Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svandís syrgir föður sinn: „Ef ég reyni að skrifa um hann gæti ég aldrei hætt“

Svandís syrgir föður sinn: „Ef ég reyni að skrifa um hann gæti ég aldrei hætt“

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra ber föður sinn, Svavar Gestsson, til grafar í dag. Hún seg­ist á Facebook ekki hafa treyst sér að skrifa um hann sjálf, því þá myndi hún aldrei geta hætt því. Hún vitnar því í minn­ing­ar­grein eig­in­manns síns, Torfa Hjart­ar­sonar.

Svandís skrifar: „Í dag er útfar­ar­dagur elsku pabba frá Dóm­kirkj­unni í Reykja­vík. Ef ég reyni að skrifa um hann gæti ég aldrei hætt. Mig langar að deila með ykkur grein sem Torfi minn skrif­aði og birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag. Takk fyrir alla hlýj­una og góðu kveðj­urnar.“

Torfi seg­ist hafa horft upp til Svavars sem ungur maður. „Svavari á ég mikið upp að unna og þegar hann kveður finn ég fyrir þakk­læti sem minnir helst á djúpan og tæran hyl eða ægi­bjarta víð­átt­una í Hólaseli við Króks­fjörð, þar sem augað þreyt­ist aldrei á að finna nýja og töfr­andi hluti. Ég hreifst af honum ungur eins og svo margir af minni kyn­slóð og varð ein­arður vinstri­maður á ung­lings­aldri en vissi ekki þá að leiðir okkar ættu eftir að liggja saman löngu síðar og það með jafn afger­andi hætti og raunin varð! Svavar var ekki bara afreks­maður og hetja í stjórn­málum í ævi­langri bar­áttu sinni fyrir betra sam­fé­lagi, hann átti líka fjöl­skyldu sem ég var svo gæfu­samur að fá að tengj­ast,“ segir Torfi.

Hann segir sam­veru­stundir með honum og allri fjöl­skyld­unni hafi verið afar dýr­mætar. „Hann var fátækur sveita­strákur úr stórum systk­ina­hópi, elstur í hópnum og rækt­aði öll sín fjöl­skyldu­tengsl af kost­gæfni allt til loka, kvænt­ist Nínu okkar ungur og Guðrúnu okkar síðar, átti börn og buru, tengda­börn og stjúp­börn, barna­börn og barna­barna­börn. Yngst í þeim stóra hópi er hún Nótt sem fædd­ist í svartasta skamm­deg­inu fyrir rúmu ári síðan og hlær nú við líf­inu með tveimur stórum fram­tönnum og ómót­stæði­legu brosi. Sam­veru­stundir okkar Svan­dísar með Svavari, Guðrúnu, börn­unum öllum, vinum og ætt­ingjum í smærri og stærri hópum eru svo margar og góðar að engri tölu verður á komið, heima og heiman, innan lands og utan. Lengst var á milli árin þeirra tveggja hjá Íslend­ingum í Vest­ur­heimi og þegar Svavar fór um lönd og álfur, úr einu heims­horni í annað, að vinna land­inu gagn eins og hans voru ær og kýr, alla tíð, að gera eitt­hvert gagn, um það fannst honum lífið eiga að snú­ast,“ segir Torfti.

Hann segir að nú sé Svavar minnst í Kanada. „Alls staðar þar sem hann kom að leiddi það til góðs, skrifa þeir núna, Vestur-Íslend­ingar, í blaðið sitt, og lýsa honum af list án allra fyr­ir­vara eins og þeirri stór­brotnu kempu og þeim höfð­ingja sem hann var, alltaf með mörg járn í eld­inum, alltaf að leita leiða og finna lausnir, safna liði, leiða saman fólk, lyfta flöggum, marka stefnu, líta yfir far­inn veg og horfa fram á veg­inn. Samt svo sterkur í núinu, ekki endi­lega í löngum lotum eða laus við óeirð, en alltaf skarpur og næmur og veitti fólki óskipta athygli sem varð svo mörgum svo dýr­mæt, var áhuga­maður um fólk, ekki bara suma, heldur fólk,“ lýsri Torfi.

Hann minn­ist þess hvernig Svavar hafi mild­ast með árunum. „Glæstur á velli eins og ég sá svo vel einn góðan veð­ur­dag á sól­ar­strönd í Stokk­hólmi, þar sem hann stóð út úr mann­grú­anum, ark­andi um á stutt­buxum og bol í stórum skrefum með hárið flaksandi og sím­ann á lofti. Svo var hann bara svo skemmti­legur og hlát­ur­inn í aug­unum aldrei langt undan. Mér fannst líka gott að sjá hvernig hann mild­að­ist með árunum, ekki í póli­tískri sýn, heldur æðru­leysi og sátt við sjálfan sig og lífs­hlaupið, það skipti hann máli hvernig hans yrði minnst, að segja sögu sína, heima­hag­anna og sam­tím­ans með sínum hætti og það tókst honum líka með svo mörgu móti áður en yfir lauk. Og gafst ekki upp fyrr en í fulla hnef­ana, barð­ist við dauð­ann eins og hetja í fornum sögum, það var fullt tungl þegar hann hneig niður á leið vestur í Dali og Reyk­hóla­sveit í byrjun októ­ber og úlfatungl á björtum vetr­ar­morgni þegar við lögðum hann í kist­una, næstum fjórum mán­uðum síðar. Við söknum hans öll sárt og mikið en eigum líka mikið að þakka. Svavar var ein­stakur gæfu­maður og það var gæfa fyrir okkur öll að fá að eiga með honum sam­leið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi