Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Starri kemur sorg sinni aldrei í orð: „Vinur minn dó af mínum völdum í höndunum á mér“

Starri kemur sorg sinni aldrei í orð: „Vinur minn dó af mínum völdum í höndunum á mér“

Starri Hauksson missti vin sinn og skóla­bróður í hræði­legu slysi. Slysi sem hann telur sig hafa orðið valdur að með þeim afleið­ingum að vin­ur­inn lést í hönd­unum á honum. Þrátt fyrir að 32 ár séu liðin er það fyrst núna sem Starri getur mætt þessum degi án þess að deyfa sig.

Frá þess­ari sorg­legu reynslu segir Starri í færslu á Facebook og þar er hann með mik­il­væg skila­boð til allra þeirra sem lenda í áföllum:  „Ekki bíða í 32 ár, það sökkar svo feitt og skemmir svo mikið,“ segir Starri.

Starri var um tíma rekst­ar­að­ili Gauksins auk þess að vera leik­rit­skáld. Svona hljóðar frá­sögn hans af hinum örlaga­ríka degi er vinur hans lést:

„Þann 27 jan­úar um þetta leiti, fyrir 32 árum síðan trúði ég því að líf­inu væri lokið. Skóla­bróðir minn og vinur dó af mínum völdum og hræði­legra slys­fara í hönd­unum á mér fyrr um dag­inn, það tók sjúkra­bíl um sjö og hálfa klukku­stund að kom­ast í gegnum snjó­hríð­ina úr næsta bæj­ar­fé­lagi til okkar. Harm minn, örvænt­ingu, og sorg kem ég aldrei í orð, eða hversu mjög ég óskaði þess að hann hefði verið sá sem gekk í burtu en ekki ég. Þetta var skelfi­legur dagur sem snerti heilt sveita­fé­lag og mark­aði mig fyrir lífs­tíð,“ segir Starri.

Starri segir að á þessum tíma hafi ekki verið til áfalla­hjálp í sveit­inni og því hafi hann þurft að halda út í lífið fullur af van­mætti, sekt­ar­kennt og sorg. „Sú aðferð skil­aði mér ekki góðu og það er fyrst núna sem að ég sé ljós­glætu með því að sleppa allri „karl­mennsku“ og leita mér sér­fræði hjálpar. Þetta er í fyrsta sinn í ára­tugi sem að ég mæti þessum degi án þess að deyfa mig á ein­hvern máta. Ég veit ekk­ert hvort að það er hræði­lega óvið­eig­andi að segja frá þessu svona, ég vildi bara deila þesssu í von um það -að ef að þú ert að díla við eitt­hvað sam­bæri­legt þá leitir þú þér hjálpar,“ segir Starri og bætir við að lokum:

„Svo vildi ég líka minna á vin minn, hann dó kannski fyrir 32 árum síðan og ég kann að þurfa að sleppa honum, en hann hefur fylgt mér alla þessa leið, ég kom­inn yfir fer­tugt og hann bara 15, hann hlýtur að vera kom­inn með leið á mér fyrir löngu. Eg er sann­ar­lega ekki búinn að vinna úr hlut­unum, ég er bara að byrja á því. Þau ykkar sem muna þennan dag bið ég afsök­unar, ef að ég er að ýfa upp vonda minn­ingu, það er ekki ætlun mín að særa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi