Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ellý ólst upp föðurlaus og þjáðist vegna þess sem barn: „Hæ, þekkirðu mig ekki?“

Ellý ólst upp föðurlaus og þjáðist vegna þess sem barn: „Hæ, þekkirðu mig ekki?“

Lista­konan Ellý Ármanns­dóttir ólst upp föð­ur­laus og átti lengi vel í erf­ið­leikum með að ræða fjar­veru föður síns. Hún átti sér þann draum að þegar hún sjálf eign­að­ist börn myndi faðir hennar taka meiri þátt í lífi hennar. Sá draumur brást.

Hér á landi eru mörg dæmi þess að feður kjósi að taka ekki þátt í lífi barna sinna. Feður sem yfir­gefa börnin sín og sýna þeim engan áhuga. Ellý er ein þeirra og ræðir hún til­finn­ingar sínar í sam­tali við Frétta­blaðið. Þegar hún gerð­ist þula hjá RÚV var það til að reyna ná athygli föður síns.

„Ég vissi að hann horfði alltaf á frétt­irnar og ég von­að­ist til þess að hann sæi mig og myndi hafa sam­band. Þetta mótar ekki aðeins barn­æsk­una heldur hefur þetta alltaf fylgt mér alla daga og ég er enn að vinna í þessu í dag. Ég er dóttir pabba míns, þó að ég hafi ekki beint fengið að hafa hann í lífi mínu. Ég vissi að ég átti pabba en það var eig­in­lega það eina sem ég vissi.“

Fjöl­skyldu­að­stæður Ármanns, föður Ellýar, voru nokkuð flóknar á þessum tíma en hann átti fyrir eig­in­konu og börn. Systir Ellýjar fædd­ist sjö dögum á eftir henni og gerði það aðstæður mögu­lega erf­ið­ari. Það tók þrjú ár fyrir dóm­stólum að fá fað­ernið loks­ins stað­fest.

Þegar Ellý var á ferm­ing­ar­aldri hitti hún föður sinn óvænt í heim­sókn hjá ömmu sinni. „Það voru nátt­úru­lega gríð­ar­leg von­brigði þar sem hann sagði bara „hæ, þekk­irðu mig ekki?“ stopp­aði örstutt og fór svo. Hann var almenni­legur en ég var búin að gera mér svo miklar vonir eftir allan þennan tíma,“ segir Ellý og bætir við:

„Það var rosa­lega gott þegar ég hætti að hata sjálfa mig og allt í heim­inum af því að eng­inn vildi mig. Ég hélt að hann myndi koma þegar ég eign­að­ist börn.“

Faðir Ellýar er nú lát­inn. Bæði sem barn og full­orðin átti hún erfitt með að tala um föður sinn. „Ég gat það ekki því ég hafði engin svör. Þegar ég tala við börnin mín um hvernig þetta var þá finnst mér það enn þá rosa­lega erfitt og reyni að segja þeim bara stuttu útgáf­una því ann­ars fer ég bara að gráta. Ég verð bara fimm ára aftur að tala um þetta. Pabbi var alveg frá­bær maður og ég reyni alltaf að sjá það besta í honum. Það er það eina sem ég get gert.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi