Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þrír ungir synir minnast Stefáns föður síns sem var aðeins 41: „Við munum alltaf elska þig“

Þrír ungir synir minnast Stefáns föður síns sem var aðeins 41: „Við munum alltaf elska þig“

Stefán Karlsson verður jarð­sung­inn í dag og margir minn­ast hans með fal­legum og hlýjum orðum í dag. Meðal ann­ars þrír ungir synir hans sem nú hafa misst föður sinn alltof snemma. Stefán var aðeins 41 árs gam­all er hann lést.

Stefán lést því langt fyrir aldur fram. Hann var fram­kvæmda­stjóri Vals í tvö ár og stjórn­ar­maður í hand­knatt­leiks­deild félags­ins. Stefáni er lýst sem afar vönd­uðum manni, góð­hjört­uðum og ráða­góðum. Hann var einnig mik­ill leið­togi og tók Stefán á móti öllum glað­beittur á svip og bros hans leið fólki seint úr minni.

Blessuð sé minn­ing Stefáns.

Ungir synir hans þrír, þeir Krist­ó­fer, Rúnar og Ingimar, minn­ast föður síns í Morg­un­blað­inu í dag. „Elsku pabbi, þú varst fynd­inn, góður, dug­legur og skemmti­legur. Við munum sakna hlát­urs þíns og hversu góður þú varst. Við munum sakna þess þegar þú söngst Dengsa-lögin hans Hemma. Þú varst alltaf til í að gera allt með okkur, hvort sem það var að leika hákarl í sund­laug­inni, spila FIFA eða hvað sem er. Við munum alltaf elska þig og hugsum fal­lega til þín,“ segja bræð­urnir.

Stefán fædd­ist í Reykja­vík 17. sept­em­ber 1979. Hann lést á heim­ili sínu 19. jan­úar síð­ast­lið­inn. Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Stefáns er Sig­ur­laug Rúna Rún­ars­dóttir.

Stefán útskrif­að­ist úr Versl­un­ar­skól­anum og eftir það lá leið þeirra Sig­ur­laugar til Dan­merkur þar sem hann útskrif­að­ist með diplóma í mark­aðs­fræðum frá Niels Brock. Hann lauk síðan BS-gráðu í við­skipta­fræði og MBAgráðu frá Háskól­anum í Reykja­vík.

Stefán hóf störf hjá Vinnu­fötum ehf. eftir að hann kom frá námi í Danmörku og vann þar með hléum stóran hluta ævi sinnar. Stefán vann í rúm­lega 20 ár í kringum Knatt­spyrnu­fé­lagið Val í mörgum lyk­il­hlut­verkum. Hann var meðal ann­ars for­maður hand­knatt­leiks­deildar og á árunum 2008-2009 starf­aði hann fyrst sem fjár­mála­stjóri og svo sem fram­kvæmda­stjóri félags­ins.

Sig­ur­laug syrgir ást­kæran eig­ina­manns síns í minn­ing­ar­grein. „Elsku Stebbi minn er lát­inn. Þetta er það sárasta sem ég hef lent í vegna þess að hann var svo ein­stakur. Ég veit ekki hver á núna að taka vel í allar klikk­uðu hug­mynd­irnar sem ég fæ og allt sem mér dettur í hug. Hann var alltaf til­bú­inn að gera næstum allt sem mér í datt í hug,“ segir Sig­ur­laug og heldur áfram:

„Ég mun geyma allar minn­ingar okkar í hjarta mínu og minn­ing hans lifir í gegnum okkur öll. Ég passa strák­ana okkar. Við ætlum ekki að reyna að skilja allt, en við fyr­ir­gefum. Stebbi var ekki bara eig­in­maður minn heldur líka minn besti vinur og sálu­fé­lagi. Ég er ein­stak­lega þakk­lát fyrir þessi 23 ár sem við fengum saman. Ég þarf að læra að lifa með því að elsku Stebbi minn sé far­inn. Ég get ekki orða bund­ist hversu mikið ég sakna hans og mig verkjar í hjartað að vita til þess að hann muni aldrei halda utan um mig aftur, hlæja að brönd­ur­unum mínum eða elda fyrir mig lund og béarna­ise. Stebbi var frá­bær pabbi, eig­in­maður, félagi og vinur í blíðu og stríðu,“ segir Stefán.

Ágúst Jóhanns­son minn­ist perslu­vinar síns og lýsir honum með hlýjum orðum. „Einn okkar allra besti maður er fall­inn frá og það allt of snemma. Þvílíkt þak­menni, öðlingur, leik­maður og vinur. Það er erfitt að koma orðum að þessu öllu og því sem mig langar að segja um hann. Hann hafði svo hlýja og trausta nær­veru; var skarpur, agaður og nálg­að­ist hlut­ina af yfir­vegun. Stebbi Karls var ekki bara ein­stakur vinur heldur frá­bær pabbi og fjöl­skyldu­maður. Elsku vinur! Þetta er eitt það erf­ið­asta sem ég hef þurft að skrifa og vildi ekki þurfa að gera það. En staðan er þessi og ég reyni að kom­ast í gegnum þetta og lifa með þessu. Ég á frá­bærar minn­ingar sem ég mun rifja reglu­lega upp og segja fólki sögur af þér, hve ein­stök og góð per­sóna þú varst. Ég vona að þér líði vel elsku vinur. Minn­ingin um frá­bæran pabba og eig­in­mann mun lifa með ykkur og von­andi styrkja í sorg­inni. Elsku Stebbi Karls. Ég gleymi þér aldrei, elsku vinur,“ segir Ágúst.

Útförin fer fram frá Linda­kirkju í dag klukkan 13. Athöfn­inni verður streymt hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi