Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Margir minnast Svavars

Margir minnast Svavars

Útför Svavars Gests­sonar fer fram frá Dóm­kirkj­unni í dag en í Morg­un­blað­inu má lesa ótal minn­ing­ar­greinar um hann eftir marga þekkt­ustu stjórn­mála­menn síð­ustu ára­tuga. Svavar var áður rit­stjóri Þjóð­vilj­ans, for­maður Alþýðu­banda­lags­ins, þing­maður, ráð­herra og sendi­herra. Hann lést á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans aðfar­arnótt 18. jan­úar. Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Svavars er Guðrún Ágústs­dóttir, fyrrum for­seti borg­ar­stjórnar Reykja­víkur. Börn Svavars eru Svandís, Benedikt og Gestur og börn Guðrúnar eru Ragn­heiður, Árni og Gunn­hildur.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og eig­in­maður hennar skrifa sam­eig­in­lega minn­ing­ar­grein. „Stundum eiga fyrr­ver­andi stjórn­mála­menn það til að vera bitrir yfir hlut­skipti sínu en því var ekki að heilsa hjá Svavari. Hann hafði vissu­lega skoð­anir á mönnum og mál­efnum, og það sterkar, en var ekki einn þeirra sem telja að þeir geri allt betur en allir aðrir. Svavar var þó ávallt til taks ef annað fólk þurfti að leita til hans og þau voru ófá skiptin sem Katrín gat notið reynslu hans,“ segja þau og enn fremur:

„Við þökkum stuðn­ing­inn og vin­átt­una sem Svavar veitti okkur og sonum okkar á meðan hann lifði. Síðast hittum við Svavar og Guðrúnu saman í Hólaseli á ágúst­kvöldi, það blés hressi­lega og birtan sló ein­stökum síð­sum­ar­bjarma á Breiða­fjörð­inn. Við sátum langt fram­eftir að fara yfir stöð­una og stjórn­mála­standið sem Svavar gerði alltaf með skipu­lögðum hætti og nálg­að­ist málin út frá skar­pri grein­ingu og skýrri sýn. Minning lifir um mann sem fyrst og fremst vildi gera gagn fyrir sam­fé­lag sitt sem og heim­inn allan. Við vottum Guðrúnu, Svandísi, Benedikt, Gesti og allri fjöl­skyld­unni okkar dýpstu sam­úð­ar­kveðjur.“

Ólafur rifjar upp fyrstu kynnin

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti, segir hann hafa verið ein­stakan. „Svavar Gestsson var eini leið­togi íslenskra vinstri­manna sem gat í krafti eigin athafna, orð­ræðu og minn­inga tengt saman göng­una löngu frá tímum Einars og Brynj­ólfs til Sam­fylk­ingar, Vinstri-grænna og rík­is­stjórnar Katrínar. Ungur sat hann við fót­skör eld­hug­ans og lét sér ætíð annt um þá arf­leifð. Forystan fól honum fljótt ærinn trúnað, rit­stjórn úr sæti Magnúsar, skrif þar sem penni Austra hafði mótað boð­skap,“ skrifar Ólafur.

„Þing­skör­ungur, jafn­vígur í vörn og sókn. Ræðu­stóll­inn líkt og í Róm til forna vett­vangur til að safna liði, virkja fólk til góðra verka. Frá Alþingi lá leiðin á sléttur Manitoba. Að formi til sendi­full­trúi rík­is­ins en varð fljótt í reynd hér­aðs­höfð­ingi og hrepp­stjóri í sam­fé­lagi Vestur-Íslend­inga sem lengi höfðu beðið slíks manns að heiman. Hátíð­ar­höldin í til­efni þús­und ára afmælis landa­funda hápunktur dval­ar­innar. Síðan var bar­áttu­mað­ur­inn frá fundum með Dags­brún­ar­körlum við höfn­ina, vígaglaður á vett­vangi fjöld­ans, sendur til hirða nor­rænna kon­unga; sómdi sér vel í glæs­isölum gam­alla halla, bæði í Stokk­hólmi og Kaup­manna­höfn.“

Ólafur rifjar upp fyrstu kynni þeirra tveggja. „Ævin­týra­leg veg­ferð sveita­stráks úr Dölunum sem fátækur leigði sér her­bergi í nágrenni Tjarn­ar­innar til að stunda nám í Mennta­skól­anum við Lækj­ar­götu. Þar hitt­umst við fyrst á göng­unum, hófum sam­ræðu um stjórn­mál og stefnur sem ent­ist okkur í ára­tugi. Saman í for­ystu Alþýðu­banda­lags­ins þegar því tókst að sitja lengst í rík­is­stjórn; tíma­bil sem skipti sköpum í þróun vinstri­hreyf­ingar. Hinn rót­tæki flokkur vand­ist því að fara með rík­is­valdið.

Það var stundum sagt að við hefðum verið odd­vitar ólíkra fylk­inga og ýmsir skemmtu sér við að tína til ágrein­ings­efnin. Þá gleymd­ust jafnan stórar stundir þegar sam­staða okkar og bræðra­lag réði úrslitum. Tengslin frá hinum gamla skóla reynd­ust sterk; bönd sem aldrei trosn­uðu þótt oft væri öldu­gangur í sigl­ing­unni. Frá­sagnir um ævi­feril ná ekki að fanga geislandi sjarma bar­áttu­manns, leiftr­andi til­svör og glampa í augum, kímn­ina sem oft breytti spennu í óvænta gleði. Í vit­und félag­anna var Svavar fyrst og fremst heill­andi. Engum líkur. Ein­stakur“.

Samstarf fjölskyldna

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, minn­ist hans einnig en hún heyrði fyrst af honum sem barn. „Sem barn og ung­lingur heyrði ég oft talað um Svavar, fyrst hjá langömmu enda voru þau Svavar miklir félagar á vett­vangi verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og Alþýðu­banda­lags­ins. Mikið rætt um póli­tík á heim­il­inu, og var mikil virð­ing borin fyrir Svavari, sem líka þótti hafa gott póli­tískt inn­sæi! Ein sagan af Svavari er skemmti­leg í þessu sam­hengi. Þannig hélt hann því fram í tæki­fær­is­ræðu í sex­tugs­af­mæli Stein­gríms Her­manns­sonar, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra í sam­steypu­stjórn Sjálf­stæðis-, Fram­sóknar- og Alþýðu­flokks, að afmæl­is­barnið væri „á villi­götum með íhaldi og krötum.

Í til­efni dags­ins legg ég á og mæli um, að áður en langt um líður verður mynduð vinstri­st­jórn á Íslandi undir for­ystu Stein­gríms Her­manns­sonar“. Í ævi­sögu Stein­gríms segir að ummælin hafi vakið almenna kátínu snemm­sum­ars 1988, þótt alvara hafi legið að baki. Skemmst er frá því að segja, að spá­dómur Svavars rætt­ist síðar sama ár, öllum að óvörum, vinstri­st­jórnin var stofnuð og Svavar tók við emb­ætti mennta­mála­ráð­herra. Þar átti Svavar far­sælan feril og kom mörgum umbóta­málum í verk,“ segir Lilja.

Fjöl­skyld­urnar áttu eftir að halda áfram sam­starfi. „Samstarf minnar fjöl­skyldu við hans átti síðar eftir að verða meira. Guðrún Ágústs­dóttir, eig­in­kona Svavars, varð sam­herji föður míns á vett­vangi Reykja­vík­ur­list­ans og Svandís dóttir hans sam­herji minn við rík­is­stjórn­ar­borðið. Í gegnum þau öll kynnt­ist ég Svavari og lærði hvaða mann hann hafði að geyma. Metn­að­ar­fullan og dríf­andi, sem kom hug­myndum í verk. Síðast hitti ég Svavar vegna áforma hans og ann­arra um að treysta byggð í Dala­sýslu með menn­ing­ar­tengdri starf­semi á svæð­inu sem fóstr­aði Sturlu Þórð­ar­son, Auði djúpúðgu, feðgana Eirík rauða og Leif heppna, Guðrúnu Ósvíf­urs­dóttur og fleiri. Þar átti Svavar rætur og kaus að verja drjúgum hluta eft­ir­launa­ár­anna, í sum­ar­húsi fjöl­skyld­unnar við Króks­fjörð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi