Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hrönn flugfreyja fór alltof fljótt: „Besta eldri systir sem hugsast getur“

Hrönn flugfreyja fór alltof fljótt: „Besta eldri systir sem hugsast getur“

Hrönn Geir­laugs­dóttir, flug­freyja hjá Icelandair, var borin til grafar í gær en hún fór alltof snemma, aðeins 61 ára gömul. Henni er lýst sem hæfi­leik­a­ríkri, fal­legri og hug­ul­samri. Hrönn lætur eftir sig einn son og barna­barn.

Hrönn fædd­ist í Reykja­vík 11. sept­em­ber 1959. Hún lést á heim­ili sínu 20. jan­úar 2021. Hrönn ólst upp í for­eldra­húsum við Grens­ás­veg í Reykja­vík. Hún lærði ung á fiðlu í Barna­mús­ík­skól­anum, nú Tón­mennta­skóla Reykja­víkur. Hún stund­aði fiðlu­nám jafn­hliða skóla­göngu allt til fiðlu­kenn­ara­prófs frá Tón­list­ar­skóla Reykja­víkur  og lauk jafn­framt stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum í Hamra­hlíð.

Hrönn starf­aði við tón­list­ar­kennslu við Tón­mennta­skóla Reykja­víkur og lék með fjöl­mörgum tón­list­ar­mönnum á tón­leikum og skemmt­unum. Hún varð svo flug­freyja hjá Flug­leiðum og síðar lengi hjá Icelandair.

Hrönn átti eina yngri systur, Huldu, sem minn­ist hennar í fal­legri minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu. „Hrönn systir mín. Ég er eina mann­eskjan sem getur sagt „Hrönn systir“. Hún er mín einka­systir. Á gam­alli mynd sést Hrönn, um fjög­urra ára gömul, halda í barna­vagn þar sem ég svaf nýfædd. Blíður augn­s­vipur og umhyggja í and­lit­inu. Þannig var það alltaf í gegnum upp­eld­is­árin. En það er svo und­ar­legt að þetta fyrsta systra­band, sem sést á þess­ari gömlu mynd, er svo fast­gróið í mér að jafn­vel eftir að við höfum búið hvor í sinni heims­álf­unni í yfir 30 ár finnst mér eins og hún haldi enn í vagn­inn minn,“ segir Hulda og heldur áfram:

„Hrönn var mjög list­ræn mann­eskja. Auk þess að vera góður fiðlu­leik­ari og gef­andi fiðlu­kenn­ari hafði hún mik­inn áhuga á listum og list­málun. Og hún hélt í barna­vagn­inn, besta eldri systir sem hugs­ast getur. Hún var mín einka­systir. Enginn annar getur sagt „Hrönn systir“. Jafnvel eftir að líf og dauði hafa nú skilið okkur að, meira en heims­álf­urnar gerðu áður, mun hún alltaf búa í mér, fal­leg, hæfi­leik­a­rík, hug­ul­söm. Ég elska þig, Hrönn systir, hvar sem þú ert. Megir þú öðl­ast hvíld og ró.“

Óskar Magn­ús­son minn­ist einnig frænku sinnar með hlýjum minn­ingum. „Skjótt hefur sól brugðið sumri. Hrönn frænka mín er fallin frá. Þegar litið er til baka við þessi hryggi­legu tíma­mót má muna gleði, gáska og káta fundi úr þessum fyr­ir­ferða­mikla stapa. Orðin frændi og frænka tákna í þennan rann ekki bara ætt­ar­tengsl heldur ekki síður vin­áttu og vænt­um­þykju. Þannig hafa þau ætíð hljó­mað af okkar vörum. Hrönn var frænka kær,“ segir Óskar og bætir við:

„Við frænka þroskuð­umst síðan hvort í sína átt­ina eins og vera ber, hún af sinni hug­þekku hóg­værð, en við bæði alla tíð með vit­und um vin­áttu og frænd­semi upp­eld­is­ins. Hún gerð­ist snemma flug­freyja og og smám saman saman viku við­kvæmir strengir hljóð­fær­is­ins fyrir þungu þrýsti­lofti hreyfl­anna í árföstu starfi skýjum ofar. Hin síð­ari ár lágu leiðir okkar oft saman í háloftum þess­ara flug­ferða. Var þá oft gott að vera komin hálfa leið heim þegar Hrönn birt­ist með sitt fág­aða fas og fal­lega bros. Teinrétt, svip­djörf og ljúf í lund bauð hún frænda sínum hress­ingu. En nepjan blés og lífið varð vossamt í bar­átt­unni við heilsu­brest og óvæg mót­gangs­öfl. Ég minn­ist frænku minnar nú og ætíð með hlýjum hug frá öllum stundum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi