

„Við fæð­ingu var ég sett­ur í skó­kassa, fékk svo berkla en ég stend hér enn,“

var hann van­ur að segja með bros á vör. Að láta gott af sér leiða, dreng­lyndi, dugn­aður og ósér­hlífni voru hans æðstu dyggðir og í raun þær eft­ir­sókn­ar­verð­ustu.“

Geir missti fjögur systk­ini út berklum. Þá lést Ellert Berg bróðir hans af slys­förum og var Geir mik­ill harmdauði. Markaði sá missir lækn­inn fyrir lífs­tíð.

Þor­steinn, sonur Geirs segir:

„Lág­vax­inn og snagg­ara­leg­ur dreng­ur sem vex upp í eft­ir­mála tveggja heims­styrj­alda og ung­lings­ár­in mót­ast af hörm­ung­um þess tíma. Pabbi lagði svo sann­ar­lega sín lóð á vog­ar­skál­ar til betra lífs og gerði hann oft orð fyrr­um for­seta Banda­ríkj­anna, John F. Kennedy, að sín­um:

„Spurðu ekki hvað land þitt get­ur gert fyr­ir þig, spurðu hvað þú get­ur gert fyr­ir land þitt.“

Þannig var pabbi trúr sjálf­um sér allt til enda og yfir því er ég óend­an­lega stolt­ur.

Pabbi og Ell­ert Berg bróðir hans voru mikl­ir mát­ar og varð frá­fall Ell­erts Berg föður mín­um mik­ill harmdauði. Á kveðju­stundu er mér það bæði ljúft og skylt að segja að pabbi jafn­aði sig aldrei á því áfalli né því sem í kjöl­far þess at­b­urðar fylgdi. Sagt er að það sem bognað hafi geti ekki orðið beint en þótt ungi maður­inn hafi bognað þá rétti hann úr sér og skóp sína fram­tíð.

Í heims­far­aldri kór­ónu­veirunn­ar urðu gæða- og sam­veru­stund­ir pabba með fólk­inu sínu færri en efni stóðu til.“

Þá er við­eig­andi að vitna að lokum í Þorstein, son Geirs. Hann segir: Spurn­ing­unni um af hverju hann hefði ákveðið að ger­ast lækn­ir var auðsvarað:

„Ég ætl­aði að verða garð­yrkju­maður og kenna fólki að rækta ma­t­jurtir en ákvað að fara í lækn­is­fræð­ina til að draga úr barna­dauða.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi